Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 20
kostlegt og kapítuli út af fyrir sig — svo gerólíkt öðrum ferðalögum sem við höfum farið. Ég held líka að við höfum upplifað Japan á dálítið annan hátt en venjulegir ferðamenn. í slíkri ferð kynnist maður fólkinu betur vegna sameiginlegra áhuga- mála. Við vorum valin fulltrúar Norður- landa á þessa tónlistarhátíð í Japan. Tvo fyrstu dagana okkar í Jr.pan vorum við íslendingarnir heiðursgestir í borginni Ueda en síðan hittust allir þátttakendur í Nagano þar sem hátíðin fór fram. Kórinn hélt fjölda tónleika í nafni hátíð- arinnar og að henni lokinni var okkur boð- ið að halda aukatónleika í Tókýó. Þetta ferðalag verður okkur öllum ógleymanlegt." „Ég hef oröið vör viö að menn ruglast stundum á þessum tveim kórum: Kór Menntaskólans viö Hamrahlíð og svo Hamrahlíðarkórnum. Hvernig varö Hamrahlíðarkórinn til?“ „Kór Menntaskólans við Hamrahlíð hef- ur starfað í 17 ár. En það var fyrir fjórum árum að skólakórinn var að æfa „Daphne og Cloé“ eftir Ravel með Sinfóníuhljóm- sveit íslands undir stjórn Jean Pierre Jacquillat. Hann taldi nauðsynlegt aö stækka kórinn. Það var ekki langt í tón- leikana og ekki hægt að æfa upp nýtt fólk. Þess vegna var ákveðið að kalla til gamla kórfélaga sem höfðu lokið námi við skól- ann. Þetta varð afar spennandi hópur — 80—90 ungir hressir krakkar. Og þessir tónleikar urðu eiginlega „grand success". Ári síðar var leitað til okkar frá Pólý- fónkórnum um hvort við vildum flytja með þeim „Mattheusarpassíuna" og þá var safnað liði á sama hátt. Þegar ég kom aftur til starfa eftir árs orlof haustið 1982 var ákveðið af hálfu Hamrahlíðarskólans og menntamálaráðu- neytisins að kórarnir mættu vera tveir við skólann og nú er starfandi 70 manna kór með nemendum skólans en í hinum, Hamrahlíðarkórnum, eru 40 kórfélagar sem eiga það sameiginlegt að hafa lokið námi við skólann og hlotið þjálfun í skóla- kórnum. Jú, mér finnst þetta starf allt geysilega spennandi og raunar allt starf sem hefur með fólk að gera. Kórfélagarnir eru bæði duglegir og áhugasamir og það er hreint ótrúlegt hvað þeim hefur tekist vel að skila þessum stóru verkum sem við höfum verið að fást við. Það býr svo mikil orka í þessum ungu manneskjum. Reyndar finnst mér heyrast allt of lítið af því jákvæða sem ungt fólk er að fást við. Það er frekar tínt til sem fréttaefni fjöl- miöla ef einhverjum hefur orðið eitthvað á og sagt frá því á neikvæðan hátt. Aftur heyrist minna frá þeim venjulegu mann- eskjum sem standa sig vel og vinna verk sín af heiðarleika og einlægni og án þess að ganga á annarra hlut. Mín reynsla af samskiptum við þetta unga fólk er jákvæð allt í gegn. Þarna er fólk sem býr við misjafnar aðstæður og þarf að leggja mikið á sig í kórstarfinu. Ég get nefnt sem dæmi unga stúlku sem býr í Hreppunum og þarf að keyra til Reykja- víkur til að komast á æfingar. Hjá þessu unga fólki fara saman hæfileikar og áhugi á starfinu — og uppeldi skiptir miklu rnáli." „Vel á minnst uppeldi — hvað um þitt?“ „Ég er alin upp við tónlist og mikla tón- listariðkun. Foreldrar mínir voru bæði kennarar og allt gekk út á skóla og lærdóm heima hjá okkur um leið og velgengni nemendanna. Skóli var alltaf stór partur af tilverunni." „Þið eruð fímm systur og þar af fjórar sem hafa getið sér gott orð á tónlistar- sviðinu.