Frjáls verslun - 01.01.2000, Side 46
VINNUMARKAÐUR
Getur orðið erfitt
að ná niðurstöðu
Ari Skúlason,
framkvæmdastjóri ASÍ
Ari Skúlason, framkvæmdastjóri Alþýðusambands íslands,
telur augljóst að í komandi samningaviðræðum verði
íyrst og fremst tekist á um laun. Miklar sviptingar segir
hann að hafi orðið á þessu samningstímabili og ekki þurfi
mikla spekinga til þess að sjá að verulega hafi hallað á ASÍ fé-
lögin, sérstaklega tekjulægstu hópana.
„Umræðan um að sanngjarnar launakröfur ASI félaganna
muni velta hagkerfinu er nú þegar komin upp og ég veit að fé-
lagsmenn ASI eiga sífellt erfiðara með að skilja þá umræðu,
sérstaklega eftir að hafa horft á það sem hefur gerst á opinbera
launamarkaðnum á síðustu misserum. Ofan á þetta hefur
skattkerfinu verið komið svo fyrir að tekjulægstu hóparnir
munu einu sinni enn upplifa að fá minna í budduna sína af um-
sömdum kjarabótum en tekjuhærri hóparnir. Eg held að þetta
mál hljóti að koma upp á borðið með miklum þunga í komandi
viðræðum, en auðvitað snúa skattarnir að þeirri rikisstjórn
sem situr hverju sinni.“
Kröfur launþega? „Kröfúr ASÍ félaganna í komandi samning-
um sýnast fyrst og fremst snúa að laununum sjálfum. Það er
mjög brýnt að leiðrétta það misvægi sem fram er komið milli
ýmissa hópa á vinnumarkaðnum og einnig er mjög brýnt að
rétta hlut lægst launaða fólksins. Þá er einnig ljóst að hin mikla
verðbólga að undanförnu hefur rýrt kaupmátt mun meira en
menn sáu fýrir við gerð síðustu samninga þannig að verri
kaupmáttarstaða en ella ýtir einnig undir launakröfurnar,“
svarar Ari og bætir við að hugsanlegt sé að ASÍ komi beint að
samningum við atvinnurekendur og stjórnvöld um sameigin-
leg mál sem snúi eins að öllum félagsmönnum ASÍ en ekki sé
enn búið að taka ákvarðanir um þær hliðar málsins.
Framvindan fer að sögn Ara Skúlasonar fýrst og fremst eft-
ir þeim vilja og skilningi sem atvinnurekendur sýni. í síðustu
samningum segir hann að hafi náðst góð sátt og þá hafi menn
stefht að því að komast nær nágrannaþjóðunum í launum og
kjörum. Því miður hafi menn ekki séð fyrir þá óheillaþróun
sem hafi orðið sums staðar á vinnumarkaðnum og því sé stað-
an verri en ella.
„Ef atvinnurekendur hafa þá gæfu til að bera að sjá að það
er blátt áfram nauðsynlegt að leiðrétta misrétti af ýmsu tagi
mun þetta ganga vel. En ef atvinnurekendur munu t.d. halda
áfram að staglast á skoðunum eins og þeim að launahækkanir
megi ekki verða meiri hér en i nágrannalöndunum, án þess að
taka inn í myndina að launastigið er mun lægra hér en þar - og
að við verðum að stefna að því að ná sama launastigi og aðrir -
þá verður eflaust mjög erfitt að ná niðurstöðu."
Arí Skúlason, framkvæmdastjóri ASI: „Þad verður fyrst og fremst
tekist á um laun og framvindan rœðst svo af vilja og skilningi at-
vinnurekenda. “ FV-myndir: Geir Olafsson.
/
Ari Skúlason, framkvœmdastjóri ASI, ogAri
eru í eldlínunni í þeim kjaraviðrœðum
fyrst og fremst tekist á um beinar
Ari Skúlason
„Ef atvinnurekendur halda áfram að staglast á skoðunum eins og þeim að launahækkanir megi ekki verða meiri
hér en í nágrannalöndunum, án þess að taka inn í myndina að launastigið er mun lægra hér en þar og að við
verðum að stefna að því að ná sama launastigi og aðrir, þá verður eflaust mjög erfitt að ná niðurstöðu.“
46