Frjáls verslun - 01.02.1996, Síða 56
Sigurður Þorsteinsson hjá Öryggisþjónustunni:
„Lækkun iðgjalda kemur ekki til greina nema að upp-
fylltum lágmarksskilyrðum, t.d að kerfið sé tengt
stjómstöð.“
Haraldur Haraldsson hjá V-24: „Við emm í samstarfi
við leigubílstjóra Hreyfils og emm með fleiri bíla í
umferð en öryggisfyrirtækin og lögreglan til samans."
við Nýherja-Radíóstofuna, sér um
vöktun fyrir þá síðamefndu. Sverrir
Ólafsson hjá Nýherja-Radíóstofunni
segir fyritækið sjá fyrirtækjum og
einstaklingum fyrir fjölbreyttu úr-
vali öryggiskerfa; innbrotskerfi,
eftirlitskerfi, sérstök bankakerfí
auk öryggisvaktar og gæslu allan
sólarhringinn. Þá sé boðið upp á sér-
staka þjónustu fyrir kröfuharðari
viðskiptavini.
„Við leggjum áherslu á að bjóða
vottaðan búnað og að kerfin séu
tengd stjómstöð. Þá rekum við
háþróaðan búnað sem staðsettur er í
bankaútibúum og á lögreglustöðinni í
Reykjavík og rekinn er í samvinnu við
lögregluna. Ef tilraun er gerð til ráns
nægir að ýta á hnapp og boðin berast
strax til lögreglu sem getur bmgðist
tafarlaust við. Það er ekkert hægt að
eiga við þennan búnað, t.d. í kassa úti
á götu, og því lítið að gera fyrir ræn-
ingja sem hafa innsýn í öryggiskerfi."
Sverrir segir mikla eftirspum eftir
eftirlits- og upptökubúnaði. Sem
dæmi má nefna myndatökuvél sem
staðsett er í hraðbönkum. Sé
greiðslukorti stolið og komist þjófur-
inn yfir pin-númerið getur hann tekið
út peninga í hraðbanka. En myndavél
í hraðbankanum nær af honum mynd
og því líkur á að hann verði gómaður
skömmu síðar og eins og nýlega átti
sér stað.
V-24 er fyrirtæki sem veitir bæði
eftirlitsþjónustu og selur hvers kyns
búnað tO vöktunar á atvinnuhúsnæði
og heimilum. Haraldur Haraldsson
framkvæmdastjóri segir viðskipti við
einkaaðila og fyrirtæki hafa stóraukist
en fyrirtækið hafi lagt áherslu á að
hafa þjónustu sína og búnað sem
ódýmst. Menn vilji yfirleitt ekki
greiða of mikið fyrir að koma sér frá
vanda. Þannig getur hann boðið eftir-
lit á hvers kyns húsnæði fyrir 1200
krónur á mánuði og með eftirlitstækj-
um sé greiðslubyrði viðskiptavinarins
þann tíma, sem hann er að greiða fyrir
tækin, ekki meiri en 3.900 krónur á
mánuði.
En V-24 hefur farið nýja leið í þjón-
ustu sinni sem felst í samstarfi við
leigubflstjóra Hreyfils. „Með því er-
um við með u.þ.b. 50 fleiri bfla í um-
ferð um allt höfuðborgarsvæðið en
öryggisfyrirtækin og lögreglan til
samans. Ef brotist er inn kviknar ljós í
stjómborði hjá okkur. Við köllum þá í
næsta lausa bfl og biðjum viðkomandi
að fara á staðinn og aðgæta hvað sé að
gerast. Lögregla er um leið látin vita
um að útkall geti orðið. Sjái bflstjórinn
ekkert athugavert gengur hann
kringum húsið og sé hann ekki kom-
inn aftur í samband við stjómstöð inn-
an tveggja mínútna er lögregla kölluð
út,“ segir Haraldur.
Hann leggur mikla áherslu á að ekki
sé ætlast til þess af bflstjórunum að
ARM0RC0AT-0RYGGISFILMAN
Breytir gteri i öryggisgter - 300%
sterkara - Glær eða lituð - Ver gegn
sólarhita, upphitun og eldi - Setjum
einnig sólar- og öryggisfilmu á bíla.
ARMORCOAT
UMBOÐIÐ
SKEMMTILEGT HF.
. BÍLDSHÖFÐA, SÍMI 587-6777 .
56