“ „Já, við vorum aldar upp við mikla mús- ík og vorum í bernsku spilaðar og sungnar í svefn á kvöldin. Og við ólumst upp við gífurlega iðjusemi foreldra okkar. Föður minn, Ingólf Guðbrandsson, þarf ég varla að kynna svo þekktur sem hann er af sínu tónlistarstarfi, en hafi einhver í fjölskyldunni unnið til þess aö heita lista- maður, þá er það móðir okkar, Inga Þor- geirsdóttir sem á heiðurinn skilið — því hún hefur verið bjargið að baki okkar og stutt okkur og hvatt. Hún var kennari í barna- og gagnfræðaskóla í 38 ár jafn- framt því að ala upp 5 börn. Slíku starfi tengist umhyggja fyrir öllu lifandi — sem gefur aftur ungviði tilefni til að þroskast manneskjulega eða tilfinningalega sem er þýðingarmest." „Hvar ert þú í röðinni af ykkur systr- um?“ „Ég er elst og hef ef til vill þess vegna þroskað einhverja forystuhæfileika," segir Þorgerður og hlær við. „Sú okkar systra sem er ekki í músíkinni er framkvæmda- stjóri öldrunarlækningadeildar Landspít- alans. Við systurnar höfum alltaf verið mjög samrýndar og þurftum lítið að leita út fyrir hópinn. Heimilislífið miðaðist allt við tónlist og skóla. Ég man til dæmis eftir fyrstu árum Sinfóníuhljómsveitarinnar þegar foreldrar okkar fóru alltaf á þá tónl- eika. Þá voru beinar útsendingar í útvarp- inu frá tónleikunum og ég held að þau kvöld hafi ekki verið minni hátíð hjá okkur systrunum sem vorum heima. Við flýttum okkur að laga til í stofunni og fórum í spariföt og settumst við útvarpið og höguðum okkur hreint eins og við vær- um á tónleikum. Stundum fórum við í ball- ettbúninga sem mamma hafði saumað og dönsuðum um stofugólfið eftir músíkinni meðan á útsendingu stóð.“ „En hvernig var svo menntaferill þinn, Þorgerður?" „Ég varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík og reyndar útskrifuðumst við systurnar allar þaðan á 10 ára tímabili. Síðan tók ég tónmenntakennarapróf frá Tónlistarskólanum en var búin að vera í skipulögðu tónlistarnámi frá sjö ára aldri. Samtímis námi mínu við Tónlistarskólann var ég tvö ár í guðfræðideild háskólans hér vegna áhuga míns á kirkjutónlist. Eftir það fór ég til Bandaríkjanna til að vinna að meistaragráðu við „University of Ulino- is Graduate School" og var þar í tvö ár. Þegar ég kom heim fór ég að starfa við Hamrahlíðarskólann. Og upphafið að þvi var að ég var einu sinni sem oftar stödd heima hjá vinafólki mínu, Róbert A. Ottóssyni og Guðríði konu hans, en Róbert var hálfgerður músíkpabbi minn. Hann ákvað að hringja í rektor Hamrahlíðarsk- ólans og spyrja hvort ekki væri áhugi á að fá unga stúlku til að æfa nemendur í söng. Guðmundur Arnlaugsson sem þá var rekt- or tók því vel og þá voru örlög mín ráðin. Svo var kórinn stofnaður og ég man að í fyrsta skipti fórum við út úr skólanum til tónleikahalds á jólunum 1967 og sungum fyrir vistfólkið á Kleppi og eftir það á fleiri sjúkrahús. Síðan höfum við haldið fast við þennan sið.“ Ég veit að Þorgerður þjónar margskiptu hlutverki og við forum að telja þau upp í gamni: Hún er kórstjóri, kennari í Tón- listarskólanum, á sæti í stjórn Bandalags íslcnskra listamanna sem fulltrúi Félags íslenskra tónlistarmanna, og sem slíkur í stjórn Kjarvalsstaða, hún er í fulltrúaráði Samtaka um byggingu tónlistarhúss í Reykjavík og loks bætir hún við: „... sendisveinn Hamrahlíðarkórsins, hús- móðir í Norræna húsinu og eiginkona út- lends skálds á íslandi". Næsta spurning er hvort hún eigi eftir- lætisverkefni á tónlistarsviðinu. „Ég svara bara eins og menn gera oft: Það verkefni er skemmtilegast sem ég er að fást við hverju sinni, að því gefnu að verkefnið sé einhvers virði og manni þyki vænt um það. En ef þú spyrð á gamla mátann: Hvað vildirðu helst hafa með þér ef