Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 43
íhlaupasaman og kaldan snjóa-
vetur en bjart veður frostavet-
ur. Þennan dag 1918 lauk fyrri
heimsstyrjöldinni, 1943 var
Hreyfill stofnaður og 1962 var
Hart í bak frumsýnt í Iðnó.
Þennan dag 1631 fæddist sr.
Gísli Þorláksson Hólabiskup en
jafnframt er þetta fæðingardag-
ur Matthíasar Jochumssonar
þjóðskálds.
Kolbeinn er einn af ábyrgðar-
mönnun körfuboltaáhugans
hér á landi, enda landslið-
smaður um árabil sem hefur
lagt boltann á hilluna.
R HORN AÐ TAKA
nýi formaður Verslunarráðs íslands, er framkvæmdastjóri Myllunnar. Hann
áðurþekktur körfuboltamaður. Hann þykir brosmildur en eitilharður
Kolbeinn er fæddur í merki Sporð-
drekans en um það merki segja
stjörnuspekingar ýmislegt. Sporð-
drekinn er sagður gæddur einstöku
þolgæði og hörku. Hann er óhemju
dulur, lokaður, einbeittur og sjálfs-
stjórn hans er rómuð. Hann er gædd-
ur miklu innsæi á mörkum þess yfir-
náttúrulega en jafnframt forvitinn og
skarpskyggn. Síðast en ekki síst er
sagt að Sporðdrekinn sé afar ástríðu-
fullur og margir í þessu merki nafn-
togaðir elskhugar.
ÆTTAÐUR AF STRÖNDUM OG ÚR
ÞINGEYJARSÝSLU ENALINN UPPÍ
BAKARÍI
Faðir Kolbeins var Kristinn Kol-
beinn Albertsson bakari fæddur 1927
á Húsavík, sonur Alberts Flóvents-
sonar frá Skörðum í Reykjahverfi.
Kona Alberts var Kristjana Sig-
tryggsdóttir frá Nípá í Köldukinn.
Móðir Kolbeins er Dýrleif Jóns-
dóttir frá Drangsnesi við Steingríms-
fjörð, dóttir Jóns Péturs Jónssonar og
Magndísar Önnu Aradóttur. Þannig
er Kolbeinn í bland Þingeyingur og
Strandamaður.
Kolbeinn er næstyngstur fjögurra
systkina. Elstur er Jón Albert Krist-
inn bakari f. 1948, þá Anna Kristín
læknaritari f. 1949, síðan Kolbeinn og
loks Laufey tónlistarkennari fædd
1961.
Eins og sjá má er Kolbeinn alinn
upp í bakaríi, nánar tiltekið Álfheima-
bakaraíi sem faðir hans stofnaði árið
1959 í Álfheimum 6.1963 færði Krist-
inn rösklega út kvíarnar og stofnaði
með öðrum fyrirtækið Brauð hf. suð-
ur í Kópavogi og þeir komu undir sig
fótunum með bakstri á Safabrauðum
sem einhverja kann að ráma í frá
Bítlaárunum. Jón Albert lærði bak-
araiðn en 1978 gekk Kolbeinn til liðs
við fyrirtækið og það ár keypti fjöl-
skyldan hina hluthafana út úr Brauði
hf., skírði fyrirtækið Mylluna og flutti
það í Skeifuna 11. Þar dafnaði fyrir-
tækið og lyfti sér eins og gott brauð á
að gera. 1983 féll Kristinn frá fyrir
aldur fram en þeir bræður Jón Albert
og Kolbeinn tóku við rekstrinum og
1987 voru kvíarnar færðar enn út
þegar þeir keyptu Skeifuna 19 með
rekstri Völundar einungis í þeim til-
gangi að komast yfir lóðina og húsin,
sem nú hýsa Mylluna, en að auki var
NÆRMYND
Páll Ásgeir Ásgeirsson
byggt talsvert við húsnæðið sem í dag
telur um 5800 fermetra alls. Þeir
bræður vinna vel saman þótt sagt sé
að ekki eigi þeir skap saman að öllu
leyti og í þeirra höndum hefur rekst-
urinn blómstrað á undanfömum ár-
um. Myllan velti þannig rúmum 750
milljónum árið 1994 og mun hafa náð
850 milljónum 1995. í dag eru Myllu-
kökur og -brauð seld í smásölu hvar
sem er en að auki rekur fyrirtækið 9
bakarí undir nafninu Bakarinn á horn-
inu auk gamla Áflheimabakarísins og
annars á Bemhöftstorfunni. Það má
því segja að reksturinn standi ekki á
neinum brauðfótum þótt byggt sé á
brauði.
Kolbeinn hefur verið fram-
kvæmdastjóri Myllubakaríanna frá
því skömmu eftir 1983 þegar faðir
hans féll frá fyrir aldur fram. Þeir
bræður skipta þannig með sér verk-
um að Kolbeinn er framkvæmdastjóri
en Jón Albert er stjórnarformaður og
sér um vöruþróun og gæðaeftirlit en
hann er lærður bakari.
ÁSKÓLABEKK FYRIR N0RÐAN0G
SUNNAN
Kolbeinn kom við í nokkrum skól-
um á leið sinni gegnum skólakerfið.
Fyrst gekk hann í Langholtsskóla
43