Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.11.1996, Side 60

Frjáls verslun - 01.11.1996, Side 60
sem við tókum í notkun 1993. Þessar flugvélar eru mjög fullkomnar. Það þarf aðeins tvo flugmenn til að fljúga þeim og þær geta borið 100 tonn í 10 tíma flugi og flogið um 9000 km vega- lengd. Lufthansa og KLM höfðu pant- að svona vélar en hætt við. Jóhannes Einarsson verkfræðingur sá að þetta var mjög heppileg vél í vöruflutninga. Ég held að mér sé óhætt að fuUyrða að það hafi fyrst og fremst verið fyrir orð Jóhannesar að farið var að fram- leiða þessa flugvél til vöruflutninga. Þessi vél er að vísu til sem farþega- flugvél en vöruflutningavélin hefur aðeins öðruvísi vængi og bol. Við eignuðumst sem sagt fyrstu þrjár vél- amar og tókum þátt í að þróa breyt- Ert þú með lánshæfa hugmynd til eflingar atvinnulífi ? Við veitum góðri hugmynd brautargengi! Við veitum fúslega nánari upplýsingar um lán til atvinnuskapandi verkefna í öllum greinum. O LANASJOÐUR VESTUR - NORÐURLANDA ENGJATEIG 3 - PÓSTHÓLF 5410. 125 REYKJAVÍK SÍMI: 560 54 00 FAX: 588 29 04 ingar á þeim. Meðal þess sem var að vélinni var að það var erfitt að fljúga henni tómri. Jafnvægið var of aftar- lega. Égtókþáttí, ásamt tilraunaflug- manni Boeing verksmiðjanna, að at- huga þetta nánar. Sett var þung hleðsla aftarlega í vélina, sem mér leist nú ekki nema mátulega vel á. Ég treysti Jame Lesch, en svo hét til- raunaflugmaðurinn, fullkomlega. Þess má geta að faðir hans flaug sem tilraunaflugmaður fyrstu þotunni sem Boeing verksmiðjumar framleiddu. Við fórum sem sagt í loftið með þennan grip sem kostaði 150 miljónir dollara. Allt fór þetta vel og það má segja að allir vankantar hafi verið sniðnir af vélinni. Ég verð að segja það eins og er að 747-400 er mikill öndvegisgripur. Þess má geta að ég spurði Jame Lesch hvort þetta væri besta vél frá Boeing sem hann hefði flogið. „Nei,“ svaraði hann, „það er Boing 757, sú vél er gallalaus ef hægt er að tala um gallalausar flugvélar. Á þessum 25 ámm hafa orðið gífurlegar framfarir í fluginu. Þetta hefur verið hreint ævintýri." BÍLALEIGA ST0FNUÐ Eins og áður hefur komið fram stundaði Eyjólfur nám við Verslunar- skóla íslands. Það þarf því engan að undra að hugur hans hafi staðið til að stofna og reka eigið fyrirtæki. Gefum Eyjólfi orðið: „Árið 1985 stofnuðum við Sigurður Halldórsson og fjölskyld- ur okkar bílaleiguna Lux Viking sem síðar varð Budget. Ástæðan var sú að við ætluðum að skapa atvinnu fyrir fjölskyldur okkar, einkum eiginkon- urnar. Óhætt er að segja að hug- myndin hafi gengið upp. Við vorum með allt upp í 300 bíla. Mig minnir að það hafi verið árið 1988 sem við sótt- um 550 íslendinga heim og flugum með þá til Kölnar. Notuð var vél sem var í eigu flugfélagsins Lion Air sem Cargolux átti. Þarna afgreiddum við svo 129 bíla á 30 mín. Það voru heilmiklir snúningar við þennan rekstur og þegar ég varð yfir- flugstjóri hafði ég engan tíma til að standa í þessu, því miður. Það, sem gerði svo útslagið, var að við hjónin eignuðumst tvö börn með stuttu milli- bili, þannig að það varð ekki síður mikið um að vera hjá konunni. 60

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.