Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 31
með bréfin til sölu og að þeir, sem hefðu áhuga á að kaupa
bréfin, skyldu einfaldlega snúa sér til hans. Málið væri á
hans könnu. Krafa kom hins vegar um beinar viðræður um
kaup á bréfunum.
Einnig hljóta það að vera eðlilegar vangaveltur hvers
vegna Gunnar og Jón gengu ekki strax úr stjóm Samskipa
fyrst trúnaður við forstjórann var brostinn og þeir búnir að
setja bréfm í sölu. Það hlýtur að hafa verið erfitt að sitja í
stjóm undir slíkum kringumstæðum, hvað þá að vera
formaður. Raunar munJón hafa viljað ganga strax úr stjóm
á þessum tíma en ákveðið að vera áfram í stjórninni. Hann
mætti hins vegar ekkert á stjórnarfundi eftir þetta. Til tals
mun hafa komið innan stjómarinnar hvort eðlilegt gæti
talist að Gunnar yrði áfram formaður. Niðurstaðan varð sú
að hann sæti í því sæti áfram. Rétt er að vekja athygli á að
hluti stjórnarmanna getur ekki vikið öðrum úr stjórn.
Stjómarmenn eru kjörnir á aðalfundi. Stjóm kýs sér hins
vegar formann. Á fúndum með Gunnari og Jóni um sölu
bréfanna kom fram vilji frá núverandi stjómarmönnum og
forstjóra til að losa Skip hf. og G. Jóhannsson hf. út úr
dæminu. Spurningin var hins vegar á hvaða verði. Fljót-
lega varð ljóst að gengið 1,75 var ekki til umræðu heldur
mun lægra gengi.
Velta má því fyrir sér hvort eðliíegt geti talist að gengi
hlutabréfa í félagi, sem á í erfiðleikum og verið er að
endurreisa og gera að söluvöru, tvöfaldist í verði á rúmu
ári. Hugtakið eðlilegt í þessu sambandi er þó varla tO, það
er markaðurinn, einn og sér, sem segir til um verðmæti
hluta.
MIKIÐ TALAÐ EN EKKERT GERÐIST
Hvað um það, viðræður um kaup á hlutabréfunum héldu
áfram mánuð eftir mánuð í vetur án þess að nokkuð gerð-
ist. Raunar mun núverandi meirihluti hafa bent á að til
stæði að selja og kaupa skip á þessum tíma og því væri í
fleiri hom að líta með fjárfestingar en að kaupa hlutabréfin.
Gengið 1,5 var boðið í bréfin en það mun Gunnari og Jóni
hafa þótt of lágt. Þeir munu þó hafa geta fallist á að teygja
signiður í gengið 1,6. í fljótu bragði virðistþetta ekki mikill
munur. En um er að ræða hlutafé að nafnvirði 140 milljón-
ir. Og það munar 14 milljónum á söluverði hvort selt er á
genginu 1,5 eða 1,6.
Samkvæmt heimildum Frjálsrar verslunar var haldinn
fundur þegar líða tók á samningaviðræðurnar með þeim
Gunnari og Jóni. Eftir nokkra rekistefnu var þeim tjáð að
vilji væri til að kaupa bréfm á genginu 1,53 og var það
samþykkt. Nokkrum dögum síðar var sem snurða hlypi á
þráðinn og var þeim sagt að um einhvem misskilning væri
nashuate<
★ Mesí seldu
Ijósritunarvélar á Islandi!
★ Faxtæki ★ Fjölritar ★ Kjölbinditæki
Vérið velkomin i vinningsliðib!
Umboð: Hljómver, Akureyri
Póllinn, Isafirði
Geisli, Vestmannaeyjum
ARMULA 8 - SIMI588-9000
31