Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 40

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 40
Útsýni úr vestarí baðstofuglugga. Garðurínn mikli er farínn að hrynja. Botnsúlur í baksýn. leyfði Halldóri að byggja sér bæ á rústum gamalla seltófta norður í Þingvallahrauni, og gerði hann þar sæmilega bújörð. Jónas tók við búi föður síns 18 ára gam- all og þótti það vel gert af svo ungum manni. Síðar kvæntist hann Hólmfríði Jónsdóttur frá Hæðarenda í Grímsnesi. Þau eignuðust sjö börn en þau sem upp komust voru Halldór, fornbókasali og fjallamaður, Ásgeir, skipstjóri hjá Eim- skip, Jónína, fór til Vesturheims, og Elísa- bet, bjó í Reykjavík, gáfuð kona og skör- ungur. Son er Jónas hét átti bóndi i elli sinni með ráðskonu. Jónas tók fljótt við ýmsum trúnaðar- störfum fyrir sveit sína og varð hrepp- stjóri um langa æfi. Hann þótti einrænn í lund og ekki við allra skap. Mikill gáf- umaður að upplagi og áreiðanlega ekki á réttri hillu. Hann var með afhrigðum bókhneigður og lét hvern eyri em hann-átti aflögu ganga til bókakaupa. Enda átti hann að lokum stórmerkilegt og vandað bókasafn sem vakti furðu margra því að slíkur munaður stakk mjög í stúf við fá- tæklegan búnað torfbæjarins. Sumir virð- ast hafa lagt Jónasi þessi bókakaup til lasts, þótt slíkt óþarfi mikill. En þá svar- aði Jónas: — Ef ég hefði lagt þessa pen- inga í brennivín, þá hefðuð þið ekki sagt neitt. Kona Jónasar var mikil búkona og er sú saga sögð að einu sinni hafi bóndi farið með koffortahest til Reykjavíkur að kaupa mat til vetrarins. En þegar komið var heim í Hrauntún, var ekkert nema bækur í koffortunum. Þá mun húsfreyju hafa þótt nóg um bókakaup húsbóndans. Jónas í Hrauntúni mun hafa verið bókasafnari af ástríðu. Af lestri sínum varð hann ágæt- lega sjálfmenntaður, vel ritfær og glöggur reikningsmaður. Síra Jón bauð mömmu að skoða kirkj- una og fórum við þangað. Ekki man ég eftir öðru þar nema predikunarstólnum og þá vegna þess aö síra Jón gekk að honum, klappaði á hann og sagði: Þetta er nú stóll- inn minn. — Um leið brosti hann eins og barn. Hann fylgdi okkur út fyrir tún. Þar benti hann mömmu á götuna sem hún átti að fara og sagði henni að leita til sín ef hún þyrfti einhvers með. Kvöddum við síð- an þennan góða prest með virktum. Gengið Hraun- TÚNSGÖTUNA Gengum við nú sem leið lá inn í Leirur, þar sem söluskálinn er nú. Þar kom á móti okkur hár maður roskinn, grannvaxinn með alskegg, derhúfu á höfði klæddur mórauðum vaðmálsjakka og stuttbuxum með leðurskó á fótum. Hann steig létt til jarðar þó stór væri, höfðinglegur, erri- legur. Hér var þá kominn Jónas Halldórsson hreppstjóri í Hrauntúni. Hann hafði rauð- an hest í taumi, og með honum rann hund- ur af hreinu íslensku kyni, svart- og grá- flekkóttur. Bóndi tók móður mína tali. Hann var fáorður, talaði í stúttum snögg- um setningum og hálfhreytti út úr sér orð- unum. Samt var hann vingjarnlegur. Hann sagði okkur að halda áfram götuna því að eftir að hann hefði sótt föggur mömmu á prestssetrið ætlaði hann að hitta Guðrúnu greiðasölukonu í Konungshúsinu. Við