Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 5

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. DESEMBER 1984 „ Hallgrímur lifir í orðum sínum og vitnisburði. Og þar birtast fágæt heilindi hugans og einlægni hjartans. Það er öðru fremur þess vegna, sem töfrarnir í hendingum hans eru svo ómótstæði- lega sterkir og ijúfir. Þetta fann þjóðin strax. Hún beygði sig fyrir óskýranlegum tökum þessa skálds af því hún fann glóð andans í orðunum. “ Það er orðið, sem ber mig uppi, ekki öfugt. Þeir, sem velta því fyrir sér, hvort trú Hallgríms hafi verið heil í grunni, fást við fánýtt föndur. Aðeins einn rannsakar hjörtun og nýrun. „Hann sér og prófar hjartað mitt, hvað sem illgjarnir meina." Hallgrímur lifir í orðum sínum og vitn- isburði. Og þar birtast fágæt heilindi hug- ans og einlægni hjartans. Það er öðru fremur þess vegna, sem töfrarnir í hend- ingum hans eru svo ómótstæðilega sterkir og ljúfir. Þetta fann þjóðin nálega strax. Hún beygði sig fyrir óskýranlegum tökum þessa skálds af því að hún fann glóð and- ans í orðunum, heit, lifandi hjartaslög. Því varð Hallgrímur „guðlegt skáld", myndugt sakir auðmýktar sinnar fyrir Guði, nær- færið sakir djúprar innlifunar inn í þann leyndardóm krossins, sem afhjúpar Guð og mann. En komst það til skila svo, að aðrir mættu þess njóta með? Við það réð hann ekki með ljóðamennt einni saman. Ó, Jesús, gef þinn anda mér, allt svo verði til dýrðar þér. Allur annar metnaður lýtur þessari bæn og vilja. Hann veit að hann er aðeins ein röddin í kór alda og eilífðar, sem tilbiður leyndardóm krossins, undur Guðs ástar. Hann vill ekki að rómur hans skeri sig úr eða fari út af laginu í þeim söng, sem „englar Drottins og kristnin fríð“ í fortíð og nútíð, á jörðu og himni, flytja einum munni syni Guðs, sem skenkti syndugum manni sinn sonararf. ■ Hallgrímur ástundar ekki að vera frum- legur. Jesús Kristur er hinn sami í gær og í dag og um aldir. Skáldið agar gáfu sína og hugsun undir þá skyldu að kunngjöra það, sem hann hefur gjört og sú kristni játar, sem lýtur konungsvaldi hans. En þessi kvöð er ekki ófrelsi. Engin hugsun er frjáls, sem er agalaus og ótam- in. Menn verða ekki frumlegir af því að hugsa afbrigðilega eða gana hverja þá götu, sem þeir þykjast sjá í buskanum. Á það hefur yfírleitt ekki verið minnst í kennsiubókum, að Hallgrímur Pét- ursson var meðal þeirra fyrirmenna landsins, sem neyddir voru til að skrifa undir og samþykkja einveldi Danakonungs yfir Islandi á hinum ill- ræmda Kópavogsfundi. Myndin sýnir þegar Islendingar skrifa undir og var bent á vopnaða danska hermenn að öðrum kosti. Baltasar hefur málað myndina fyrir Byggingavöruverzlun Kópavogs og er hún þar. Lesbók/Emelía. Frumlegir verða þeir einir, sem hugsa sjálfir og í sterkri vitund um ábyrgð. Hallgrimur hugsar sjálfur. Hann leggur hugsun sína og vitsmuni í það sem hann segir, ásamt ræktuðu trúarinnsæi og list- næmi. Hann skilar því einu, sem hann hef- ur tileinkað sér og er samgróið trúarvit- und hans og trúarlífi. Sú kenning klár, kröftug, hrein og opinskár, sem hann flyt- ur, er í engu ný. Og þó verður allt nýtt í meðförum hans, af því að það er persónu- lega tileinkað og tjáð. Þau trúarsannindi, sem þúsundirnar hafa lifað, verða fersk uppgötvun þeim einstaklingi, sem finnur þau og eignast. Og þegar hann miðlar öð- rum af því, sem hann hefur þegið, þá fer kveikimáttur og lífsafl þeirrar