Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 36

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 36
með jurtalitum og notaði mannshár í hár fólksins. Kristín Jónsdóttir og Höskuldur Björnsson hafa málað myndir af fólki við baðstofustörf og í Kennaraháskóla íslands hangir tréskurðarlágmynd eftir Ríkharð Jónsson af baðstofulífi. HlN ÝMSU Störf Einn er sá íslenskur myndlistarmaður, sem vísvitandi hefur reist húsmæðrum og vinnukonum þessa lands veglega minnis- varða. Þetta er Ásmundur Sveinsson myndhöggvari. Vegfarendur geta litið nokkur þessara verka hans augum, þó ekki á alfaraleiðum. Þetta eru Vatnsberinn á Golfskálahæð, Kona við strokk að baki gamla Árbæjar og Þvottakona við leifarn- ar af Þvottalaugunum gömlu í Laugardal. Tvær myndir enn gerði Ásmundur af þvottakonum og nefnist önnur Hvíld. Þar hallast kona fram á þvottabalann í hvíld- arstöðu. Á hinni myndinni eru tvær þvottakonur við sama þvottabalann. Mynd af gólfþvottakonu gerði Ásmundur einnig og er hún stundum kölluð Ráðskonan. Á mynd af Straukonu skýtur risavaxin kona hægri öxlinni hátt á loft í átökunum við þungt pressujárnið, sem svo sannarlega er ekkert nútímalagað straumlínustraujárn heldur eitt af járnunum, sem hituð voru á kolaeldavélunum áður fyrr. Halldór Laxness segir í grein um Ás- mund að Þvottakona og Vatnsberinn verki á sig sem helgimyndir, hinar líkist voldug- um minnismerkjum reistum hetjum nema Kona við strokk, sem vel gæti verið kona Sú var tíð, að húsmæður í Reykjavík fóru ina í Laugardal til að þvo þvott sinn og hefur Kristín Jónsdóttir lýst þessum þætti heimilisstarfa igæta vel í olíumálverki sínu, Þvottalaugarnar. Gömul eldhús virdast myndrænni og hafa miklu oftar orðið að myndefni en þau sem heyra til nútíðinni. Hér er þó eitt, sem er alveg úr nútímanum: Milli kl. 6 og 7, olíumynd eftir Ingunni Eydal, sem málað hefur margar myndir af heimilisstörfum. prestsins. Sjálfur segir Ásmundur um Vatnsberann: „... Þegar ég vann Vatns- berann, hafði ég tröllslega fjallamyndun íslands í huga. Og svo vinnukonurnar, sem ég sá í æsku minni brjótast út í hríðina og koma gaddfreðnar til baka með vatnsföt- urnar sínar...“ Örlygur Sigurðsson teiknaði mynd af drottningu íslenskra gólfþvottakvenna, Rúnu í Barði, með kúst sinn og tusku. Hinnar sérstæðu þvottaaðstöðu íslens'ka höfuðstaðarins við gömlu Þvottalaugarnar hafa þau minnst í myndum sínum Kristín Jónsdóttir og Eggert Guðmundsson. 1931 málaði Kristín bjarta, sumarglaða mynd af góðum þurrkdegi. Föt þvottakvennanna fjögurra verða ljós og létt í sumarbirtunni og skýluklútarnir skjannahvítir. Blámi vatns og himins, létt sumarský og gagnsæ gufan upp af laugunum renna saman í eitt. Verkið virðist konunum leikur einn og maður heyrir í huganum glaðlegt spjall þeirra. Lækjarþvottamynd Gunnlaugs Schev- ing, Konur við þvott (1932), býr yfir kynngimagnaðri dulúð og fegurð. Er þetta ekki huldukona, sú til vinstri, sem beygir sig fram og klappar þvott á steini, með þetta ótrúlega granna, langa bak, sem kannski sýnist enn lengra fyrir krosslögð, hvít svuntuböndin? Þykkt, rauðbrúnt hár- ið og hnúturinn í hnakkanum minna á myndir eftir Degas. Einhvernveginn finnst manni þetta ekki vera íslensk sveitakona, sem skolar þarna og klappar þvottinn í köldum læk. Stúlkuna með hvíta Kona laugar barn í potti. Lýsing úr bandriti fri 14. öld af Nikulássögu og einhver elzta mynd hérlendis af heimilisstörf- um. Eftir átta, vefmynd eftir Þorbjörgu Þórðardóttur. 36

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.