Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 80
FOLK
LEIFUR STEINN ELÍASSON, VISA
Leifur Steinn Elíasson, aðstoðarframkvæmdastjóri
VISA ísland. Hann er menntaður hagfræðingur frá
Lunds Universitet í Svíþjóð. Hann er fæddur og uppalinn
í Búðardal.
Qyrirtækið hefur vax-
ið mjög hratt á liðn-
um árum. Þegar ég
hóf hér störf 10. desember
1986 urðu starfsmenn þar
með fimmtán talsins en nú
eru þeir um sextíu. Fyrir-
tækið hefur á sama tíma
vaxið verulega að öðru leyti
og eru gild VISA greiðslu-
kort nú talsvert á þriðja
hundrað þúsund, yfir eitt
hundrað þúsund kreditkort
og annað eins af debetkort-
um. Það er mjög fátítt í
heiminum að markaðshlut-
deild VISA í einu landi sé
jafn mikil og hérlendis, eða
um 76%“ segir Leifur
Steinn Ehasson, aðstoðar-
framkvæmdastjóri VISA-
ísland Greiðslumiðlunar hf.
Leifur Steinn er, auk þess
að vera staðgengill fram-
kvæmdastjóra, forstöðu-
maður stjórnsýslusviðs
fyrirtækisins og hefur um-
sjón með daglegum rekstri.
Til sérverkefna teljast m.a.
öll fiármál og starfsmanna-
hald.
VISA byrjaði á íslandi
sem deild í Landsbankanum
1981 en VISA ísland var
stofnað af nokkrum bönkum
og sparisjóðum árið 1983. í
byrjun var þjónustan ein-
faldari, eingöngu voru gefin
út almenn greiðslukort og
gerðir samningar við sölu-
og þjónustuaðila um mót-
töku VISA. Nú eru gefnar út
fimm tegundir kreditkorta:
Gullkort, Farkort, Almenn
kort og viðskiptakort í silfri
og gulli, auk VISA-Electron
debetkorta. Nær öll við-
skipti eru orðin rafræn og
séríslenskar þjónustugrein-
ar, eins og raðgreiðslur,
boðgreiðslur og „Alefli“,
þar sem korthafar geta
fyrirhafnarlaust flutt fé af
korti sínu tO góðra mála, eru
mjög vinsælar. VISA ísland
er nú í eigu bankanna þriggja
og langflestra sparisjóða
landsins.
Leifur Steinn er mennt-
aður hagfræðingur frá
Lunds Universitet í Svíþjóð.
Um skeið vann hann hjá
tölvufyrirtæki og kenndi á
tölvusviði.
Leifur Steinn fæddist í
Búðardal árið 1951. „Ég ólst
upp í Dölunum hjá góðum
foreldrum. Ég fór í heima-
vistarskóla að Laugum sem
ungur drengur og síðan í
heimavist að Reykjum í
Hrútafirði þar sem ég lauk
landsprófi. Þaðan lá leiðin í
Menntaskólann að Laugar-
vatni og stúdentsprófi lauk
ég 1971.“
Haustið 1971, þegar hann
flutti til Reykjavíkur, keypti
hann sér litla íbúð. Fljótlega
stofnaði hann heimili með
eiginkonunni, Sveinbjörgu
Júhu Svavarsdóttur, og
fyrsta barnið kom í heiminn.
Um skeið stundaði hann
nám í viðskiptafræði í HÍ en
hvarf frá því, enda bættust
húsbygging og aukin vinna
við. Þá tóku þau hjón sig upp
og héldu til Svíþjóðar þar
sem þau dvöldu frá 1976 til
1981. „Það var ákaflega gott
að búa og nema í Lundi. Ég
bjó að veru minni í HÍ og
sóttist námið vel.“ Svein-
björg Júh'a hóf nám við há-
skólann í Lundi og lauk
seinna BA-prófi og starfs-
réttindanámi í félagsráðgjöf
frá Háskóla íslands. Hún
starfar nú sem félagsráð-
gjafi við geðdeild Landspít-
alans.
Börnin þeirra hjóna eru
fjögur á öllum skólastigum.
Það yngsta, 5 ára telpa, í
leikskóla, þá 7 ára drengur í
grunnskóla, 16 ára stúlka í
menntaskóla og frumburð-
urhin, tvítug stúlka, við nám
í Háskóla íslands.
„Tómstundir okkar taka
verulega mið af fjölskyldu-
stærð og aldursdreifingu.
Við búum í Ártúnsholtinu og
þaðan er stutt í gönguleiðir
um Elhðaárdal. Þá erum við
tíðir gestir sundstaða. Við
eigum h'tið sumarhús fyrir
austan fjall og þangað förum
við oft til hvíldar. Stundum
með öll bömin fjögur og
stundum aðeins með þau
tvö yngstu. Dalina sækjum
við einnig oft heim. Ég er
einn af stofnendum Rótar-
ýklúbbs Árbæjar og tek
virkan þátt í starfinu," segir
Leifur Steinn. „Sem
menntaskólapiltur var ég
leiðsögumaður á sumrin við
Laxá í Dölum. Þar kynntist
ég meðal annars Neil Arm-
strong geimfara, sem fyrst-
ur manna kom til tunglsins,
og Jessicu Lange, leikkonu í
Hollywood. En ég kynntist
líka laxveiðinni og við hjónin
höfum það fyrir reglu að fara
til veiða á hveiju sumri.
TEXTI: JÓHANNA Á.H. JÓHANNSDÓTTIR MYNDIR: BRAGI P. JÓSEFSSON
80