Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1999, Qupperneq 20

Frjáls verslun - 01.03.1999, Qupperneq 20
Friðrik Pálsson, fráfarandi forstjóri SH, er núna orðinn stjórnarfor- maður SIF. Hér er hann á aðalfundi SIF ásamt Olafi B. Ólafssyni, formanni Vinnuveitendasambandsins og stjórnarmanni í HB á Akra- nesi, og Þorsteini Pálssyni sjávarútvegsráðherra. hann væri að hugsa, hvað hann ætlaði að gera og að hverju hann stefndi; sem var að gera sig svo gildandi, svo sterkan, að á hann yrði að hlusta varðandi breytingar á SH - og jafnfiramt að Friðrik Pálsson yrði látinn hætta. Með öðrum orðum; hann ætlaði að ná sínu fram. I raun var Róbert að gefa Jóni merki um að líta svo á að valdatími Jóns væri senn á enda. Hefur keypt hlutafé fyrir 1 milljarð Engu að síður er haft eftir Ró- bert að á þessum tima hafi hann oft boðið Jóni að semja við sig um áframhaldandi stjórnarformennsku Jóns og tjáð honum hvað hann þyrfti að gera til að ná samningum við sig. Raunar mun Róbert hafa trúað því allt fram á laugardaginn 6. mars sl., helgina fyrir aðalfund- inn, að hann næði samningum við Jón um áframhaldandi stjórnar- formennsku Jóns - en með skilyrðum. Erfitt er að túlka þetta öðru- vísi en svo að Róbert hafi ætlað að gera Jón að eins konar strengja- brúðu sinni; hann yrði stjórnarformaður en að Róbert réði í raun og veru. Jón þekktist ekki boð Róberts! Erfitt er átta sig á öllu þessu tali um samninga við Jón um að hann yrði áfram starfandi stjórnarformaður - og leiddi fram róttækar breytingar sem hann hafði lýst sig andvígan - þegar horft er til þess hve mikinn kraft, metnað - og fé - Róbert lagði í að ná yfirhöndinni í SH. Hann hefur í gegnum Þormóð ramma - Sæberg hf. og fjárfestahóp sinn keypt viðbótarhlutafé í SH fyrir yfir 1,0 milljarð á sl. tveimur árum og er með alls um 1,7 milljarða bundna í SH en það er markaðsverð þess 23% hlutar sem þeir eiga í SH. Það er mik- ið fé. Og hverjum ætti Róbert að treysta betur en sjálfum sér til að ávaxta það!? I ljósi þessa er varla hægt að ætla honum annað en að allan þenn- an tíma hafi hann stefnt að því að setjast sjálfúr í stól stjórnarformannsins — eins og á varð raunin — eða þá að hann hafi ætlað sjálfum sér að verða næsti for- stjóri SH og því lagt svo ríka áherslu á að Friðriki yrði sagt upp. Átti JÓn að semja? Sú spurning vakn- ar óneitanlega hvort það hefði ekki getað verið klókt af hálfú Jóns og Friðriks að setjast niður með Róbert og semja við 20 Hvernig féllu alkvæðl 20 stærstu hluthata? hann um að þeir færu sjálfviljugir úr forystunni á næstu mánuðum, Jón eftir ár og Friðrik innan árs, og firra félagið þannig hinum mikla hvelli sem varð á aðalfundinum og brottrekstrinum sem á eftir fylgdi. Þeir gátu vart horft fram hjá því að Róbert, í gegnum Þormóð ramma - Sæberg, var búinn að stórauka hlut sinn í SH og vinna hugmyndum sínum jafnframt sterks fylgis á meðal helstu hluthafa, stórra og sterkra framleiðenda, innan SH. Það er líka ólíkt skemmtilegra og fágaðra að menn, sem unnið hafa saman um árabil, þótt ólíkar skoðanir hafi haft, nái saman um leiðarlok án uppþota og hávaða. En öfl tókust á og allt fram á þriðjudagsmorg- uninn 9. mars, aðalfundardaginn, töldu