Frjáls verslun - 01.05.1998, Page 16
EKKI
UPP TIL
HANDA OG
FÓTA
Auðvitaö rjúka menn
ekki út á næstu feröa-
skrifstofu og panta ferð til ís-
lands eftir að hafa hlustað á Björk syn-
gja, heyrt talað um hana eða séð við-
tal við hana. Sitt er hvað kynning á
nafni lands eða sala á ferðum þangað.
Þar tekur ferðaþjónustan við. En hún
festir nafn íslands í undirmeðvitund
fólks og gerir eftirleikinn auðveldari fyr-
ir íslenska ferðaþjónustu.
Björk Guðmundsdóttír er þekktastí íslend-
ingurinn. Það kannast allir við hana þótt
þeir hlustí ekki á tónlist hennar. Hún
kemur nafni Islands stöðugt að í
heimspressunni - og auðveld-
ar þannig ferðaþjónustunni
að selja Islandsferðir.
Það er hins vegar Is-
land sjálft, náttúra
landsins og hreina
loftíð, sem dreg-
ur flesta ferða-
menn til lands-
ins.
/
Kynning Bjarkar á Islandi er tálin milljarda virði.
Hún kemur nafni landsins oft að í heimspressunni
og gerir ferðapjónustunni eftirleikinn auðveldari.
tla má að kynning Bjarkar Guðmundsdóttur söngkonu á íslandi sé virði millj-
arða króna ef kaupa hefði þurft allar kynningar hennar með dýrum auglýsing-
um í erlendum fjölmiðlum. Helstu ímyndarsérfræðingar landsins eru sömu-
leiðis á þeirri skoðun að dæmið um landkynningu Bjarkar verði vart reiknað til enda
fyrr en það sé komið í milljarða. Hún hefur komið landinu rækilega að í fjölmiðlum því
hún gætir þess ævinlega í viðtölum við blöð og sjónvarpsstöðvar að hún sé frá íslandi - og
nýlega valdi franskt tímarit hana sem eina af hundrað þekktustu Evrópubúunum. I popp-
heiminum er hún orðin jafnfræg og Madonna. I nokkrum myndbanda Bjarkar bregður
hún upp myndum úr íslenskri náttúru; því afli sem dregur flesta erlenda gesti til landsins.
Auðvitað rjúka menn ekki út á næstu ferðaskrifstofu og panta ferð til Islands eftir að hafa
hlustað á Björk syngja, heyrt talað um hana eða séð viðtal við hana. Sitt er hvað kynning
á nafni lands eða sala á ferðum þangað. Þar tekur ferðaþjónustan við. En hún festir nafn
Islands í undirmeðvitund fólks og gerir eftirleikinn auðveldari fyrir íslenska ferðaþjón-
ustu; að selja landið sem góða vöru, land friðsældar og fallegrar náttúru, land sérstakrar
menningar. Ennfremur hefur hún á undanförnum árum vakið áhuga hundruð blaða-
16