Frjáls verslun - 01.03.1999, Side 19
BAR MÁLIÐ EKKI UPP Á STJÓRNARFUNDUM
Athyglisvert er að Róbert ræddi við Jón Ingvarsson stjórnarformann í einkaviðræðum en bar ekki upp hugmyndir sinar skrillega á
stjórnarfundum sem ætia má að hefði verið öllu eðlilegra.
irtækið inn á nýjar brautir. Jaínframt tjáði hann honum hvaða
breytingar hann teldi að gera þyrfti á félaginu, eins og þá að gera
félagið alþjóðlegra, gera dótturfélögin úti ábyrgari fyrir rekstrinum
og leyfa þeim að skipta í stórauknum mæli beint við framleiðendur
hér heima og draga þannig úr miðstýringu og umsvifum SH-skrif-
stofunnar hér heima. Þessar viðræður Róberts við Jón báru Iítinn
árangur. Enda má spyija sig hvers vegna Jón hefði átt að hlaupa
upp til handa og fóta yfir þessum kvörtunum. Fyrirtækið hafði mót-
aða stefnu og það var stjórnarinnar að breyta og kúvenda; setja fýr-
irtækinu markmið. Á þessum tíma einbeitti stjórnin sér líka að þvi
að breyta félaginu í hlutafélag, en Róbert, Brynjólfur Bjarnason,
forstjóri Granda, og síðast en ekki síst Sigurður Einarsson hjá Isfé-
lagi Vestmannaeyja, voru helstu drifíjaðrir þeirrar breytingar en
helsti andstæðingur þeirra var Finnbogi Jónsson, þáverandi for-
stjóri Síldarvinnslunnar, og fleiri. Þar er sagt að mjög hafi reynt á
lempni og samningslipurð Jóns við að sætta ólík sjónarmið þannig
að allir gætu að lokum verið sáttir við svo umfangsmikla breytingu
á félaginu. Skrefið var síðan stigið til fulls í byijun síðasta árs, 12.
febrúar ‘98, þegar félagið var skráð á Verðbréfaþingi Islands. Lang-
flestir telja hlutafélagaformið mikið heillaspor fyrir SH. Það sé á
hreinu hveijir eigi fyrirtækið, hægt sé að kaupa og selja hlutabréf
í því að vild - og hveijum beri að stýra því. Áður var SH samlag þar
sem eignarhluta framleiðenda var ekki hægt að innleysa.
Athyglisvert er að Róbert ræddi við Jón Ingvarsson stjórnarfor-
mann í einkaviðræðum en bar ekki upp hugmyndir sínar skriflega
á stjórnarfundum sem ætla má að heíði verið öllu eðlilegra. Að vísu
hefðu skapast órói og titringur um þær og Róbert hugsanlega vilj-
að forðast slíkt. En það er sama; stjórnir fyrirtækja breyta fyrirtækj-
um. Þannig hefur hann sem stjórnarmaður í SH aldrei til dæmis
borið upp skriflega vantrauststillögu á Friðrik sem forsljóra. Ró-
bert hafði raunar ekki styrk fyrir slíkri tillögu fyrr en eftir sigur
sinn á síðasta aðalfundi og því hugsanlega metið það sem svo að
bera ekki upp jafn afgerandi tillögu nema afla henni fyrst nægilegs
fylgis. Og það gerði hann, markvisst.
Róbert Guðfinnsson, 42 ára Siglfirðingur, er höfuðpaurinn í bylting-
unni hjá SH ásamt Brynjólfi Bjarnasyni, forstjóra Granda.
Fléttan í valdataflinu Róbert hóf fyrir tveimur árum að styrkja
stöðu sína innan SH og byggði upp fléttu í valdataflinu sem endaði
með skák og máti á aðalfundinum 9. mars. Fléttan byggðist á að
sfyrkja miðborðið, stórauka hlut Þormóðs ramma - Sæbergs í SH,
og vinna hugmyndum Róberts jafnframt fylgis á meðal annarra
hluthafa. Fyrir tveimur árum átti Þormóður rammi - Sæberg um
7,6% hlut í SH. Fyrir nákvæmlega einu ári var hluturinn kominn í
10,6%. Stóra skrefið kom síðan sl. haust, nokkrum vikum fyrir
harðskeyttan vinnufund stjórnar SH í Borgarnesi, svonefndan
Borgarnesfund, er félagið keypti um 4,6% hlut Hraðfrystihúss
Eskifjarðar, Alla ríka, í SH. Þar með var hlutur Þormóðs ramma -
Sæbergs orðinn 15,2% í SH og á aðalfundinum á dögunum var
þessi hlutur kominn í tæp 15,7% og félagið komið upp fyrir Utgerð-
arfélagAkureyringa, 15,6%, sem stærsti hluthafinn í SH. Haft ereft-
ir Róbert að hann hafi sagt Jóni Ingvarssyni strax hver tilgangur-
inn væri með kaupunum á hlut Hraðfrystihúss Fskifjarðar, hvað
Það vakti óskipta athygli hvað Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Granda, og hans fólk lijá Granda unnu oþinskátt með Róbert á aðal-
fundi SH. Við hlið Róberts sitja þeir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs-
son, framkvœmdastjóri Faxamjóls, dótturfyrirtœkis Granda, og
Brynjólfur.
VÖLD í KRAFTI FJÁRMAGNS
Þormóður rammi - Sæberg hf. og Róbert hafa keypt viðbótarhlutafé i SH fyrir yfir 1,0 milljarð á sl. tveimur árum og eru með alis
um 1,5 milljarða bundna i SH. Það er 23% hlutur í SH. Það er mikið fé - og gefur að sjálfsögðu völd innan fyrirtækisins.
19