Frjáls verslun - 01.01.2000, Page 40
Gegnsœið er raunarsvo mikið að þeirsem aka um Ármúlann ogfram hjá fyrirtœkinu geta horft
beint inn á skrijstofú hans og séð hann að störfum í amstri dagsins.
í Skorradal þar sem Áslaug er alin upp. Það var þó ekki fyrr en
undir tvítugt sem þau ákváðu að rugla saman reytum, hann var
tuttugu, hún nítjan. Þremur árum síðar, eða 21. júní 1975,
gengu þau í það heilaga. Þau hafa þvi verið saman í tuttugu og
átta ár. Synir þeirra eru Þorgeir, fæddur ‘78, nemandi í líffræði
við Háskóla Islands - en unnusta hans er Hrefha Siguijónsdótt-
ir, nemi í sálfræði - og Önundur Páll, fæddur ‘82, nemandi í MR
Þess má geta að Áslaug er hálfsystir Davíðs Péturssonar, odd-
vita í Skorradalshreppi.
Slill eiginmannsins Við spurðum Áslaugu hvernig hún teldi
að stjórnunarstíll bónda síns væri. „Hann er metnaðargjarn og
því get ég ímyndað mér að hann sé fremur kröfuharður stjórn-
andi og samstarfsmenn hann fari ekki í grafgötur með það.
Hann er hreinn og beinn í samskiptum, heiðarlegur og traust-
ur, og því vita samstarfsmenn hans örugglega alltaf hvar þeir
hafa hann. Hann er hugmyndaríkur og festist ekki í viðjum
vanans. Þess vegna held ég að hann sé opinn fyrir nýjungum á
vinnustað og hugsi sem svo að þótt hlutirnir hafi verið gerðir
svona í fyrra þurfi ekkert endilega að gera þá svona núna.“
Ragnar þykir vel lesinn og bókmenntaáhugi hans er annál-
aður. Hann er heimakær og það hefúr vakið athygli margra
samferðamanna hans hve mjög hann hefur sinnt uppeldi sona
sinna og hve hann er mikill félagi þeirra. Hann hefur haft
mikið yndi af að vera með þeim í frístundum sínum og þegar
þeir voru yngri las hann oft fyrir þá úr íslendingasögunum á
kvöldin. Báðir stákarnir búa vel að þessum sagnastundum og
eru miklir bókamenn. Ragnar horfir sáralítið á sjónvarp á
kvöldin en ver tímanum yfirleitt í lestur bóka, fagtímarita eða
gagna varðandi vinnuna. Hann á það til að setja saman vísur.
Líklegast kemur það úr móðurættinni. Afi hans, Ragnar Ás-
geirsson, setti saman margar fallegar vísur sem og móður-
bróðir hans, Úlfúr Ragnarsson læknir.
Vinahópamir Vinahópur þeirra Ragnars og Áslaugar er býsna
stór. Elsti hópurinn, bridge-félagarnir, er frá mennta- og há-
skólaárum Ragnars. í honum eru Þórður Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri hjá Eimskip, Hannes Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Securitas, Helgi Jóhannsson, framkvæmdastjóri
Samvinnuferða-Landsýnar, og Haraldur Sigurðsson augnlækn-
ir. Þess má geta að eiginkonurnar halda líka hópinn og hittast
annað veifið. Þó ekki undir formerkjum
bridge-íþróttarinnar heldur einfaldlega
til að fá sér kaffisopa og ræða málin.
Hópurinn hefur ferðast og skemmt sér
talsvert saman og aldrei bregst árlegt
þorrablóL Þannig hefur það verið til
margra ára.
Öflugur veiðimaður Annar mjög ná-
inn vinahópur þeirra hjóna er veiði-
hópurinn frægi sem veiðir saman sjó-
birting í Borgarfirðinum á sumrin. í
þessum hópi eru Kristján Óskarsson,
framkvæmdastjóri Glitnis, Gísli Bene-
diktsson hjá Nýsköpunarsjóði, Sig-
urður B. Stefánsson, framkvæmda-
stjóri VÍB, Bragi Hannesson, fyrrver-
andi forstjóri Iðnlánasjóðs, og Stein-
grímur Eiríksson lögfræðingur. Þess
má geta að þau hjón, Ragnar og Áslaug, hafa bæði mikinn
áhuga á stangaveiði. Sérstaklega er haft á orði hve öflugur og
flinkur veiðimaður Ragnar sé.
Af öðrum vinum þeirra hjóna er hægt að nefna Val Vals-
son, bankastjóra íslandsbanka, en þeir Ragnar hafa verið nán-
ir samstarfsmenn í átján ár, og Jón Þórisson, framkvæmda-
stjóra hjá íslandsbanka, sem var hægri hönd Ragnars hjá
bankanum og tók við starfi hans þar sem og í stjórn Europay
en þar hafði Ragnar setið í stjórn frá árinu 1990. Jón er því
óbeint yfirmaður hans núna eftir að hafa verið aðstoðarmað-
ur hans um árabil. Þeir eru miklir félagar. Við spurðum Jón
hvernig stjórnunarstíll Ragnars væri.
Breytingastjórnandí „Ragnar er breytingastjórnandi. Hann
er mjög vel að sér í stjórnunarfræðum, kynnir sér þau vel og
leitar fanga víða. Þegar hann er kominn niður á stíl, sem
hann telur að gott sé að tileinka sér, þá sekkur hann sér á
bólakaf í hann og gerir það vel. Hann er mjög vel lesinn í
bókmenntum og sögu. Ragnar sagði eitt sinn að hann hefði
valið sér braut í menntaskóla út frá veikleikum sínum. Hann
taldi sig sterkan í tungumálum og valdi þess vegna stærð-
fræðideild. Það lýsir honum ágætlega. Hann leitar markvisst
að veikleikum sínum og reynir að uppræta þá. Hann er tals-
verður fræðimaður í sér og hefur skoðanir á mörgu - og ég
held að það tefji hann stundum. Hann sigtar vel út það sem
hann ætlar að gera áður en hann hefst handa. En þegar hann
hefur tekið miðið þá klárar hann það og það tekur ekki lang-
an tíma. Hann er yfirvegaður og hleypur ekki af stað nema
að vel athuguðu máli. En eins og við öll hefur hann tækifæri
til að bæta sig. Hann mætti kannski huga meira að því að
selja samstarfsmönnum betur hugmyndir sínar áður en lagt
er af stað í miklar breytingar. Hann treystir starfsmönnum
sínum, gefur þeim mikið sjálfstæði, er skemmtilegur félagi
og mjög vakandi yfir breyttum vinnubrögðum og því að nálg-
ast verkefnin á nýjan hátt.“
Nánast Úti á götu Um það hvernig hann blasir við viðskipta-
vinum sínum sem og samstarfsmönnum á skrifstofu sinni í Ár-
múlanum segir Jón: „Hann setti sér það sem markmið að opna
fyrirtækið innan frá og gefur þannig tóninn og gott fordæmi
með því að loka sig ekki af á bak við luktar dyr. Glerjuð skrif-
40