mæðgurnar eigruðum nú áfram göt- una inn í hraunið. Lágt kjarr óx víða en ekki man ég til að nein hrísla á þeim vegi væri hærri en ég sjálf. En gamburmosinn þakti stórar breiður. — Hvenær kemur skógurinn, þetta var ekkert likt skógar- myndunum frá útlöndum í myndabókun- um, bærinn átti ekki að sjást fyrir skógi. Eftir alllangan tíma sáum við steingarð rísa á bakvið hraunhól. Þessi garður var mikið hærri en ég, einföld hleðsla svo jöfn og haganleg að hver steinn virtist til- höggvinn. Ofurlítið skarð var í þennan mikla garð og stungið í það birkilurk. Við gægðumst í gegnum skarðið. hrauntúnsbærinn Það var orðið kvöldsett, bjart yfir fjöll- um og bláleit sumarmóða brá undursam- legri mýkt yfir umhverfið. Túnið fyrir inn- an garðinn var allt í mjúkum öldum þar sem hraunhólarnir lágu undir grassverð- inum. Mitt í þessu fagra ilmandi grængresi reis bærinn Hrauntún, hlýr og vinalegur eins og torfbæir einir gátu orðið. Tvær burstir sneru til suðurs fram á hlaðið og bæjargöngin á milli. Baðstofan var með einum sexrúðu glugga á stafni og tveggja- rúðu glugga til vesturs. Stofan var með þrísettum glugga og klædd bárujárni. Baðstofan með eldhúsið og fjósið afturaf var allt klætt torfi. Vandlega hlaðin stétt úr hraunhellum var fyrir framan bæinn. Hlaða, fjárhús og skemma með þvotta- hjalli lágu við heimtraðirnar sem lágu í norður í átt að Ármannsfelli. Þrennir fjár- húskofar voru dreifðir um túnið. Austur af túninu var afgirt gerði sem notast var við sem kúahaga. Brunnhola var vestan undir baðstofuveggnum. Var þar sæmilegt drykkjarvatn þó að vatnsmagnið væri lítið. Þegar þvottar voru þvegnir í Hrauntúni varð að fara niður á Leirur og þvo við lækinn sem þar rennur enn. Þar voru hlóðir og þar við soðinn þvotturinn. Framan við bæinn var kálgarður með grónum vallargarði í kring. Allt var þarna með hinum mesta snyrtibrag, hver hlutur á sínum rétta stað. Upp við bæjarvegginn reis sleggja gerð úr blágrýtishnullungi með gati sem stungið var í vænum birki- lurk. Þetta var fisksleggja. Mamma barði að dyrum og út kom dökkhærður maður lágvaxinn með yfirskegg, léttur í hreyfing- um og alúðlegur. Þetta var Halldór sonur Jónasar bónda sem bjó hjá föður sínum. Þeir voru menn ekki líkir. Halldór fylgdi okkur inn göngin. Hurð lá inn í stofuna til hægri og önnur hurð inn í geymslukompu þar innar af. Gengið var upp tvö þrep inn í baðstofu til vinstri en í eldhús og fjós fyrir enda ganganna. í baðstofu voru fjögur rúm. Jónas bóndi svaf næst glugga og var borð undir glugg- anum. Lítil bókahilla, full af rímnakverum og riddarasögum, var yfir fótagafli á þili. Okkur mæðgum var vísað á rúmið gegnt rúmi bónda. Aftur af okkar rúmi svaf Bjarni Gíslason vinnumaður og Halldór gegnt honum. Ofurlítil kabyssa og tvær hillur fyrir bollapör og diska voru í hinum enda baðstofu. KONU-BJARNI Bjarni Gíslason vinnumaður var vel meðalmaður á hæð, rauðbirkinn með yfir- skegg, vel farinn í andliti, reistur í fasi, prúðmannlegur, greindur og skáldmæltur. Ekki veit ég uppruna hans, held þó að hann hafi verið af Norðurlandi vestra. Hann