liðsmenn Jóns að hann myndi sigra Róbert í slagnum um stjórnarformanninn nokkuð ör- ugglega. Kannski má segja að í ljósi þess stöðumats hefði hann í raun ekki átt að þurfa að semja - en þá sáu menn heldur ekki fyrir að Róbert myndi kaupa 7% hlut HB á Akranesi í SH og breyttan hug Síldarvinnslunnar í Neskaupstað sem og ótvíræðan stuðning Guðmundar Kristjánssonar frá Rifi og Kristjáns G. Jóhannssonar hjá Gunnvöru á ísafirði við Róbert. A aðalfundinum varð hins veg- ar ljóst að þótt Róbert hefði náð kjöri til stjórnarformennskunnar með minnsta mun var hann engu að siður kominn með yfirburða- stöðu innan stjórnar SH - svo öflugur er meirihluti hans. Þrátt fyr- ir þann örugga meirihluta væri klókt hjá honum að leggja áherslu á að ná sem fyrst sáttum við aðra hluthafa og mynda einingu innan stjórnarinnar - hvort sem nokkur von er um slíkt eftir það sem á undan er gengið. Borgarnesfundurinn Uppi hafa verið vangaveltur um það hvort og hvenær Róbert, og hans liðsmenn með Brynjólf Bjarnason, for- stjóri Granda, í broddi fylkingar, hafi ákveðið að láta til skarar skriða og gera byltingu. Sennilega er enginn einn tímapunktur til í því. En með kaupum Þormóðs ramma - Sæbergs á hlut Hraðfrystí- húss Eskifjarðar, Alla ríka, var Róbert greinilega búinn að setja í fluggírinn. Hann var orðinn ögrandi. Þessi kaup munu t.d. mjög hafa farið fyrir brjóstið á Finnboga Jónssyni hjá Síldarvinnslunni og I Rakel Olsen hjá Sigurði Ágústssyni hf. Skömmu síðar, í september sl., var haldinn vinnufundur stjórnar í Borg- arnesi um stefnumörkun og fleiri mál. Þar lét Róbert tíl sín taka og kynntí hugmyndir sínar. Um þær urðu um- ræður og sitt sýndist hverjum — menn voru ekki á eitt sáttir. í ljósi þess hve ósammála menn voru var ákveðið að láta óháð ráðgjafafyrir- tæki gera úttekt á SH þannig að hægt væri að meta og leggja fram eitthvað sem allir gætu sæst og sam- einast um. Vilji var fyrir þvf hjá Jóni og Friðriki að erlent ráðgjafafyrir- tæki yrði fengið til verksins en Finnbogi Jónsson, þáverandi for- stjóri Síldarvinnslunnar og núver- andi forstjóri IS, Islenskra sjávaraf- I urða, stakk upp á því að Kaupþing gerði úttektína. Það varð úr. Það er einmitt þessi Kaupþings-skýrsla sem síðan hefúr komið nokkuð við sögu í umræðunni. Fullyrt er að drög að henni hafi gengið á milli Hlutaté % Natn Jón Róbert 15,65 7,00 | Þormóður rammi - Sæberg lomo Útgerðarfélag Akureyringa 15,58 Sigurður Ágústsson ehf. 8.°9 Haraldur Böðvarsson hf. 8.°° 15,58 8,09 1,00 „ 7,91 7,91 Grandihf. Kristján Guðmundsson 5-bd Síldarvinnslan hf. 5'40 Gunnvör hf. 4,27 5,53 j 5,40 4,27 Hraðfrystihúsið hf., Hnífsdal 4,20 O QQ Burðarás hf. 2,99 4,20 2,63 íshúsfélag ísfirðinga hf. 2,63 Lífevrissióður Austurlands 2,25 Hraðfrystihús Heliissands hf. 2,16 Skagstrendingur hf. 2,11 2,16 2,11 Lífeyrissjóðurinn Framsýn 1,39 Soffanías Cecilsson hf. 1 .°1 Hraðfrystihús Eskifjarðar hf. 0,92 i ífevrissióður Norðurlands 0,7^ 1,01 0,92 \ 0,74 Lífeyrissjóður verslunarm. 0,6 VÍB hf. - Sjóður 6 °'6 0,67 0,61 Áætlun Frjálsrar verslunar um hvernig 20 stœrstuhluthaf- ar!!rií SH greiddu atkvœði í stjórnarformannskjonnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.