Frjáls verslun - 01.02.1996, Page 60
ERLENT EFNI
öð tilviljana réð því að banda-
rísku milljarðamæringamir
Bill Gates og Warren Buffett
hittust í fyrsta skipti í júlí 1991. Gates
er þekktur fyrir að hafa gert tölvufyr-
irtækið Microsoft að stórveldi og
Buffett er eigandi eignarhaldsfyrir-
tækisins Berkshire Hathaway sem
m.a. á Buffalo News, auk eignarhluta
í American Express, Coca-Cola, Gil-
lette, Washington Post Co. og fleiri
fyrirtækjum. Það var fyrir tilstilli Meg
Greenfíeld, ritstjóra hjá Washington
Post, að fundum þeirra bar saman en
hún hafði ákveðið að bjóða til sín gest-
um á þjóðhátíðardegi Bandaríkja-
manna, 4. júh', þar sem meðal annarra
áttu að vera Gates og foreldrar hans,
auk Buffetts. Gates fjölskyldan gat
ekki þegið boðið en móðir Gates, sem
er gömul vinkona Greenfields, bauð
gestunum þess í stað á sveitasetur
fjölskyldunnar daginn eftir.
„Hvað ættum við svo sem að tala
um, verð- og hagnaðarhlutföll fyrir-
tækja? Eyða degi með náunga sem
framhaldi af því.
Tímamir tveir urðu fleiri því Gates
leist vel á það sem Buffett hafði að
segja. Buffett var góður spyrill, að
mati Gates, auk þess sem frásagnir
hans vora lærdómsríkar. „Ekkert lík-
ar mér betur en að fræðast og engan
hef ég áður hitt er hugsar um viðskipti
með jafn skýram hætti,“ er haft eftir
Gates um kynni þeirra á sveitasetr-
inu. Buffett kynnti fyrir honum æf-
ingu í hvernig greina mætti árangur
fyrirtækja en hún er fólgin í að velja
tíu fyrirtæki á ákveðnum áratug með
bestu íjármögnunina og skoða svo
niðurstöðuna 20 áram síðar. Þetta
vakti áhuga Gates og hann eyddi deg-
inum í samræður við Buffett. Hvað
gerir þennan mann svo einstakan að
það veki áhuga Gates? Lítum nánar á
bakgrann Buffetts. Hann ólst upp í
Omaha í Nebraska fylki og ijárfesti í
fyrsta hlutabréfinu 11 ára gamall, auk
þess sem hann stofnaði fyrirtæki sitt
Buffett Partnership 25 ára gamall.
Sagt er að hann sé maður vanafastur
þegar tölur eru annars vegar og sjálf-
ur hef ég einnig unun af stærðfræði,"
er haft eftir Gates en hann telur að
Buffett slái ekki öðram fjárfestum við
vegna þess að hann sé betri í líkinda-
reikningi, heldur sé ástæðan sú að
hann fjárfesti ekki nema tækifærið sé
ótrúlega gott. Buffett heldur sig frá
fjárfestingum í fyrirtækjum, sem
byggja á tækniframleiðslu, vegna
þess að hann vill Ijárfesta þar sem
hann getur spáð fyrir um árangursrík
fyrirtæki áratug fram í tímann en það
er næstum ómögulegt þegar tækni-
framleiðslufyrirtæki eiga í hlut. „Til
allrar óhamingju fyrir Warren þekkir
heimur tækninnar enginn landamæri.
Með tímanum mun tækni á breiðum
grundvelli ná til flestra fyrirtækja þó
að Gillette og Coca-Cola ættu að vera
örugg,“ segir Gates. „Ein regla hjá
Buffett," segir Gates, „Er sú að
kaupa hlutabréf með kostakjörum á
lágmarksverði og halda síðan í þau.“
„Þetta er homsteinninn að íjárfest-
ingaspeki okkar: Treystu aldrei á
Þrátt fyrir nokkurn aldursmun eru tveir afríkustu mönnum Bandaríkjanna,
aðeins spáir í hlutabréf?" er haft eftir
Gates þegar móðir hans reyndi að
telja honum hughvarf og taka sér frí
frá vinnu til að hitta Buffett. Gates
segist sjaldnast heillast þegar fólk er
kynnt fyrir honum sem afburða ein-
staklingar og það átti einnig við í tilfelli
Buffetts. Hann var fullur efasemda
um að þetta væri fyrirhafnarinnar
virði og það var ekki fyrr en móðir
hans minntist á að Kay nokkur Gra-
ham yrði meðal gesta að Gates tók
við sér. Hún hafði rekið Washington
Post Co. við góðan orðstír, en í því
áttu Buffett og fyrirtæki hans hlut, og
Gates leist vel á frammistöðu hennar.
„Ég doka við í tvo tíma og svo er ég
farinn,“ sagði Gates við móður sína í
TEXTI: STEFflN FRIÐGEIRSSON
60
en hann keypti sér hús 27 ára gamall í
Omaha og býr hann þar enn 38 árum
síðar. Félagsskapur hans er ákveðinn
hópur fólks, er hann hefur kynnst í
gegnum tíðina, og leit á framandi
slóðum er ekki stíll Buffetts.
Vanafesta Buffetts nær einnig til
fjárfestingaaðferða hans og hann
heldur sig við fyrirtæki, sem reynast
honum þægileg viðfangs, en hann
fjárfestir lítið utan Bandaríkjanna.
Nokkur fyrirtækjanna eru langtíma-
fjárfestingar hans og hlutabréf í þeim
eru ekki föl. „Ég held að tregi hans til
að selja bréfin sé frekar lífsspeki en
gróðavon," segir Gates sem einnig
telur að fleira þurfi til en það að vera
talnaglöggur. „Warren er frábær
góða sölu. Láttu kaupverðið verða
það aðlaðandi að jafnvel meðalgóð
sala gefi góða niðurstöðu," er haft
eftir Buffett í bréfi til meðeigenda
sinna. I bók um Buffett, sem skrifuð
var af Roger Lowenstein, telur Gates
að lesendur muni geta fræðst um fjár-
festingar og viðskipti en óvíst sé
hvort uppskera þeirra verði mikil í
þessum efnum. „Buffett er á undan
sinni samtíð og til þess þarf meira en
kjarnyrt grundvallaratriði hans á
prenti," er haft eftir Gates. „Þú átt að
fjárfesta í fyrirtæki, sem jafnvel ein-
feldningur getur rekið, vegna þess að
einhvern daginn mun koma til þess,“
eru ráðleggingar Buffetts og hann
hefur ekki trú á fyrirtækjum sem