Frjáls verslun - 01.02.1996, Qupperneq 68
Einar H. Reynis, rafeindavirkjameistari hjá Pósti og
síma, um Samnet símans:
„Símaþjónustan tekur mikið framfaraskref með opnun
Samnetsins. Með Samnetinu eru tengingar stafrænar sem
þýðir miklu fleiri möguleika en áður. Ymis nýr notenda-
búnaður verður fáanlegur og annar tekur miklum breyt-
ingum, eins og til að mynda símtæki. Samnetið er hluti af
áratugalangri þróun símkerfisins og notar sömu símalínur
og áður,“ segir Einar H. Reynis, rafeindavirkjameistari hjá
Pósti og síma.
ISDN kerfið hefur fengið íslenska heitið Samnet. Á
Samnetið er hægt að raða símum, tölvum, faxtækjum og
fleiru.
Einn möguleiki er samtenging tölvu og símans.
Hugsum okkur fyrirtæki í þjónustu, sem er með ákveðinn
hóp viðskiptavina, til dæmis pizzastað. Um leið og við-
skiptavinurinn hringir inn nemur samnetssíminn úr
hvaða númeri hann hringir. Þessi viðskiptamaður er
skráður undir nafni og símanúmeri hjá pizzastaðnum og
þegar síminn skynjar númerið sendir hann boð til tölvunn-
ar um að fletta viðkomandi upp. Þegar afgreiðslumaðurinn
svarar símanum birtast upplýsingar á skjá fyrir framan
hann. Jói í afgreiðslunni sér að Gunnar er vanur að kaupa
12” pizzu með pepperoni og sveppum, nánast vikulega.
„Þetta er mjög einfaldað form á þessum tölvuviðskiptum
til þess að sem flestir geri sér grein fyrir möguleikunum.
Dæmið gætí verið um bókasafn, vídeóleigu, hótel eða
hvað annað það fyrirtæki sem hefur upplýsingar um
viðskiptamenn," segir Einar. Allt þetta er mögulegt að því
gefnu að viðskiptamaðurinn se að hringja úr því númeri
sem hann er skráður fyrir hjá fyrirtækinu, en ekki úr síma
Gunnu frænku í Hraunbænum. Viðskiptavinurinn getur
verið skráður undir mörgum númerum, bílasímanum,
heimasímanum og símanum á vinnustað.
Samræmdur búnaður
Einar segir að allur samnetsbúnaður verði að standast
Evrópustaðla. Sé notaður samnetssímabúnaður í Grikk-
68