þú ættir að setjast að ein á eyðieyju og þú mættir hafa með þér eina bók og tón- verk, þá mundi ég svara: Biblíuna og verk Bachs." Og Þorgerður heldur áfram: „Kórstarf er ákaflega fjölbreytt og skemmtilegt — og eftir þetta langan feril er ekki síst mikilvægt að halda uppi merkinu — hafa alltaf markmið að keppa að. Og markmiðin okkar eru í því fólgin að flytja og kynna tónverk eins vel og okkur er unnt og svo þegar við ferðumst erlendis, að geta þá kynnt tónlist landsins okkar sem við erum svo gæfusöm að eiga. Ég hef farið ellefu sinnum utan með kór í þessu skyni. í fyrsta skipti með skólakór- inn til Bretlands 1971 á mikla alþjóðlega kórahátíð. Síðan 1973 til Noregs til að taka þátt í lokakeppni æskukóra á Norðurlönd- um og 1975 til Svíþjóðar til þátttöku í sams konar keppni. Árið 1976 fórum við til Englands til að taka þátt í tónlistarhátíð, sem nefnist „Europa Cantat" (Evrópa syngur). Árið 1977 fórum við tvisvar til útlanda — til Danmerkur til að taka þátt í norrænni samkeppni æskukóra (þá var mjótt á mun- unum að við fengjum fyrstu verðlaun) og síðar á árinu til ísrael, en þangað var okkur boðið að koma á listahátíðina „Zimriya". Upphafið að því var að þegar við vorum í Bretlandi 1976 var þar staddur fulltrúi frá ísrael sem bar fram þetta boð til okkar og hann kom svo hingað til ís- lands til að staðfesta það. Reyndar hafði ég farið áður ein til ísrael sem kórstjóri. Árið 1979 vorum við orðin aðilar að Evr- ópusamtökum ungra kóra sem standa að „Europa Cantat“-hátíðunum og fórum það ár til Luzern í Sviss. Árið 1981 fórum við til Þýskalands en frumkvæðið að því ferðalagi átti þýskur orgelleikari og kór- stjóri — stórkostlegur persónuleiki, Almut Rössler. En mágur minn Hörður Áskelsson var þá að ljúka námi í Þýskalandi og stóð að skipulagningunni. Arið 1982 fórum við til Belgíu til að taka í þriðja sinn þátt í hátíðinni „Europa Cantat". Þar vorum við valin sem tema inn í kvikmynd sem gerð var um hátíðina. Tveir kórar voru valdir úr 86 kórum — við og kór frá ísrael — þeir áttu að vera hvor úr sínu umhverfinu. Kvikmyndagerðar- mennirnir komu hingað í júlí til upptöku. Hitinn var svona rétt um frostmark og við fórum til Krísuvíkur og sungum þar út í vindinn. Það var varla stætt fyrir roki. Hitt liðið var svo myndað í ísrael, másandi af hita. Síðan var fylgst með okkur meðan á hátíðinni stóð þar sem við vorum við tónleikahald, störf og leik. Árið 1983 var okkur boðið til Svíþjóðar af Rikskonserter og þá ferðuðumst við um Svíþjóð þvera og endilanga og héldum 14 tónleika en hófum ferðina með tónleikum í Niðarósdómkirkju í Noregi. Ég hafði áður farið ein til Noregs 1977 þegar ég var beðin að kynna trúarleg ís- lensk þjóðlög í Kristiansand en ég hef gert töluvert af því aö kynna slíkt erlendis. Norska útvarpið tók upp þá tónleika og það gekk allt vel. Svo veit ég ekki fyrr en dimman morgun í ferbrúar er hringt til mín eldsnemma. Þetta var þá frá norska sjónvarpinu, Erik Bye, en ég vissi ekki þá að hann er stórstjarna í Noregi. Hann var þá að bjóða mér að koma með prógramm í norska sjónvarpið — við höfum heyrt svo mikið um þig, sagði hann. Þá var kórinn minn með stórt verkefni eftir Hándel með sinfóníuhljómsveitinni svo ég varð að afþakka boðið, en hann vildi þá fresta því til haustsins, og það varð úr. Ég var svo heila viku í Osló meðan á þessu stóð og var borin á höndum allan tímann — með hótelherbegið fullt af blómum svo mér fannst ég vera eins og einhver Liv Ullman. Þetta var svolítið öðruvísi ferðalag en þegar