Frjáls verslun - 01.01.2000, Side 86
TÆKNI
Hvar liggja peningarnir í WAP-kerfinu? Það var
sú spurning sem brann heitast á yfir 500 gestum
á WAP-ráðstefnu á dögunu!
FV-mynd: Geir Ólafsson
að eru líklega ekki nema ijögur ár síðan haldnar voru í]öl-
mennar ráðstefnur þar sem fólk í tölvu- og fjarskiptageir-
anum reyndi að sannfæra stjórnendur fyrirtækja um
ágæti veraldarvefsins. Allir vita núna um árangur þess! I síð-
asta mánuði gerðu sömu aðilar aðra atlögu og lýstu ágæti
nýjasta tækniundursins; WAP-kerfisins. Enginn vill sitja eftir
og áhuginn leyndi sér ekki. Ríflega 500 manns sóttu ráðstefnu
sem Islandssími boðaði um kerfið.
En hver er þessi nýjung? WAP, sem stendur fyrir Wireless
Application Protocol, er í raun samskiptastaðall sem gerir GSM
farsímanotendum kleift að hafa aðgang að Netinu með hjálp
örvafra í símanum. Ekki er hægt að nota hefðbundna GSM
síma til að fá aðgang að þessari þjónustu heldur þarf til þess
GSM síma sem styðja kerfið. Fáir slíkir eru til hér á landi í dag
en þeim fer ört fjölgandi. Verðið á þeim er breytilegt en þeir eru
seldir hjá Landssímanum og Tal á tæplega 40.000 krónur.
400 milljónir GSM Síma Fram kom á ráðstefnunni að um
400 milljónir
GSM síma væru í
notkun í heimin-
um í dag. Innan
Ijögurra ára spá
menn að þeir
verði orðnir einn
milljarður. Þar af
mun helmingur
þeirra, eða 500 milljónir, styðja WAP-kerfið. Breytingin með
WAP-símunum verður sú, að mati sérfræðinga, að fólk mun
ekki lengur leita eftir þjónustunni heldur mun þjónustan leita
til fólksins. Þannig kom fram í máli Bo Birk, sem er sérfræð-
ingur hjá Ericsson og einn sex fyrirlesara sem fluttu erindi á
ráðstefnunni, að WAP væri einungis hluti af þeirri tækni sem
gerði fólki og fyrirtækjum kleift að stunda viðskipti á Netinu.
Nefndi hann sem dæmi að fyrirtæki hans hefði í samvinnu við
kvikmyndahúsasamsteypu í Noregi búið til lausn til að hægt
væri að kaupa bíómiða í gegnum síma. í augsýn væri hins veg-
ar tækni sem gæti gert WAP-símnotanda unnt að leita í síman-
um að kvikmyndahúsi í nágrenni við sig, fara á netsíðu bíós-
ins, finna bíómynd við sitt hæfi, panta miða og borga hann
með því að millifæra af bankareikningi sínum og fá kvittunina
í símann. Hann gæti síðan farið í bíó nokkrum mínútum fyrir
sýningu, sýnt greiðslukvittunina á símanum og notið sýning-
arinnar án þess að þurfa nokkru sinni að standa í röð í miða-
sölunni.
Hwar liggja peningarnir? „Hvar liggja peningarnir í WAP-
kerfinu?" var sú spurning sem brann heitast á ráðstefnugest-
um. Jóhann Kristjánsson, netstjóri Islandsbanka, sem verið
hefur framarlega í WAP-væðingunni, sagði að vissulega hefði
bankinn ekki beinar tekjur af WAP-viðskiptavinum sínum. Þátt-
taka í WAP-væðingunni væri þó gríðarlega mikið „ímyndar-
mál“ fyrir bankann. Aukinheldur ætti WAP-þjónustan án efa
eftir að minnka álagið á útibúin. Nú þegar er hægt að skoða