Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1957, Síða 47

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1957, Síða 47
I LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 707 Verðlaunakrossgáfa Lárétt: 1 Jólasálmur, 6 skilyrði, 7 lokið, 9 á fæti, 10 slíta, 11 sjór, 12 bók- stafur, 13 rúmið 18 fararskjóti 19 dýr, 20 hár, 23 fræðslu, 26 lending, 27 sævar, 29 i kerti, 30 viðloðandi, 31 þekkja, 32 flóki, 33 vökvi, 35 fyrir löngu, 36 Jólaboðskapur. Lóðrétt: 1 ávarpa, 1 styrkja, 3 jurt, 4 iðn, 5 skepna, 8 nokkur, 14 yfirboð- ari, 15 klaki, 16 varðandi, 17 málmur, 20 mulningur 21 galdratæki 22 skinn, 24 ögrar, 25 ójafna, 27 spil þf., 28 skjal, 34 tímatal 37 alþjóðlegt tímatákn. (Lkki gerður greinarmunur á grönnum og breiðum raddstöfum). Verðlaun. Þrenn verðlaun verða veitt fyrir réttar ráðningar á krossgát- unni, ein kr. 200.00 og tvenn kr. 100.00. Ráðningar sendist Morgunblaðinu fyr- ir 1. janúar, merktar „Krossgátar". hitt með litlu mfllíbili að fimm eða sex gluggum og er alls staðar eins ástatt, að verið er að lesa, en hann skilur ekki málið. Er hann nú farinn að hugsa að ekki sé allt einleikið og fer að reyna að átta sig. Þekkir hann þá, að hann er kominn rétt að tún- garðinum á Víðivöllum og hafði farið fram hjá klapparbelti, sem þar er rétt fyrir sunnan og orð liggur á, að sé fullt af góðu huldufólki (bjartalfum). — Sögumaðurinn, séra Jón Norðmann, segist hafa þekkt þennan mann og borið mikla virðingu fyrir honum. GISTING HJÁ ÁLFUM í Kleppum hjá Víðivöllum (í Blöndu hlíð) sá maður nokkur á jólanóttina stórt hús allt ljósum prýtt. Hann gekk þar inn og fékk góðar viðtökur og ágætan beina. Morguninn eftir, er hann vaknaði, lá hann á berum klett- unum, og sá hvorki veður né reyk eftir af stóra húsinu. (Sögn Péturs bisk- ups). JÓLAREFUR hét fyrrum það sem hverjum manni var skammtað til jólanna, hangikjöt, magálar, viðbit o. s. frv. Var það venja húsmæðra að skammta á aðfangadag öllu fólki sínu þann mat, er endast skyldi um jólin og þó lengur. En Eggert Olafsson getur þess í Ferðabók sinni, að í norðurhluta Barðastrandarsýslu hafi bændur haft þann einkennilega sið, að skammta sjálfir á jóladaginn, bæði konu sinní og öðru heimafólki, vænan skammt af hangikjöti. ELZTA JÓLATRÉ Reynir er kallaður heilagt tré, og er sú saga til þess, að til forna, þegar komið var að reynitré á jólanótt, brunnu Ijós á öllum greinum hans og slokknuðu þau ekki, hversu mjög sem vindur blés. Reynirinn hafði og á sér helgi í heiðnum sið. Var það vegna þess, að þegar Þór var hætt kominn I ánni Vimur, bjargaði það lífi hans að hann náði í reynirunn, sem óx þar á bakkanum. Eftir það var reynirinn kallaður „björg Þórs“, eins og segir í Eddu. BÚRDRÍFA Það var siður húsmæðra að láta búr- gluggana standa opna á nýársnótt. Féll þá hrim á gólfið, og var líkast lausa- mjöll, hvítt á lit, smágert og bragð- sætt, en sást hvorki né náðist nema í myrkri, og var allt horfið er dagur rann á nýársmorgun. Húsfreyur þær, sem vildu safna búrdrífunni, settu pott úr brynjumálmi á mitt búrgólfið, létu yfir hann síugrind með krossspel- um yfir, og gat þá búrdrífan ekki kom- ist út aftur um opið, sem var kross- myndað. Sumir segja að húsmæðurnar væru sjálfar i búrinu alla nýársnótt, meðan búrdrífan fell, en þegar pottur- inn var orðinn fullur, hafi þær látið yfir hann krosstréð, svo að drífan gæti ekki komist upp úr honum. En búr- drífunni átti að fylgja einstök búsæla og búdrýgindi. (Úr þjóðsögum J.Á.) í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.