hafði víða verið, kennt börnum á vetrum en í kaupavinnu á sumrum. Hann hafði haft kvenhylli svo mikla að bændur höfðu rekið hann á miðjum vistráðn- ingartíma og þóst heppnir að konur þeirra hlupu ekki að heiman á eftir Bjarna. Vegna þessa hæfileika síns var hann manna á meðal nefndur Konu-Bjarni. Hann var talinn mjög vel hagorður en ekki veit ég með vissu um neina vísu eftir hann, það eru til svo margir Bjarnar Gíslasynir hagyrðingar frá þessum tíma. Bjarni var fremur hlýr við krakka en þó fáskiptinn. INNANBÆJARLÍF Að verkalokum og á helgidögum ræddu feðgarnir og Bjarni af kappi um stjórnmál og bókmenntir. Þeir voru ekki alltaf sam- mála. Halldór og Bjarni voru oft saman á móti Jónasi bónda. Mömmu líkaði ekki alltaf viðmót þeirra við húsbónda heimil- isins og þá sjaldan að hún lagði orð í belg hélt hún alltaf Jónasar taum. Gamla manninum þótti áreiðanlega vænt um þessa liðveislu. Mest gekk á þegar blöðin voru nýkomin. Þá sagði Jónas oft upp úr blaðalestrinum og hafði á miklar áherslur: Mikil-lifandis-ósköp-er fólkið vitlaust. — Annars voru rökræður í Hrauntúni með virðulegu yfirbragði. Menn voru prúðir og létu engan hleypa sér upp þó þungt gæti verið undirniðri. TÓBAKSLEYSI Allir tóku þeir Hrauntúnsmenn í nefið daglega og gOtt þótti þeim tárið en allt í hinu mesta hófi, ég vissi þá smakka vín í eitt skipti um sumarið og svo í réttunum. Minna gat það varla verið. En tóbaksleysi þoldu þeir ekki. Þar kom að enginn þeirra átti til korn í nös. Þá varð nú ansi hvasst í Hrauntúnsbaðstofu. Þeir urðu ekki sam- mála um neitt og loks snerist umræðan um kvenfólk, hvað það væri miklir gallagripir, heimskt og svikult. Einkum var það Hall- dór sem var þungorður í garð kvenna, enda lá orð á að stúlka hefði brugðið heiti við hann. Mamma hafði reynt að vera sem mest frammi í bænum meðan hríð þessi stóð en nú kom hún inn og heyrði stóryrði Hall- dórs um kvenfólkið. Þá mælti hún: Hafið þér móöur yðar með í þessum vitnisburði sem þér gefið öllum konum? Þá steinþagn- aði Halldór og þeir allir nokkra stund. Síðan tóku þeir upp annað tal. En ekki batnaði tóbaksleysið. Bjarni Gíslason bjóst til Reykjavíkur og kom brátt aftur með nóg tóbak og eitthvað á pelann. Það var lyfting yfir Bjarna þar sem hann stóð gleiður á baðstofugólfinu, klæddur bláum jakka sem fór vel við koparrautt hárið, hattinn aftur á hnakka, i reiðbuxum og háum stígvélum. Hann hélt á ofurlitlu ljóðakveri sem hann hafði keypt í Reykja- vík, Söngvum förumannsins. Bjarni las hátt og með miklum áherslum og rykkti til höfðinu undir lestrinum. Þú ert enn að greiða gjöldin gamla skáldið hefur völdin flytur rímlaus kvæði á kvöldin kvæðin eru um lífið fróð eiga draumsins geislaglóð gæfu þína og hjartablóð. Þögnin geymir þessi ljóð. Þú ert skáld á bak við tjöldin. Þá var nú glatt í Hrauntúnsbaðstofu. Stofan Og Bækurnar Virðulegasti staður Hrauntúnsbæjar var stofan. Hún var svo virðuleg að fyrstu dagana þorði ég ekki að líta þar inn. Við veggi hinnar blámáluðu stofu stóðu bókaskápar frá gólfi til lofts, bækur á borði, bækur á kistum, allt fullt af