Frjáls verslun - 01.01.2000, Side 60
RflÐSTEFNUR
Stefán Örn Þórisson, hótelstjóri á Hótel Selfossi:
Suðurlandið helsti vaxtarbroddur
islenskrar ferðaþjónustu
ó að flestir fundir eða ráðstefnur
hér á landi fari fram á Reykjavík-
ursvæðinu hafa nokkur hótel á
landsbyggðinni fengið hluta af kök-
unni. Eitt þeirra er Hótel Selfoss sem
er í þægilegri akstursleið frá höfuð-
borginni. Stefán Örn Þórisson er hót-
elstjóri á Hótel Selfossi. „Hótel Sel-
foss hefur yfir að ráða 21 herbergi og
veitingastaðurinn Betri stofan er á
jarðhæð en hann tekur um 50 manns í sæti. Einnig hefur hót-
elið veitinga- og fundasali fyrir allt að 500 manns í sæti,“ seg-
ir Stefán Örn.
„Betri stofan er glæsilegur, nýuppgerður veitingastaður þar
sem gestir geta notið þess besta sem völ er á í veitingum og
þjónustu. í Betri stofunni er í boði glæsilegur matseðill ásamt
fjölbreyttum vínseðli. Einnig er í Betri stofunni glæsileg kon-
íaksstofa þar sem fjölbreytt úrval af þeim drykk, allt frá VS upp
í Erte frá Courvosier, prýðir glæsilegan koníakskápinn. Malt
viski eiga sér góðan stað í Betri stofunni og nú geta
viskíáhugamenn notið þess að finna sinn rétta
drykk í glæsilegu umhverfi. Hótel Selfoss
býður aðeins upp á það besta hvað varð-
ar ráðstefnu- og fundahald. Fundasalir
okkar rúma um það bil 500 gesti við
fundarborð en allt upp í 700 í sal.“
Höfuðstaður Suðurlands Stefán Örn
leggur áherslu á að Selfoss sé höfuð-
staður Suðurlands; gróið og fallegt bæj-
arfélag í einstöku umhverfi. „Samgöng-
ur eru greiðar frá höfuðborginni og frá
Selfossi til ótal fallegra og merkra staða á
Suðurlandi. Selfoss er tilvalinn næturstað-
ur á skoðunarferðum um héraðið. Margir
hafa talað um að með því að flytja við-
burð út fyrir Reykjavíkursvæð-
ið sé tíminn betur nýttur
þar sem ys og þys
höfuðborgarinn-
ar slíti fundina
ekki í sundur.
Öll herbergi
á Hótel Selfossi
hafa verið end-
urnýjuð. Nýjum
rúmum af hæsta
gæðaflokki hef-
ur verið komið
fýrir í öllum herbergjum og ýmsar aðr-
ar breytingar hafa átt sér stað. I öllum
herbergjum eru fjölrása sjónvarp, smá-
bar og baðherbergi með sturtu. A hót-
elinu eru aðeins 21 herbergi en það
eru góð herbergi þar sem gestum líð-
ur vel. Útsýnið úr herbergjunum yfir
hina magnþrungnu Ölfusá ásamt Ing-
ólfsfjalli veitir kyrrð og innblástur.
Reiötúrar og jeppaferðir Helsta þjónusta sem við bjóðum
eru fundir og ráðstefnur, árshátíðir fýrirtækja, einkasam-
kvæmi og rómantík. Afþreyingin spilar stórt hlutverk í þjón-
ustu okkar. Við erum í nánu samstarfi við þá aðila sem bjóða
upp á afþreyingu hér á Suðurlandi, til dæmis reiðtúra, jeppa-
ferðir, ijósaheimsóknir og gönguferðir um nágrenni Selfoss
með leiðsögn. Kemur þetta samstarf sér einstaklega vel fyrir
þau fyrirtæki sem eru að undirbúa fundi og ráðstefnur ásamt
afþreyingu."
Stefán Örn segir Hótel Selfoss vel búið tækjum til
funda- og ráðstefnuhalds. „Meðal tækja hótelsins
má nefna myndvarpa, slides-myndavélar, tjöld,
video myndvarpa, túlkakerfi, ijarfundabún-
að, tölvumyndvarpa og hljóðnemakerfi.
Mikill meirihluti þeirra sem nýta sér þau
salarkynni sem við höfum upp á að bjóða
eru fyrirtæki, félög og stofnanir. Hvort sem
haldnir eru stuttir hádegisverðarfundir eða
vikulöng námskeið þá er aðstaðan þannig
að auðvelt er koma til móts við þær kröfur
sem gestir okkar gera. Okkar markmið er
að segja aldrei nei.“
Stefán Örn telur að á Suðurlandi sé einn
helsti vaxtarbroddur íslenskrar ferðaþjón-
ustu. „Flestir ferðamenn sem koma
til landsins staldra hér
við með einu eða
öðru móti. Til
þess að Suður-
land geti ann-
að auknum
straumi ferð-
amanna á
næstu árum
þarf nauð-
synlega að
bæta við hót-
elherbergj-
um.“ BO
Stefán Örn Þórisson, hótelstjóri á
Hótel Selfossi, segir vinsældir
hótelsins til rádstefnuhalds byggj-
ast á góóri aðstöðu og þægilegri
fjarlœgð frá Reykjavík.
Effir ísak Örn Sigurðsson
Stefán Örn Þórisson, hótelstjóri á Hótel Selfossi: „Margir tala um að utan Reykjavíkur sé tíminn
betur nýttur. Fundasalir okkar rúma um það bil 500 gesti við fundarborð en allt uþþ í 700 í sal. “
FV-mynd: Geir Ólafsson.
60