Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Qupperneq 36

Frjáls verslun - 01.11.1996, Qupperneq 36
Finnur Ingólfsson, viðskipta- og iðnaðarráðherra. Hver verða helstu forgangsverkefni iðnaðar- og viðskiptaráðherra á ár- inu ’97? Það er af mörgu að taka en trúlega verða formbreyting ríkisviðskipta- bankanna og sameining fjárfestingar- lánasjóðanna fyrirferðamest í við- skiptaráðuneytinu. í iðnaðarráðu- neytinu verða það skipulagsbreyting- ar í orkumálum, áframhaldandi vinna við að treysta rekstrargrundvöll lítilla og meðalstórra fyrirtækja svo og vinna við að laða að aukna erlenda fjárfestingu sem verða í fyrirrúmi. Markmiðið með vinnunni í báðum ráðuneytum er að jafna og treysta samkeppnisstöðu íslenskra fyrir- tækja, auka hagvöxt, fjölga störfum og þar með að bæta hag fyrirtækja og fjölskyldna í landinu. Hvað varstu ánægðastur með sem iðnaðar- og viðskiparáðherra á ár- inu ’96? Ótal margt en sem dæmi: vöxt í starfsemi lítilla og meðalstórra fyrir- tækja, glögg áhrif erlendrar fjárfest- ingar á efnahagslffið, umsvif íslenskra fyrirtækja erlendis, aukna virkni hlutabréfamarkaðar, mikla grósku á fjármálamarkaði, nýir vaxtabroddar f iðnaði vekja gleði, s.s. íhugbúnaðar-, lyfja- og afþreyingariðnaði, störfum fjölgaði um 3000, vitund fólks um nauðsjm breytinga á lífeyrissjóða- kerfinu eykst og þannig mætti lengi telja. Hvað olli þér mestum vonbrigðum sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra á árinu ’96? Ætli ég verði ekki að nefna að ég hefði kosið að sjá marga hluti ganga hraðar t.d. að ljúka sameiningu fjár- festingarlánasjóðanna og að koma hér á fót nýsköpunarsjóði fyrir allt at- vinnulffið. Þá hefði ég líka viljað ljúka við rekstrarformbreytingu ríkisvið- skiptabankanna á þessu ári. Bæði málin eru hins vegar gríðarlega vandasöm og við höfum lagt á það ríka áherslu að vanda til verksins. Það er brýnna en að koma þeim fram á árinu. Hvert var helsta afrek ríkisstjómarinnar á ár- inu 1996 að þínu mati? Að takast skyldi að skapa aðstæður fyrir þá miklu uppsveiflu sem nú er í efnahags- og atvinnu- lffinu samhliða því að treysta stöðugleikann. Við minnkum fjárlagahall- ann umtalsvert, aukum erlenda fjárfestingu með stækkun álversins í Straumsvík, þúsundir nýrra starfa skapast, hag- vöxtur verður um 5,5%. Kaupmáttur eykst um meira en 4%, verðbólga helst í skefjum, úrræðum í húsnæðislánakerfinu hefur fjölgað og vanskil minnkað og þannig mætti áfram telja. Sá grunnur sem við lögðum með fjárlögum í fýrrahaust reynist traustur og tiltölu- lega góð sátt ríkur um áherslumar meðal þjóðarinnar, þótt alltaf megi gera betur, það er mér ljóst. Hvaða blikur sérðu helst á lofti í efnahagsmálum þjóðarinnar á ár- inu 1997? Ég tel að viss hætta sé fólgin í þeim þenslueinkennum sem tekin eru að birtast. Ríkisstjómin hefur ákveðið að bregðast við þeim með því að draga úr opinberum framkvæmdum á næsta ári og flytja yfir á árin 1999 og 2000. Það sem mun hins vegar ráða mestu um framvindu efnahags- og at- vinnumála á næstu árum er hvemig til tekst við gerð næstu kjarasamninga. Þeir samningar mega ekki leiða tií þess að verðbólga fari af stað og vext- ir haskki. Það þýddi auknar skuldir heimilanna en við því megum við alls ekki. Það verður að fara aðrar og skynsamlegri leiðir til að tryggja auk- inn kaupmátt launa. FINNUR 36
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.