Frjáls verslun - 01.01.1999, Side 105
Þessir hressu menn stóðu að auglýsingaherferðinni. Frá vinstri: Sveinn Líndal hjá Góðu fólki,
Stefán Steinsen markaðs- og sölustjóri hjá Sól-Víking, Gary Wake og Jón Arnason hjá Góðu
fólki. FV-mynd: Geir Ólajsson.
En hverfum aftur til Danmerkur þar sem
verið er að kvikmynda Sören og Teis undir
stjórn Dags Kára Péturssonar leikstjóra
sem staddur var í Danmörku við nám. Jón
og Gary höfðu strax ákveðnar týpur í huga
við gerð textans og útlit auglýsinganna.
„Þetta urðu að vera týpískir, danskir bjór-
drykkjuverkamenn eða flutningabílstjórar,
týpur sem við íslendingar sjáum fyrir okkur
þegar við hugsum um danska bjórunnend-
ur. Engar pempíur, bisnessmenn eða feg-
urðardísir sem eru vanar að auglýsa dömu-
bindi, þvottefni eða snyrtivörur. Þetta áttu
að vera „no nonsense" karakterar sem eru
trúir skoðunum sínum. Engir aðrir gætu
betur sannfært íslendinga um gæði Thule
bjórsins en slíkir Danir. Við tökum nefni-
lega mark á Dönum þegar þeir tala um
bjór," segir Jón.
Með þessar lýsingar að leiðarljósi fann
Dagur Kári réttu persónurnar í hlutverkin, þá
Sören og Teis, sem reyndar eru báðir flutn-
ingabílstjórar. Annar flytur rusl en hinn hús-
gögn. Þeir höfðu aldrei leikið í sjónvarpi eða
bíómynd og reyndar aldrei hist. Þarna leynd-
ust tveir leikarar af guðs náð.
Markaðshlutdeildin jókst skyndilega
Hjá Góðu fólki hafði kviknað hugmynd
sem varð að skærum loga og Stefán segir
að ekki fari á milli mála að rétt ákvörðun
hafi verið tekin þegar ákveðið var að
hrinda auglýsingaherferðinni af stað. Hún
fór í loftið í byrjun október og í lok mánað-
arins hafði sala á Thule í ÁTVR farið 122%
fram úr áætlunum Sól-Víkings. Markaðs-
hlutdeild Thule var skyndilega komin í
8,75% úr 2,64% mánuðinn á undan. í nóv-
emberlok var markaðshlutdeild Thule kom-
in upp í 9.87% og 357% fram úr áætlun.
Söluáætlanir höfðu reyndar verið gerðar
fyrir tilkomu auglýsinganna og þótt des-
ember áætlunin sé alltaf í hærri kantinum
vegna mikillar bjórsölu fór salan samt sem
áður 51% fram úr áætlun og markaðshlut-
deild Thule í desember var 9,39%.
Janúar og febrúar eru lökustu bjórsölu-
mánuðir ársins. Þrátt fyrir það var salan í
janúar 232% yfir áætlun. Rétt er að taka
fram að áætlunin var gerð eftir að auglýs-
ingaherferðin hófst. „Þetta sýnir okkur að
við erum að brugga góðan bjór," segir
Stefán, „því það er ekki nóg að auglýs-
ingaherferð skili góðum árangri í upphafi,
aðeins góð vara getur tryggt áframhald-
andi vinsældir á markaðinum."
Að grípa tækifærið
Það, sem hægt er að læra af þessu, er
hversu mikilvægt er að vera vakandi fyrir
tímabundnum tækifærum og notfæra sér
þau. Thule herferðin er gott dæmi um slíkt
bæði fyrir auglýsandann og auglýsingastof-
una. Herferðin sýnirfyrst og fremst djörfung
auglýsandans og skjót viðbrögð til að nýta
sér þetta einstaka tækifæri sem gert hefur
Thule líklega að einum frægasta bjór á ís-
landi. Það er nánast ótrúlegt að aðeins hafi
tekið tvo mánuði að gjörbylta þeim harða
markaði sem bjórmarkaðurinn er. Hann
breyttist Thule mönnum í vil. Þökk sé Stef-
áni og hans mönnum sem tóku áhættuna á
því að það gæti virkilega gerst.
105