Frjáls verslun - 01.02.1996, Page 42
NÆRMYND
olbeinn Kristinsson, sem lengi
hefur verið kenndur við Myll-
una, var nýlega kjörinn for-
maður Verslunarráðs. Þetta hefur
jafnan þótt nokkur virðingarstaða og
það kemur í hlut formanns að hrinda
stefnu Verslunarráðs í framkvæmd
með þeim ráðum og vinnuaðferðum
sem best þykja henta. Helstu bar-
áttumál Verslunarráðs eru að vonum
HARÐl
Kolbeinn Kristinsson, him
var á árum
aukið frelsi í viðskiptum af ýmsu tagi
og niðurfelling ýmissa gjalda og reglu-
gerða sem hindra að verslunin
blómstri eins og eðli hennar stendur
til. Þetta er yfirleitt gert með því að
sannfæra þá, sem með völdin fara,
um að best og hentugast sé að haga
þessum eða hinum bókstaf laganna
með þessum hætti eða hinum. Af
sjálfu leiðir að starfsvettvangur for-
manns Verslunarráðs í þágu stéttar-
innar er fremur hljóðskraf að tjalda-
baki en bumbusláttur á torgum. Þetta
er staða ábyrgðar og trausts, ólaunað
hugsjónastarf en svo farið með það
sem önnur að veldur nokkru hver á
heldur.
FÆDDUR Á MARTEINSMESSU
Kolbeinn Kristinsson fæddist 11.
nóvember 1952 á Marteinsmessu
sem svo er nefnd frá fomu fari til
dýrðar heilögum Marteini sem var
biskup með frönskum á 4. öld. Mar-
teinsmessa var einn af spádögum um
veðurfar á íslandi en fjúk og dimm-
viðri á Marteinsmessu var talið boða
Hinn nýi formaður Verslunarráðs
stendur sannarlega ekki á brauðfót-
um í viðskiptalífinu þótt í bóksta-
flegri merkingu standi veldi hans
einmitt á brauðfótum.
MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
42