Frjáls verslun - 01.02.1996, Side 81
FOLK
ÓLAFUR NIÁLL SIGURDSSON,
ALÞJÓÐA LÍFTRYGGINGARFÉLAGINU
„Konur eru móttækilegri en karlar fyrir rökum á bak við
tryggingar fyrir fjölskylduna,“ segir Ólafur Njáll Sig-
urðsson, forstjóri Alþjóða líftryggingarfélagsins.
Iþjóða líftryggingar-
félagið hefur nýverið
kynnt nýja trygg-
ingu, svokallaða sjúkdó-
matryggingu. Tryggingar-
taki fær greiðslu við grein-
ingu á alvarlegum sjúkdómi,
svo sem krabbameini eða
hjartasjúkdómi, sem hefur
veruleg áhrif á afkomu
hans,“ segir Ólafur Njáll
Sigurðsson, forstjóri Al-
þjóða líftryggingarfélagsins.
Fyrirfram velur tryggingar-
takinn bótafjárhæð sem
honum hentar, greiðir af
henni iðgjald og ef hann
greinist með einhvem þann
sjúkdóm, sem tryggingin
tekur til, fær hann bótafjár-
hæðina greidda og ráðstafar
henni að eigin vild. Trygg-
ingunni er ætlað að milda hið
ijárhagslega áfall sem íjöl-
skyldan verður fyrir þegar
alvarlegur sjúkdómur gerir
vart við sig.
Alþjóða líftryggingarfé-
lagið hefur starfað hérlendis
í þrjátíu ár. Ólafur Njáll tók
við starfi forstjóra í byrjun
árs 1990. Hann segir að
starfið sé mjög fjölbreytt
þar sem í fyrirtækinu sé
fremur fámennt. Hans aðal-
starf er fjárfestingar félags-
ins, fjárreiður og bókhald og
samskipti við starfsmenn og
viðskiptamenn. Starfsmenn
eru um 13 en þeim hefur
ekki fjölgað að ráði þrátt
fyrir meiri fjármálaumsvif.
Fyrirtækið sérhæfir sig í
líftryggingum og öðrum
persónutryggingum. Al-
þjóða líftryggingarfélagið er
með um 20% markaðshlut-
deild á íslandi, að sögn Ólafs
Njáls.
VIÐSKIPTAVINIRNIR ERU
FÓLKIÐ í LANDINU
„Viðskiptavinir okkar em
fólkið í landinu. Flestir gera
sér grein fyrir að þeir em
fremur illa settir þegar sjúk-
dóma eða andlát ber að
höndum. Almannatrygg-
ingakerfið er fremur veikt
og lífeyrissjóðir misöflugir,"
segir Ólafur Njáll. „Þegar
minnst er á tryggingarþarfir
við viðskiptavini finna þeir
fljótt hve illa þeir era
tryggðir án sérstakra sjúk-
dóma- eða líftrygginga. Það
er afgerandi hvað konum
hefur fjölgað sem trygging-
artökum. Áður var trygg-
ingin aðeins fyrir eigin-
manninn, fýrirvinnuna, en
nú era 90% tryggingartaka
hjón. Það gefur augaleið að
hag heimilisins þarf að
tryggja, hvort sem konan
vinnur utan eða innan heim-
ilis. Konur eru líka móttæki-
legri fyrir rökum á bak við
tryggingar fyrir fjölskylduna
af því þær vita að heimilið er
undirstaðan en ekki vinn-
an.“
Ólafur Njáll er viðskipta-
fræðingur að mennt. Með
námi vann hann hjá Eim-
skip, hálfan daginn á vet-
uma og fulla vinnu á sumrin.
Að loknu námi í viðskipta-
deild fór hann í fullt starf hjá
fyrirtækinu, fyrst sem bók-
ari, þá í tölvudeild og loks
sem aðalbókari. Hann söðl-
aði um árið 1987 þegar hann
fór á útvarpsstöðina Bylgj-
una þar sem hann var fjár-
málastjóri og síðar stjómar-
maður. Þaðan lá leið hans til
Alþjóða líftryggingarfélags-
ins. Hann segir að rekstur
Alþjóða líftrygginarfélagsins
hafi gengið vel hin síðustu
ár.
SKÆÐ JEPPADELLA
Ólafur er kvæntur Bimu
Bergsdóttur hjúkranar-
fræðingi. Þau eiga þrjú
böm; elst er Signý, 12 ára,
þá Kristín, 7 ára, ogyngstur
er Daníel sem er 2ja ára.
„Ég er mikill útivistar-
maður,“ segir Ólafur Njáll
þegar hann er spurður um
áhugamál. Að eigin sögn er
hann með jeppadellu, vél-
sleðadellu og dellu fyrir
stang- og skotveiði.
„Ég fer mikið á skíði, að-
allega með dætrum mínum
sem æfa skíðaíþróttina. Ég
hef lítið farið í jeppaferðir í
vetur, enda hefur ekki viðr-
að vel til íjallaferða vegna
snjóleysis."
Ólafur Njáll fer oft inn í
Landmannalaugar og Jökul-
heima á þessum vetrarferð-
um sínum.
„Landmannalaugar er dá-
samlegur staður. Snjórinn
er hreinn og hvítur en inn á
milli skera líparítfjöllin sig
úr. Ferðalag þangað getur
verið erfitt en hin andlega
hvfld er mikil þegar á stað-
inn er komið. Útivist fylgir
góður félagsskapur og
gjaman við menn sem ég
hef annars engin samskipti
við. Á íjöllum era allir jaftiir
og menn verða að treysta á
félaga sína,“ segir Ölafur
Njáll.
81