Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.1999, Page 36

Frjáls verslun - 01.03.1999, Page 36
SJÁVARÚTVEGUR í sögulegu samhengi Sé litið á verðið í sögulegu samhengi þá kemur í ljós að það hefur hrapað hratL Um þessar mundir bjóðast rúmlega 20 þúsund krónur fyrir hvert tonn af lýsi og 30 þúsund krónur fyr- ir hvert tonn af mjöli. Þegar verðið var hæst fengust 50 - 55 þúsund krónur fyrir tonnið. Samtals seldu Islendingar mjöl og lýsi fyrir 16 milljarða í fyrra. Það eru því líkur á að tekj- urnar verði að minnsta kosti helmingi minni í ár eða um 8-10 milljarðar í stað 16. Ef horft er enn lengra um öxl og aftur á miðjan síðasta áratug sést að mjöl- og lýsisverð hefur oft verið mun lægra en það er nú. Á árunum 1984 til 1993 var verðið al- mennt mjög lágt ef árin 1988 og 1989 eru undanskilin. Þannig má halda því fram að hið háa afurðaverð siðustu ára sé verulegt frávik og nú sé verðið að færast aftur til venjulegs horfs. Öllu þessu veldur h'till fiskur sem heitir á latinu mallotus villosus en á íslensku loðna eða loðsíli. Loðnan er smávaxin (há- mark 20 sm.) og skammlíf, deyr eftir hrygningu 34 ára gömul. Loðnan er mikil- væg fæða fyrir margar fisktegundir, hvali, seli og fugla. íslendingar hófu loðnuveiðar 1963, lítið í fyrstu en veiðarnar jukust um 1970 í kjölfar þess að síldin hvarf. Síðustu þijú ár hefúr loðnuveiði verið með allra besta móti mjölsframleiöenda, telur rett unum og leyft að veiða meira en milljón tonn. Miklar sveiflur hafa verið í loðnuveiðum þau 35 ár sem þær hafa verið stundaðar. Árin 1982 og 1983 brást loðnu- veiði nær algerlega og síðast 1991 voru að- eins veidd um 260 þúsund tonn. Rétt að reikna með að verðið lækki Teitur Stefánsson er ffamkvæmdastjóri Félags ís- lenskra fiskimjölsffamleiðenda og hefúr fylgst með veiðum og vinnslu á loðsíli ára- tugum saman. „Það virðist vera birgðasöfnun hjá mjölframleiðendum um allan heim. Almennt sýnist verð á hrá- vöru fara lækkandi. Það er auðvit- að erfitt að spá fyrir um framvindu verðsins á loðnuafurðum en það virðist sem markaðurinn sé ekki enn búinn að ná jafnvægi og sjálf- sagt rétt að reikna með ffekari verðlækkunum en þegar eru orðnar." Gengið mun ekki lækka frekar Þorsteinn Víglundsson, ráðgjafi hjá Kaupþingi, sagði að gengi hlutabréfa í flestum eða öllum sjávarútvegsfyrirtækjum sem stunduðu vinnslu og veiðar á uppsjávarfiskum hefði lækkað eför áramótín og reyndar hefði lækkun á gengi hlutabréfa í SR mjöli byrjað að koma ffam þegar á haustmánuðum. „Þessar lækkanir eru hins vegar ekki eingöngu tíl komnar vegna lækkana á loðnuafurðum heldur kemur hér einnig tíl að afkoma margra þessara félaga á síðasta ári olli vonbrigðum. Sú staðreynd hefur ekki orðið tíl að auka bjartsýni manna á af- 36

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.