Frjáls verslun - 01.03.1999, Qupperneq 21
nokkurra manna Róberts í kringum aðal-
fundinn. Það hefur komið Jóns-mönnum
spánskt fyrir sjónir því þegar fulltrúar
Kaupþings sýndu stjórnarmönnum í SH
drögin á tölvuskjá spurði Jón Ingvarsson,
sem pantaði skýrsluna upphaflega, hvort
hann gæti fengið drögin afhent. Honum var
meinað um það og sagt að þau væru aðeins
þarna til sýnis en ekki afhendingar — enda-
leg skýrsla yrði afhent síðar. Engu að síður
fóru þessi drög á flakk og orðið úr því
nokkur hvellur.
Nýtt hlutverk torstjóra SH Kaupþings-
skýrslan kemur meira við sögu því í frétta-
tilkynningu eftir stjórnarfundinn 19. mars,
þar sem Friðrik var sagt upp störfum, var
sagt að skýrslan hefði verið kynnt á fundin-
um. Það mun vera rangt. Sett mun hafa ver-
ið upp ein glæra úr þessari skýrslu og ann-
að ekki. Á þeirri glæru kemur raunar fram
að í úttekt sinni leggur Kaupþing afar mikla
áherslu á að forstjóri SH - en ekki stjórnar-
formaður SH eins og verið hefur til þessa -
verði stjórnarformaður í stóru dótturfyrir-
tækjunum í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Bæði Jón og Friðrik eru sagðir hafa verið
löngu tilbúnir í þá breytingu. En þar stóð
raunar hnífurinn ekki hvað síst í kúnni;
Magnús Gústafsson, forstjóri Coldwater í
Bandaríkjunum, og Agnar Friðriksson, for-
stjóri Icelandic Freezing Plants í Bretlandi,
sem unnið hafa náið með Róbert og
Brynjólfi í þessu máli, voru á móti því að fá
Friðrik yfir sig sem stjórnanda enda hafa
verið stirðleikar á milli hans og þeirra á
undanförnum árum. Friðrik mun hafa
gagnrýnt Magnús fyrir dýra skrifstofu
Coldwater og kostnaðarsama yfirstjórn og
lagt til að skrifstofuhúsnæðið, sem er á ein-
um dýrasta stað vestanhafs, yrði selt og fé
þannig losað til að ijárfesta annars staðar.
Þessu hefur verið afar illa tekið af hálfu Magnúsar. Þessi umræða
kom meðal annars upp þegar SH íhugaði kaupin á Gelmer i Frakk-
landi sem íslenskar sjávarafurðir keyptu svo raunar á endanum.
Auk þess hefur Friðrik verið ósáttur við afkomuna og umsvifin
vestanhafs miðað við hve miklar eignir eru þar bundar. Þá hefur
hann verið ósáttur við stjórnun Agnars á verksmiðjunni í Bretlandi
og rætt það við stjórnarmenn að segja honum upp. Margir spyrja
sig eflaust hvernig þeir Magnús og Agnar hafa á undanförnum
árum getað lent upp á kant við Friðrik, aðalforstjóra SH, og komist
upp með það. Skýringin er sú að samkvæmt núverandi skipuriti SH
heyra forstjórar dótturfyrirtækjanna erlendis undir stjórnir fyrir-
tækjanna en formaður þeirra í Bretlandi og Bandaríkjunum var Jón
Ingvarsson en ekki Friðrik. Friðrik var á hinn bóginn stjórnarfor-
maður í öðrum dótturiyrirtækjum SH. Þetta gerði það að verkum
að aðalforstjóri SH var ekki nægilega áhrifamikill í dótturfélögun-
um í Bretlandi og Bandaríkjunum og fyrir vikið gátu þeir maldað í
móinn við hann. Coldwater verksmiðjan í Bandaríkjunum er til
FORSÍÐUGREIN
dæmis með um 66% af öllu eigin fé Sölu-
miðstöðvarinnar, iyrst og fremst fasteignir,
og í öllu tali um arðsemi eiginfjár SH hlýtur
stærsti hluti hagnaðar SH að þurfa að verða
til í Bandaríkjunum. Svo hefur ekki verið.