tjáningar mjög svo eftir því, hversu gagntekin hugs- un og heitt hjarta er að baki orðunum. Til lífs er ekkert fætt í trúarheimi, sem ekki á upptök í alteknum hug. Það er ekki nóg til varanlegs lífs, að slíkur hugur sé að baki. En án þess gagna ekki önnur tygi, engin gáfa, engin list, engin snilld. Fáum getur dulist, að Hallgrímur er sjálfur á valdi þess orðs, sem hann boðar. Hann hefði sagt eins og aðrir trúmenn: Fyrir réttum 300 árum, aðeins tæpum áratug eftir dauða Hallgríms, skrifar sam- tímamaður hans nær jafnaldra, Torfi prestur Jónsson, bróðursonur Brynjólfs biskups, að þjóðin hefði á þeirri köldu öld átt menn, sem hafi sýnt það, að ekki sé heilinn frosinn i íslendingum. Og hann nefnir fjóra menn til sönnunar, þeirra á meðal og þeirra yngstur er Hallgrímur Pétursson. Tveimur árum síðar segir sami maður, að Hallgrímur sé hin miklá prýði aldarinnar. Síra Torfi átti það eiginhandarrit Pass- íusálma, sem enn er til, erfði það eftir þau feðgin Ragnheiði og Brynjólf biskup. Hann og ættmenn hans síðar kunnu að meta þessa gersemi og varðveittu vel. Sú skoðun hefur verið nokkuð almenn, að samtíð Hallgríms, hin mjög svo ófrægða 17. öld, hafi ekki tekið eftir hon- um, ekki séð sinn mesta mann. Þetta er ekki sanngjarn eða rökstuddur dómur. Hallgrímur er ekki nema þrítugur, þegar hann er orðinn prestur og hafði þó sjálfur ekki farið öruggan veg að því marki. Þegar þá höfðu menn veitt skáld- gáfu hans og hæfileikum athygli. Þegar núna er horft aftur í aldir, stend- ur Hallgrímur einn sér, án samkeppni eða samanburðar við aðra höfunda samtím- ans. Það var ekki svo, þegar hann var á dögum. Á þeirri tíð var meira ort en nokkru sinni fyrr eða síðar á landi hér. Sálmar voru í stóru gengi og allur trúar- legur kveðskapur. Þeir voru æði margir, sem töldust til stórskálda og nutu al- mennra vinsælda með þjóðinni. Guðbrandur biskup átti mestan hlut að því að vekja þessa öldu, virkja skáldlega hæfileika og beina þeim í þennan farveg. Hjá honum fór saman trúareldmóður og þjóðlegur metnaður, hvort tveggja ósvikið og átakamikið í fari hans. Áhrifin urðu víðtæk og djúp. Enginn gat umsvifalaust komist í önd- vegi á skáldaþingi á 17. öld. Þar var við marga að keppa og ekki alla smáa. Öld Hallgríms var nógu áfallasöm þótt hún fái að njóta þess, sem hún á. Hún má í fyrsta lagi eiga það, að Hall- grímur er skilborið barn hennar. Hann er borinn uppi af þeirri andlegu flóðöldu, sem lúthersk kristni hóf og efldi. Hann er gagngert mótaður af þeirri eindregnu trúarstefnu, sem öldin laut. Sú stefna kall- aði á hæfileika og gáfur og ræktaði það hugarfar, sem var opið fyrir trúarskáld- skap og þáði hann með þökkum. Hallgrímur hefði aldrei orðið það sem hann varð, ef bylgja þessa aldarfars hefði ekki riðið undir hann. f öðru lagi má öld Hallgríms eiga það, að hún tók eftir honum, varla vonum seinna, ef borið er saman við skyggni annarra tíma á yfirburði. Vitaskuld varð hann ekki á vetfangi höfuðskáld eða þjóðskáld í aug- um landa sinna. Og eðlilega varð bið á því, að hann næði að skjóta öllum öðrum aftur fyrir sig. En það gerði hann síðan hægum, hiklausum skrefum. Og nú er svo komið, að menn sjá hann einan, en rökkvi hylur aðra hnjúka og tinda, sem samtíð hans sá í birtu og þáði birtu frá. IV Bókmenning íslendinga varðveitti tungu þeirra, sérleik og sjálfsvitund. En vafa-

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.