Frjáls verslun - 01.01.1999, Page 82
Þorvaldur Gylfason, prófessor í hagfræói við Háskóla Islands. Að beiðni Frjálsrar verslunar
hefur hann valið tíu merkustu áfangana t verslunarsögu Islendinga síðustu sextíu árin - eða
frá því Frjáls verslun kom fyrst út. Hann nefnir þá Tíu vörður á vegi.
FV-mynd: Kristín Bogadóttir.
Tíu vörður á vegi
Þorvaldur Gylfason hagfrædiþrófessor velur kér
tíu merkustu áfangana í hagsögu íslendinga síöustu
60 árin - eöa frá því Frjáls verslun kom fyrst út í
janúar 1939.
yllidaga notar maður til þess að
horfa um öxl og áfram veginn inn
í ókomna tíð. Verzlunarsagan er
svo samofin sögu íslands síðustu hálfa
aðra öld, allar götur síðan Jón Sigurðsson
hóf viðskiptafrelsismerkið hátt á loft árið
1843, að sextugsafmæli Frjálsrar verzlunar
um þessar mundir veitir okkur verðugt til-
efni til að minnast nokkurra mikilvægra
áfanga á langri leið. Við skulum stikla á
stóru.
TÆKNIBYLTINGiN í STRÍÐINU
Hervernd Breta og síðan Bandaríkja-
manna og annarra bandamanna á stríðsár-
unum 1941-1945 vakti heitar tilfinningar,
svo sem vonlegt var, en verkþekkingin,
sem flæddi inn yfir landið með hinum er-
lendu herjum, gerbreytti lífsskilyrðum
þjóðarinnar til frambúðar og batnaðar.
Þessi nánast óvelkomni innflutningur á
verkþekkingu markaði þáttaskil og reynd-
ist þjóðinni, þegar upp var staðið, trúlega
meira virði en allur stríðsgróðinn, sem
streymdi inn í landið um leið, enda var
honum nánast öllum eytt á örskömmum
tíma svo að stuttu eftir stríðslokin var efna-
hagslífið í landinu aftur komið í kaldakol af
völdum vondrar hagstjórnar. Verzlunar-
höftin voru enn í algleymingi.
MILLILANDAFLUG
Stuttu eftir stríðslokin 1945 hófust flug-
samgöngur milli Islands og annarra landa
tyrir frumkvæði nokkurra áræðinna ein-
staklinga og sköpuðu skilyrði til miklu
nánari tengsla Islendinga við aðrar þjóðir
en skipaferðir höíðu leyftfram að því. Flug-
félag Islands var stofnað (í þriðja sinn) árið
1937 og hóf áætlunarflug til Skotlands og
Danmerkur 1946. Loftleiðir hófu starfsemi
sína 1944 og áætlunarferðir til Bretlands,
Frakklands og Norðurlanda 1947 og síðan
til Lúxemborgar og Bandaríkjanna 1955.
Flugfélagið keypti fyrstu þotuna 1967 og
félögin tvö sameinuðust siðan í Flugleið-
um 1973. Millilandaflugið var forsenda
þess að Islendingar gætu átt viðunandi við-
skipti í nógu stórum stíl við aðrar þjóðir.
Spánarferðirnar á 7. áratugnum voru ann-
ar merkur áfangi á þessari löngu leið: Þær
víkkuðu sjóndeildarhring íslendinga og
flýttu framförum okkar með því móti á
ýmsa lund.
VIÐREISNARSTJÓRNIN
Árin 1950-1960 voru Islendingum ekki
hagstæð þótt umheimurinn væri í efna-
hagsuppsveiflu að lokinni síðari heims-
styrjöldinni og fijálslegir hagstjórnarhætt-
ir ryddu sér til rúms í Evrópu á rústum
stríðsins. Höft og skömmtun höfðu rist
djúp sár í íslenzkt efnahagslíf allar götur
síðan um 1930, en stjórnmálaflokkarnir
réðu ekki fram úr vandanum. Haltur leiddi
blindan. Kveikjan að viðreisninni kom að
utan. A flokksþingi sínu árið 1956 ákváðu
þýzkir jafnaðarmenn að venda kvæði sínu í
kross og taka upp félagslega sinnaða
markaðsbúskaparstefnu í stað þeirrar
þjóðnýtingar- og ríkisbúskaparstefnu sem
þeir höfðu fylgt fram að því. Þannig stóð á
þvi, að Alþýðuflokkurinn gekk til sam-
starfs við Sjálfstæðisflokkinn 1959 um ger-
breytingu á þeim úr sér gengnu hagstjórn-
arháttum sem allir flokkar landsins í ýms-
um hlutföllum höfðu aðhyllzt og ástundað
um þriggja áratuga skeið. An þessara
sinnaskipta heföi vitleysan trúlega haldið
áfram í mörg ár enn. Viðreisnarstjórnin
aflétti strax ýmsum þrúgandi höftum og
hömlum af utanríkisverzluninni, felldi
gengi krónunnar og stuðlaði með því móti
að stórauknum viðskiptum við útlönd. En
hún skildi verðlagningu sjávarafurða, land-
búnaðinn og bankakerfið eftir í viðjum rík-
iseinokunar og miðstýringar og náði því
miklu minni varanlegum árangri í etha-
hagsmálum en hún heföi ella getað náð.
Erlend viðskipti íslendinga eru til að
mynda engu meiri nú miðað við landsfram-
leiðslu en þau voru fyrir viðreisn.
STÓRIÐJA
Um miðjan 7. áratuginn komst lang-
þráður skriður á virkjun fossa og fallvatna
og stóriðju í tengslum við virkjanirnar, en
hálfri öld of seint. Landsvirkjun var stofnuð
1965, Islenzka álfélagið (í eigu Svisslend-
inga) ári síðar, 1966, og Islenzka járn-
blendifélagið (í meirihlutaeigu Islendinga)
1975. Eftir það var gert hlé á stóriðjufram-
kvæmdum og virkjanir lentu á villigötum:
82