Frjáls verslun - 01.02.1996, Blaðsíða 67
Einkasímstöðvar
Pósts og síma
Póstur og sími selur tvær gerðir af einkasímstöðvum,
annars vegar frá franska fyrirtækinu Alcatel og hins
vegar frá kanadíska fyrirtækinu Nortel. Þessar stöðvar
hafa verið á markaði hér undanfarin ár.
„Það verður hægt að fá Alcatel 4100 eða Nortel
Meridian 1 Option 11 uppfærðar fyrir Samnetið en báðar
þessar tegundir eiga kost á að fá ISDN tengingu með því
að skipta um ákveðinn vélbúnað og hugbúnað. Það er í
sjálfu sér mun ódýrara en að skipta um stöðina alla. Þessar
stöðvar, sem seldar eru í dag, er hægt að fá strax tilbúnar
með ISDN tengingu við almenna símakerfið. Yið höfum
þegar tengt eina símstöð með stofntengingu (30B+D) og
grunntengingu (2B+D). Kosturinn er sá að fyrirtækin
Alcatel einkasímstöðvamar em ætlaðar Samnetinu og bjóða einnig
upp á þráðlausa síma.
geta notað símstöðvarnar
fyrir gagnaflutning, talflutn-
ing og myndflutning í gegn-
um símstöðina. Þannig er
hægt að samnýta rásirnar
fyrir tal og tölvugögn,“ segir
Friðrik Olgeir Júlíusson,
tæknifræðingur hjá P&S.
Alcatel frá
Frakklandi
PietureTel Live PCS 100 er
myndsímabúnaður f\rir
einmenningstölvur.
ISDN-TÆKNIN
„Frönsku Alcatel stöðvarnar (4220) geta stærstar orðið
128 port og eru í raun ætlaðar millifyrirtækjum, með 50-60
notendum. Alcatel 4220 eru ISDN
samhæfðar og bjóða upp á allan nýjas-
ta búnað sem fáanlegur er í einkasím-
stöðvum i dag. Meðal annars bjóða
þær upp á DECT þráðlausar lausnir. Hönnun símtækjanna
er mjög skemmtileg og hægt að bjóða upp á marga
aðgengilega þjónustu í gegnum símtækin. Yið þessar
stöðvar er hægt að kaupa talhólf sem notað er fyrir kynn-
ingartexta þegar það er á tali eða símtöl í bið. Alcatel hefur
verið á markaði í rúm tíu ár og sannað gildi sitt. Mörg stór
fyrirtæki hafa Alcatel einkasímstöðvar sem eru uppfæran-
legar,“ segir Ágúst Victorsson, sölumaður símstöðva.
Nortel frá Kanada
„Nortel Meridian 1 Option 11 er ætluð stærri
fyrirtækjum með mikil síma- og gagnaumsvif, svo sem
bönkum og tryggingarfélögum. Þessar stöðvar eru
uppfæranlegar í ISDN. Þær geta orðið 400 port og síðan er
hægt að nettengja þær innbyrðis. Þær hafa líka innbyggð
þráðlaus sambönd. Þannig geta öll bankaútibúin verið
með samsvarandi símtöðvar en kerfið virkar eins og ein
heild gagnvart notandanum. Allar aðgerðir, eins og að
flytja síma og taka við skilaboðum á skjá, virka eins og þær
séu að koma í gegnum eina stöð. Happdrætti Háskóla
íslands er fyrsta fyrirtækið með Meridian sem uppfærir
stöðina inn í ISDN umhverfið, grunntengingu og stofn-
tengingu . Aðrir notendur hafa pantað uppfærslu inn í nýja
samnetskerfið. í þessar stöðvar er hægt að fá innbyggð
talhólfakerfi og það sem kallað er ACD, það er að segja
beina svörun. Símstöðin sér um að fyrsta borð, sem laust
er, fái kallið en það þýðir að biðtími viðskiptavinarins stytt-
ist og öllum er svarað í réttri röð,“ segir Agúst.
„Annar stór kostur þessarar stöðvar er að auðvelt er að
halda fjarfundi í gegnum tölvur eða sjónvarp innan stöðv-
arinnar. Forstjóri fyrirtækisins gæti til dæmis fundað
reglulega rtieð ákveðnum starfsmönnum útibúa í gegnum
sjónvarp, án þess að fara af sinni skrifstofu. Slíkir fundir
eru haldnir á innanhússsambandi símstöðvarinnar, án
skrefagjalda,“ segir Friðrik Olgeir.
PÓSTUR OG SÍMI
67