bókum, margar í skínandi nýju skinnbandi, gaml- ar bækur, sögubækur, fræðibækur, tímar- it, guðsorð, nýtt og gamalt. En langfalleg- ustu bókina, að því að mér fannst, hafði Jónas bóndi lagt handa mér á borðið. Stór þykk bók í gljáandi skinni gyllt á kili, meira að segja myndir innaní. Þessi bók var tímaritið Dýravinurinn með sögum eftir Þorstein Erlingsson, Þorgils Gjall- anda, Guðmund Friðjónsson og marga aðra ágæta dýravini. — Hvar skyldi þessi bók vera núna? — Fáir kunnu á þeim tíma betur að velja bók í hendur barni heldur en þessi þyrrk- ingslegi bókasafnari. Svipað mátti segja um þá Halldór og Bjarna. Þeir bönnuðu þær bækur sem ekki þóttu barna meðfæri en bentu á aðrar heppilegri. En freistarinn lá í leyni og ég stalst til að lesa hina bönnuðu bók, Makt myrkr- anna um þann rúmenska greifa Drakúla. Afskaplega fannst mér það skemmtileg bók. Ekki get ég fundið að hún hafi skaðað, enda glottu þeir Hrauntúnsmenn þegar upp komst um boðorðabrotið. Jónas hélt að mér ævintýrum og riddarasögum sem var til mikillar skemmtunar. Hafi bændur al- mennt á þeim tíma látið sér svo annt um lesefni aðkomubarna, þá er ekki að furða þótt íslenskri sveitamenningu sé viðbrugð- ið. Gestagangur Oft komu gestir að Hrauntúni, bæði ferðamenn af Kaldadal og úr Borgarfjarð- ardölum, Grímsnesingar og fólk úr Reykjavík. Jónas vildi að allir fengju góð- gerðir, annaðhvort kaffi eða mat. Nógur matur var lagður til en eldamennska var örðug því að allt varð að elda við kalvið á hlóðum. Einu sinni kom hópur af fólki að Hrauntúni. Þar voru bæði karlmenn og fínar dömur í för. Fyrir hópnum var Guð- mundur Finnbogason prófessor og Laufey Vilhjálmsdóttir kona hans. Öllum var boð- ið til stofu og hófst nú hinn venjulegi pönnukökubakstur við kalviðareldinn. Prófessorinn fór í eldhúsið og spjallaði við mömmu á meðan hinir gestirnir sátu á tali við bónda. Bestu góðgerðirnar þóttu hveitibrauðið heimabakaða með kæfu úr skinnbelg sem hékk í rjáfrinu í eldhús- reyknum. Eitt kvöld þegar allir voru háttaðir heyrðist spóinn vella ærið grunsamlega. — Það er gestahljóð í honum, sagði Jónas. Stuttu seinna rauk hundurinn upp. Hófa- dynur heyrðist í tröðum og hringl í beisl- um. Bóndi snaraðist í föt og gekk til dyra. Hann kom inn aftur að vörmu spori og á hæla honum afarhár maður höfðinglegur með afbrigðum, snar i augum og glettinn á svip. Þetta var Ólafur bóndi í Kalmans- tungu, sá sem sagt var um að hefði verið glæsilegastur bænda í konungsveislunni á Þingvöllum þegar Friðrik kóngur 8. kom 1908. Nú kom hann af fjallvegum á leið suður. KRÆKIBER Og bláber Ekki var mikið af berjum kringum Hrauntún þetta sumar. Helst var nokkuð um krækiber en sáralítið um önnur ber. En í Lágafelli við Hofmannaflöt voru bæði bláber og aðalbláber. Sagt var að aðalblá- ber væru í Mjóafellinu en þangað kom ég aldrei. Eina engjarós fann ég nálægt Stórkonugili en annars var allt bitið og nagað af sauðfénu. eingöngu Brennt kalviði Jónas Halldórsson lét sér mjög annt um skóginn. Hann taldi að nauðsynlegt væri 40

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.