Frjáls verslun - 01.02.1996, Qupperneq 66
E23
Samtengdir_H
fyrirlestrar á m
sjónvarpssímum
um allan heim I
Póstur og sími selur myndsímabúnað frá fyrirtækinu
PictureTel. Annað kerfið , System 4000 EX, er sjálf-
stætt kerfi fyrir fundarherbergi eða sem færanlegur
búnaður milli staða sem hægt er að leigja en þá útvegar
leigutaki sjálfur sjónvarpstækið sem þarf. Hinn
búnaðurinn, PCS 100, er ætlaður fyrir PC tölvu 486 vél.
„Slík vél þarf að hafa lausar tengiraufar því búnaðinum
fylgja tvö spjöld í hana og forrit. Þessu til viðbótar fylgir
búnaðinum myndavél og sérbyggt símtæki," segir Jónas
Sigurðsson, deildarstjóri hjá Pósti og síma. Hann segir að
tölvubúnaðurinn kosti á bilinu 300-600 þúsund en System
4000 er mun dýrara. í grunninn er verðið á System 4000
um 4 milljónir en við þetta er fáanlegur töluverður auka-
búnaður eins og hljóðkerfi, hátalarar og hljóðnemar í loft
og á borð. Myndavélin, sem er ofan á sjónvarpstækinu, fer
yfir 120° og hefur um 60° horn. Við þetta er hægt að
tengja aukamyndavél á þrífæti sem getur skannað her-
bergið. Vélarnar eru með aðdráttarlinsu og sjálfvirkum
fókus. Einnig er hægt að vera með myndbandstæki tengt
við búnaðinn og taka fundinn upp eða senda upptekið efni
af spólu. Myndbandstækið getur þó ekki tekið upp mynd
nema af öðrum enda, nærenda eða fjærenda, í einu en
tekur upp allar samræður. Hægt er að bæta við þennan
búnað öðru sjónvarpstæki og myndvarpa sem sendir í tvö-
faldri upplausn. Jónas segir að enn sem komið er hafi fá
fyrirtæki fjárfest í slíkum búnaði, enda þarf hann ISDN
tengingu eða fasta einkatengingu sem leigð er af Pósti og
síma.
Jónas Sigurðsson og Friðrik Olgeir Júlíusson ræða við Ágúst
Victorsson í System 4000 en hann talar hins vegar í PCS 100.
Jónas nefnir nokkra möguleika myndsímans í gegnum
tölvuskjá eða sjónvarpstæki. Lækningatæki hafa verið
aðlöguð nýrri tækni og má nefna að maður getur farið í
læknisskoðun í Tromsö en sérfræðingur er að fylgjast
með sjúkdómsgeiningunni á sjúkrahúsinu sínu í Osló í
beinni útsendingu! í dómkerfinu er tæknin notuð við
yfirheyrslur fanga. Fanginn er yfirheyrður innan fangelsis-
múranna en dómari er staddur í dómshúsinu. í breska
þinginu reið einn þingmaður á vaðið fyrir ári og hefur nú
samskipti við kjósendur í sínu kjördæmi í gegnum mynd-
síma. Fundarmenn mæta á flokksskrifstofuna í kjördæm-
inu en þingmaðurinn er í Lundúnum. Það, sem að framan
er talið, er aðeins sýnishorn af ótölulegum notkunar-
möguleikum myndsímans.
Sjúkdómsgreining milli landshluta
Jónas segir að myndsími sé töluvert notaður erlendis af
ákveðnum fyrirtækjum og stofnunum. Sérhæfðir háskólar
hafi notað sjónvarpssímann sem kennslutæki. Fyrirlestur-
inn sé haldinn í einum háskóla en samtímis geti nemend-
ur annarra skóla, innanlands eða utan, verið þátttakendur
og gert fýrirspurnir. Þetta sé ólíkt sjónvarpi að því leyti að
sjónvarp virki bara í eina átt, frá útsendingarstað til áhorf-
enda, en myndsími er gagnvirkur.
Salo ProjcclioiK
Tveir í sama skjali
Annar búnaður frá PictureTel, sem fylgir PCS mynd-
símanum, er LiveShare. Það er skjalasamskiptabúnaður
sem gerir tveimur eða fleiri kleift að vinna í sama skjali
samtímis, að því gefnu að þeir séu að vinna í sama forrit-
inu. Jón í Reykjavík og Gunna á Akureyri geta unnið
sameiginlega að ályktun sem leggja á fram innan
nokkurra mínútna. Með myndtengingu geta þau séð
hvort annað á skjánum og talað sig saman um efnið.
„Sænska þingið notar slíka tengingu við þing
Evrópubandalagsins í Belgíu. Fulltrúar Svíþjóðar hjá
Evrópubandalaginu eru því í beinum samskiptum við
þingið í heimalandinu," segir Jónas. „Þetta fer rólega af
stað hjá okkur en landinn er þekktur fyrir að tileinka sér
nýjungar mjög hratt.“
LiveShare skjalasamsldptakerfið er hugbúnaður ætlaður
einmenningstölvum. Með slíkan búnað geta tveir eða fleiri
unnið í sama skjali samtímis.