Frjáls verslun - 01.02.1996, Page 72
Starfsmenn
Gagnaflutninga/Opinna
kerfa leggja áherslu
á ráðgjöf.
Frá vinstri:
Benedikt Gröndal, Jóhann
Friðrik Kristjánsson,
Heimir Sigurðsson og
Hans Pétur Jónsson.
Opin kerfi hf. (Hewlett Packard umboðið á íslandi)
hafa ákveðið að leggja sérstaka áherslu á lausnir á
sviði tölvusamskipta. Þessi hluti starfsemi Opinna kerfa
hf. verður undir einum hatti í deild sem hlotið hefur nafnið
Gagnaflutningar. Starf þetta leiða Heimir Sigurðsson og
Benedikt Gröndal en einnig koma að málinu aðrir starfs-
menn Opinna kerfa hf. sem hafa áralanga reynslu við
lausn flókinna verkefna. Á síðustu mánuðum hefur verið
unnið við að skoða ýmis sóknarfæri og ber hæst lausnir
fýrir hina nýju Samnets (ISDN) þjónustu Pósts og síma.
Einnig má geta til gamans að Gagnaflutningar/Opin kerfi
hf. hafa sett upp þráðlaus mótöld innanbæjar en einnig
milli Reykjavíkur og Akraness. Samnetið leikur stórt
hlutverk í þessum uppsetningum sem varaleið ef samband
fellur niður.
„Gagnaflutningar/Opin kerfi hf. eru í samvinnu við
nokkur fyrirtæki á sviði ISDN lausna. Búnaður frá þessum
fýrirtækjum skarast að einhverju leyti en við viljum leggja
áherslu á að bjóða okkar viðskiptavinum heildarlausnir
sem henta fyrirtækjunum. Utgangspunktur okkar er
ráðgjöf, þar sem farið er í gegnum þarfir fýrirtækjanna, og
síðan er valinn búnaður sem hentar,“ segir Heimir
Sigurðsson.
Gagnaflutningar/Opin kerfi hf. hófu undirbúning að því
að bjóða lausnir fyrir Samnetið með því að senda menn á
námskeið auk þess að haldið var námskeið fýrir viðskipta-
vini. Fyrirtækið var í hópi þeirra fýrstu sem fengu prófun-
arlínur frá Pósti og síma og hafa starfsmenn prófað búnað
frá samstarfsaðilum eins og Cisco Systems, Ascend,
Combinet og fleirum. Tengdar hafa verið einstakar ein-
menningstölvur við miðlægan búnað en einnig hafa verið
prófaðar samtengingar neta. Fyrirtækið hefur einnig flutt
inn samnetssíma og netmarkabúnað fýrir Samnetið.
„Mikilvægt er að bera saman þá möguleika sem
fýrirtækjunum bjóðast á sviði tölvusamskipta," segir
Heimir. „í dag standa til boða a.m.k. þrír möguleikar fyrir
almenn tölvu(net)samskipti, það er leigulína, Háhraðanet
Pósts og síma og Samnetið. Mikilvægt er að gera sér grein
Möguleikarnir bornir saman
72