Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 42
Kór Langholtskirkju syngur við messu undir stjórn Jóns Stefánssonar. Venjulega syngur fimmtibluti kórsins við messur í kirkjunni.
Fimm kórar í
einum stórkór
Það er ekki til neinn fulinægjandi sam-
nefnari fyrir þennan hóp. Hann saman-
stendur af fólki á ýmsum aldri, úr flestum
stéttum mannfélagsins. Þar er að finna
iðnaðarmenn, bankamenn, skólanema,
kennara, hjúkrunarfólk, lækna, húsmæður
og sjálfstæða atvinnurekendur. Allir eiga
þó félagarnir það sameiginlegt að vilja
starfa með kórnum. Þeir verja frístundum
sínum í þágu hans, efla hann og setja
markið sífellt hærra.
TÍMAFREKT
tómstundastarf
Söngáhugi er með ólíkindum á íslandi, en lík-
lega starfa fáir kórar af slíkum eldmóði sem
Kór Langholtskirkju. Hann hefur starfað í
rúm þrjátíu ár sleitulaust og setur markið
stöðugt hærra en áður. Kórinn á að baki
Kór Langholtskirkju
starfar af eldmóði og hef-
ur staðið að plötuútgáfu og
tónleikaferðum utanlands
og innan — og nú er söng-
ferð til Vínarborgar á döf-
inni
marga stóra sigra. Hann hefur flutt á tón-
leikum mðrg helstu tónverk sem skrifuð
hafa verið fyrir kóra og ætíð fengið lof
fyrir fágaðan, en jafnframt líflegan flutn-
ing. Hann á að baki plötuútgáfu, tónleika-
ferðir utanlands og innan og upptökur
fyrir útvarp og sjónvarp. Flestum er ef-
laust í fersku minni sjónvarpsþættirnir
Tökum lagið, sem hafa verið á döfinni af
og til síðastliðið ár. Kórinn hefur, auk alls
þessa, orðið uppvís að margs konar uppá-
komum eins og til dæmis að vaka og
syngja heilan sólarhring.
31 ÁRS SlGURGANGA
Kór Langholtskirkju var formlega
stofnaður 23. mars 1953 og hét þá Kirkju-
kór Langholtsprestakalls. Fyrsti stjórn-
andinn var Helgi Þorláksson, organisti.
Kórfélagarnir voru 14 talsins. Árið 1964
var Jón Stefánsson, þá 17 ára stráklingur
úr Mývatnssveitinni, ráðinn organisti við
prestakallið. Hann tók jafnframt við kór-
stjórninni. Frá þeim tíma var brotið blað í
sögu kórsins. Fram að þeim tíma hafði
starfið að vísu verið öflugt en undir hand-
leiðslu Jóns fóru hjólin að snúast svo um
munaði.
EFTIR GUÐLAUGU
GUÐMUNDSDÓTTUR
Árið 1973 urðu enn ein tímamót í sögu
kórsins, en þá var starfsháttum hans
breytt í þá veru sem þeir eru núna og hlaut
hann þá nafnið Kór Langholtskirkju.
Kórfélögum var fjölgað úr 18 í 36 og mæt-
ingarskylda í messur minnkuð. Þessi
Kórinn hefur fasta æfingartíma tvö
kvöld í viku. Þar að auki syngur hver kór-
félagi við messur í kirkjunni um það bil
Messa í Langholtskirkju. Kirkjukórinn, sem venjulega syngur við messur, er innst íhorninu til
hægri.
breyting var hrein bylting og er ennþá
einsdæmi í röðum íslenskra kirkjukóra.
Kórfélagar eru núna orðnir 60. Verkefna-
skráin er þegar orðin glæsileg en engan
bilbug er að finna á félögunum eða stjórn-
anda. Ennþá er sótt á brattann og hátind-
ur göngunnar er ekki einu sinni í sjónmáli.
einu sinni í mánuði. Innan stóra kórsins
eru fimm litlir kórar sem skiptast á um
messusönginn. Á stórhátíðum eru mæt-
ingar tíðari því þá eru sameinaðir fleiri en
einn kór. Með þessu er sagan þó ekki nema
hálfsögð því umsvif kórstarfsins spanna
víðari svið. Stórtónleikar eru haldnir að
42