Nýr aðalforstjóri SH mun fá ótvíræð völd í
dótturfélögunum sem stjórnarformaður
þeirra og þvi er vissulega freistandi að
spyrja sig að því hvers vegna Róbert Guð-
finnsson setjist ekki sjálfúr í forstjórastól
SH og keyri breytingar sínar í gegn!?
Full heilindi Granda? Nánasti liðsmaður
Róberts í byltingunni í SH var Brynjólfur
Bjarnason, forstjóri Granda. Svo náið hefur
verið á milli þeirra í málinu að innan Ró-
berts-hópsins segja menn að stundum
heíði vart mátt sjá hvor þeirra væri í raun
höfundur byltingarinnar. Það, að Brynjólf-
ur Bjarnason sé einn höfuðpauranna í mál-
inu, hefur þótt illskiljanlegt og vakið upp
fleiri spurningar en svör varðandi afstöðu
og heilindi stjórnar Granda í stuðningi sín-
um við Jón Ingvarsson. Jón situr í stjórn
Granda þótt hann eigi þar að vísu ekki
nema tæplega 3% hlut sem skráður er und-
ir heitinu Ingvar Vilhjálmsson hf. Jón sett-
ist í stjórn Granda við stofnun félagsins árið
1985 þegar Bæjarútgerð Reykjavíkur, BUR,
og Isbjörninn voru sameinuð. Brynjólfur
Bjarnason var þá forstjóri BÚR en Jón var
aðalfulltrúi Isbjarnarins. I kjölfarið keypti
síðan Vogun hf. hlut BÚR í Granda. Helsti
hluthafi Vogunar er Hvalur hf. en helstu
eigendur hans eru fjölskyldur Árna Vil-
hjálmssonar, stjórnarformanns Granda og
fyrrum prófessors, og Kristjáns Loftssonar,
forstjóra Hvals og stjórnarformanns ESSO.
Á milli þeirra Árna og Kristjáns eru sterk
og margra ára vinabönd. Því má skjóta hér
inn í að Grandi og Hraðfrystistöðin í
Reykjavík sameinuðust árið 1990 — en að-
aleigandi hennar var Agúst Einarsson, prófessor og alþingismaður.
Ágúst situr í stjórn Granda og er næststærsti hluthafinn þar. Hann
er með hlut sinn undir heitinu Haf hf. Þá situr Einar Sveinsson for-
stjóri Sjóvá-Almennra í stjórn Granda vegna hlutar Sjóvá-Almennra
í félaginu. Einar tók við stjórnarsetunni af bróður sínum, Benedikt
Sveinssyni, stjórnarformanni Sjóvá-Almennra og Eimskips, fyrir
aðeins rúmri viku. Gunnar Svavarsson situr í stjórn Granda fyrir
hönd Hampiðjunnar — en tyrirtækin Venus og Vogun eru á meðal
stærstu hluthafa í Hampiðjunni og þar hefur Árni Vilhjálmsson
mikil völd sem stór eigandi og stjórnarformaður. Gunnar situr
raunar líka í stjórn Þormóðs ramma — Sæbergs. Þá situr Grétar B.
Kristjánsson í stjórn Granda sem fulltrúi Vogunar.
Þáttur Brynjólts Bjarnasonar Á aðaKundi SH studdi Grandi Jón
Ingvarsson, stjórnarmann sinn, ótvírætt til stjórnarformennsku.
Þess vegna skilur enginn hvers vegna stjórn Granda hefur liðið
það að Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda, hafi unnið svo opin-
Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda,
var fundarstjóri á aðalfundi Islandsbanka
á dögunum. Margir töldu að dagar hans
hjá Granda vœru taldir eftir uþþákomuna
hjá SH. Brynjólfur vann þar mjög oþin-
skátt að hallarbyltingunni með Róbert - á
meðan stjórn Granda studdi Jón Ingvars-
son til stjórnarformanns SH.
Jón Ingvarsson, fráfarandi stjórnarformað-
ur SH. Hann vanmat sterka stöðu Róberts
og ótrúlegan metnað hans - en ofmat loforð
manna sem hann treysti.
21