Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 29

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 29
\G N E S SS ■HBW eljir þú hana dýrling þá er hún dýrlingur fyrir þér. Hvers f ■ 1 æskir þú frekar? Það er það sem við nefnum veruleika sálarinnar. Það er kjánalegt að heimta líka viðurkenningu heimsins ... “ „... Kraftaverk? Þau gerast hvarvetna. JSL Kraftaverk eru fyrirbæri sem menn geta skýrt. Kraftaverk Athyglisvert leikrit á fjölunum í Iðnó Ung nunna eignast barn, sem finnst dáið og hún er sökuð um að hafa myrt það, en leik- ritið er fyrst og fremst um átökin milli abbadísarinnar og geðlæknisins — trúarbrögð og vísindi takast á velta mikið á tíma og stað og því sem við vitum og ekki vitum. ... Tilveran er allt of mikið kraftaverk fyrir okkur til að taki því að gera svona mikið veður út af örlitlum frávikum frá því sem við í stærilæti okkar ætlum að' sé náttúrleg skipan. Svarið verður þú að finna í sannleika sálarinnar ...“ Þessar tilvitnanir eru teknar úr formálsorðum fyrir leikritinu „Agnes“ eftir bandaríska höfundinn John Pielmeier og er þar vitnað í Robertson nokkurn Davies. í þeim er fólginn meginkjarni þess sem verið er að fjalla um í leikritinu sem frumsýnt verður í Iðnó innan skamms. Dýrlingar og kraftaverk eru ekki beinlínis efst á baugi í íslensku nútíma þjóðfélagi þar sem næstum allar umræður fjalla um hinn ytri heim — efnahag og efnislega afkomu. Hinn þáttur þjóðlífsins — sálarheill- in — hin andlegu verðmæti hafa frekar verið sett til hliðar — eru talin allt að því einkamál kirkju og presta — en það er engu að síður mikilvægt að fólk almennt velti þeim fyrir sér og er reyndar ekki ólíklegt að nú- tímafólk bókstaflega þyrsti eftir því að skapa sér fót- festu á því sviði engu síður en hinu. í leikritinu er varpað fram spurningum varðandi þetta. Leikstjóri er Þórhildur Þorleifsdóttir. Hún er tvímæl- alaust einn fremsti leikstjóri okkar og er þekkt fyrir vönduð vinnubrögð. Hún var tekin tali og beðin að segja örlítið frá verkinu. Við höfum ekki setið lengi að spjalli þegar ljóst var að Þórhildur er afar hugfangin af þessu verkefni — og hún á létt með að hrífa aðra með. „Leikendur eru þrír,“ segir hún. „Þrjár konur, — abbadís, geðlæknir og ung nunna. Efnisþráðurinn er sá að unga nunnan eignast barn sem finnst dáið. Engin skýring fæst á faðerni barnsins. Unga nunnan er leidd fyrir rétt, sökuð um að hafa myrt barnið. Geðlæknir er fenginn til að kanna geðheilsu nunnunnar, leita skýr- inga og úrskurða um sakhæfi hennar. Við leituðum víða fanga þegar við fórum að æfa þetta leikrit," segir Þórhildur ennfremur, „vegna þess að ka- þólsk trú og viðhorf eru okkur fremur framandi. Við áttum tal við formann kaþólska safnaðarins hér og fórum í heimsókn í nunnuklaustrið í Hafnarfirði og áttum góðar samræður í báðum tilvikum. Sömuleiðis við geðlækna varðandi þetta viðfangsefni og urðum margs vísari. Leikritið er fyrst og fremst byggt á samskiptum abbadísarinnar og geðlæknisins — þarna takast á vís- indi og trúarbrögð — efnishyggja og mystik. Þarna er varpað fram sígildum spurningum um lífið og tilveruna en leikritið er um leið listilega uppbyggt sem „thriller" með vaxandi spennu: Hver var faðirinn? Hver myrti barnið? í átökum þessara tveggja kvenna verður unga nunnan raunar haldreipi beggja. Geðlæknirinn verður hugfang- inn af ungu nunnunni og gerir sér far um að kanna hvernig atburðirnir hafi átt sér stað — en getur ekki gert sér grein fyrir hvers eðlis þeir eru. Er hér um að ræða óræða hluti, mystik eða taugaveiklun — hysteríu? Abbadísin er þeirrar skoðunar að kraftaverk hafi gerst, að vísu ekki að hér hafi verið um að ræða Krist endurborinn — heldur kraftaverk af vísindalegum toga og guð hafi leyft það. Þegar líður á leikinn kemur smátt og smátt í ljós að heimsmynd beggja er brothætt — báðar hafa skapað sér falskt öryggi þegar tekist er á um lausnir á lífs- gátunni. Báðar hefja þær samræðurnar með hver sinn „stóra sannleika", en eftir því sem á leikinn líður hriktir í honum. Á milli þeirra á sér stað djúp fílósófísk umræða um eilífðarmálin og lífsgátuna sem seint ætlar að leysast. Áhorfendum er heldur ekki boðið upp á neitt svar — þeir eru skildir eftir með rofið skarð í þann múr sem báðar konurnar höfðu byggt sér. Höfundurinn þræðir hjá öllu fagmáli svo efnið verður öllum skiljanlegt. Og reyndar er það engin tilviljun að hann notar konur sem sögupersónur. Með því er honum auðveldara að blanda tilfinningum í leikinn — kafa dýpra í samræðurnar þar sem fræðimanninum sleppir og manneskjan tekur við.“ Og Þórhildur heldur áfram: „Eg tel að leikritið endurspegli talsvert það sem er að brjótast í fólki almennt, þótt við séum á ytra borðinu upptekin af efnishyggju. Inntak verksins er þó ekki gert einfalt á hvorn veginn sem menn hallast — með eða á móti trúarlegri mystik eða vísindalegri rökhyggju. En leikritið er uppfullt af mystik sem hver og einn getur skýrt eftir sínum vilja — bæði Ieikarar og áhorfendur. Hér er ekki verið að þröngva afstöðu upp á neinn. Við íslendingar eigum að vísu ekki neina kaþóiska hefð að byggja á, þegar við tökum þetta leikrit til skoð- unar — og erum sennilega ekki mikið heima í þeim hugsunarhætti og þeirri symbolik sem tilheyrir ka- þóiskri trú, táknum og rituali kaþólsku kirkjunnar. Samt er okkur ekki ofvaxið að skilja um hvað er verið að fjaila. Þetta eru mál sem brjótast um í öllum — nefnilega löngunin til að öðlast vissu, á hvern veginn sem er, hún býr í okkur öllum. Hitt er svo aftur staðreynd að þessi mál hafa allt að því verið útilokuð frá almennri umræðu lengi — eru allt að því „tabú“ — allir eiga helst að halda sér við stað- reyndir — menn eiga ekki að vera að blaðra um hluti sem ekki er hægt að höndla. Þannig hefur afstaðan verið. En ég tel að við verðum í engu verri manneskjur þótt þau komist á dagskrá." Hulda Valtýsdóltir. Guörún Ásmundsdóttir leikur abbadísina (lengst til vinstri) Guö- rún S. Gísladóttir leikur Agnesi (í miðju) og Sig- ríður Hagalín leikur geðlækninn. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. DESEMBER 1984 29

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.