Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Qupperneq 6

Frjáls verslun - 01.11.1996, Qupperneq 6
RITSTJORN ARGREIN LÆRUM AF HONUM! Skólaganga Aðalsteins Jónssonar, sem Frjáls verslun hefur útnefnt sem mann ársins 1996 í ís- lensku viðskiptalífi, var af skomum skammti. Hún hófst þegar hann var í kringum 10 ára aldurinn og lauk eftir fermingu. Það var allt og sumt. Engu að síður geta íslendingar og íslenskir nemendur lært margt af honum. Þeir geta séð hvað eldmóður og áhugi — kjarkur og þor — drífa menn langt áfram. Aðalsteinn Jónsson stendur upp úr meðalmennsk- unni og einkunnir hans í atvinnu- rekstri þola vel að vera birtar. Nýverið fengu íslensk börn á bauk- inn þegar ljós kom að þau standa ekki jafnöldrum sínum erlendis að sporði í kunnáttu í raungreinum. Þessi fall- einkunn var örugglega einn versti skellurinn sem íslenskt þjóðarstolt varð fyrir á árinu 1996. Þegar var leit- að logandi Ijósi að einhverjum söku- dólg. Skuldinni var skellt á skólakerfið. Nefnt var að laun kennara væm það lág að þau ýttu fólki frá kennslu. Sömuleiðis var fullyrt að lítil rækt væri lögð við góða nemendur — að allt miðaðist þess í stað við meðalmennskuna; — að ýta undir þá slöku! íslensk æska rís aldrei upp úr meðalmennskunni nema hún rækti með sér eldmóð og áhuga á náminu. Það getur enginn haft áhuga fyrir hana. Áhugi kem- ur að innan. En hins vegar er hægt að vekja upp áhuga. Það verður best gert með því að verðlauna góðan árangur — verðlauna þá sem skara fram úr, standa upp úr. Nám er fýrst og fremst vinna — vinna nemend- anna sjálfra. Það, að íslensk æska hefur fengið á baukinn í kunnáttu í raungreinum, segir aðeins eitt: fslensk börn leggja ekki eins hart að sér í námi og jafnaldrar þeirra erlendis. Þau vinna ekki eins mikið. Þau skortir áhuga á náminu. Um leið og áhuginn á að skara fram úr, vinna meira, leggja harðar að sér, standa sig, uppsker íslensk æska hærri einkunnir á alþjóðlegum vettvangi. Fólk upp- sker eins og það sáir! Aðalsteinn Jónsson hefur með dugn- aði og áhuga á að standa sig uppskorið laun erfiðis síns. Hann er af fátæku fólki og missti föður sinn þegar hann var aðeins 6 ára. Hann er næstyngstur sex systkina. Aðeins 10 ára var hann farinn að hjálpa móður sinni og bræðr- um við að draga björg í bú. Hann sá aldrei pening fyrir vinnu sína fýrr en hann varð 15 ára. Það rann allt til heimilisins. Æskan mótaði hann — og agaði hann — en gaf honum í leiðinni von. Það er hægt að klífa tinda ef menn hafa áhuga á því. Áhugi og eldmóður Aðalsteins birtist í því að hann vill ætíð gera meira og gera betur — stækka og breyta. Framkvæma. Hann segir sjálfur að það sé ekkert gaman þegar hlutirnir standa í stað. Hann bætir við að sér finnist fyrst og fremst gaman að líta út um gluggann og sjá árangur erfiðis síns, sjá hvað hann hafi átt þátt í að byggja upp. Tindurinn blasir við úr stofuglugga Aðalsteins Jónssonar — Hólmatindurinn. Þennan tind klauf hann í æsku án þess að blása úr nös. En hann hefði aldrei komist á tindinn í íslensku atvinnulífi án þess að leggja hart að sér. Til þess þurfti hann bæði áhuga og vilja til að skara fram úr. íslensk æska í meðalmennsku getur lært margt af honum. Við get- um öll lært af honum! Jón G. Hauksson :J fim'j =1 ' ISSN 1017-3544 Stofnuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál — 57. árgangur RITSTJÓRI 0G ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson — AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir — LJÓSMYNDARI: Bragi Þ. Jósefsson — ÚTGEFANDI: Talnakönnun hf. — SKRIFSTOFA OG AFGREIÐSLA: Borgartún 23, 105 Reykjavík, sími 561-7575, fax 561-8646 — RITSTJÓRN: Sími 561-7575. — AUGLÝSINGAR: Sími 561-7575 — ÁSKRIFTARVERÐ: 3.315 kr. fyrir 6.-U. tbl., þar af bókin 100 stærstu 995 kr. -10% lægra áskriftarverð ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 699 kr. — DREIFING í bókaverslanir og sölutuma á Stór-Reykjavíkursvæðinu annast fyrirtækið Sala og dreifing, sími GSM 89-23334. SETNING, GRAFÍK, TÖLVUUMBROT, PRENTUN OG BÓKBAND: Prentsmiðjan Grafík hf. - LITGREININGAR: Prentmyndastofan hf. — Öll réttindi áskilin varðandi efni og myndir. 6
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.