ég er með kórinn því þá er í ýmsu að snúast. En ég lauk við prógrammið og hætti að vera Liv Ullman. Sumarið 1980 var mér svo boðið að syngja í Niðarósdómkirkju á hátíð Ólafs helga — Ólafsvöku. Þar bættust við fleiri prógrömm, m.a. fór eitt fram á Stiklastað undir berum himni þar sem voru um 6.000 áheyrendur. Þorgerður tekur á móti bjartsýnisrerðlaunum frá Bröste í þessari ferð var ég beðin að taka þátt í dagskrá sem efnt var til vegna norskrar útgáfu á Lilju Eysteins Ásgrímssonar og þá er komið að því að segja frá því hvernig ég kynntist manninum mínum. Ég var að æfa af kappi hjá Göggu Lund, þeim yndislega kennara mínum, fyrir dagskrá um sumarið. Þá er það einn góð- viðrisdaginn að Thor Vilhjálmsson vinur minn er alltaf að hringja og segist vera með eitt mesta skáld Noregs sem eigi að vinna þetta Lilju-prógramm með mér og hann vilji koma og kynna hann fyrir mér. Ég var eitthvað treg og tímabundin en loks var þó ákveðið að þeir skyldu koma. Ég er svo að fjasa um þetta við systur mína — hvað get ég svo sem boðið þessu gamla skáldi — og í því er dyrabjöllunni hringt og þar stendur Thor og elskulegur eigin- maður minn. Hann hafði þá verið alveg eins tregur að koma — hafði takmarkaðan áhuga á einhverri gamalli söngkonu — en þar með kviknaði ást okkar og það var Lilja bróður Eysteins sem leiddi okkur saman." Knut Ödegárd þýddi ljóðið á norsku eins og kunnugt er og Þorgerður sýnir mér viðhafnarútgáfu, innbundna í blátt flauel með teikningum eftir séra Björn Björnebo, mikinn dýrgrip. „Geturðu lýst því hvernig var svo að syngja cinsöng í Niðarósdómkirkju?" „Það er ólýsanlegt. Kirkjan er gamall norskur helgidómur sem Norðmenn hafa vandað sig gífurlega við að endurreisa, stílhrein bygging og allt sem þar fer fram er með mikilli reisn. Þarna býr saga og trúarhelgi í hverjum kima óg staðnum fylgir ákveðinn kynngikraftur. Þetta er staður sem fólk hefur leitað til í gleði og sorg og fengið þar leiðsögn og styrk. Stað- urinn tengist líka sögu íslands sterkum böndum. Nei, því verður ekki lýst — það er svo stórkostlegt." „En Japansferðin — hvað er eftir- minnilegast úr henni?“ „Ég held að mér finnist ekki eftirminni- legast það sem slegið er upp í fréttum og hljómar sterkt. Það lætur ekki hátt í því sem mér finnst mest virði — nefnilega það sem eftir situr hjá unga fólkinu sem fór þessa ferð — það sem hefur snert hjarta- strengina og hverfur ekki. Þau góðu áhrif.“ „Við höfum hvorki minnst á Sonning- verðlaunin sem þú fékkst 1975 eða Bröste-verðlaunin, svokölluð „bjartsýnis- verðlaun" sem þér voru veitt sumarið 1983 — né heldur starf þitt með barna- kórum ... “ „Ég er ákaflega þakklát fyrir þá viður- kenningu sem felst í þessum verðlauna- veitingum, en varðandi barnakórana er það að segja að ég starfaði í mörg ár með barnakór sem söng við miðnæturguðsþjón- ustu á jólunum hjá Sigurbirni Einarssyni biskupi en það var í samvinnu við Róbert A. Ottósson. Síðan varð hlé á þessu um stund þangað til fyrir tveimur árum að ég hóf barnakórastarf að nýju. Sá kór var rekinn sameiginlega af Tónlistarskólanum í Reykjavík og Hallgrímskirkju. Börnin í þessum hópum mínum hafa verið frá 6—14 ára að aldri og það hefur verið yndislegt að vinna með þeim, þótt það sé erfitt að hafa börn á svo ólíkum aldri í sama kórnum." Og Þorgerður heldur áfram: „Góð tónlist hefur göfgandi áhrif sé rétt með hana farið. Ef til vill gætir þessara áhrifa enn meira á áhugamannasviðinu — þá verður til samruni sálanna við sameig- inlegt átak, því bara það að syngja saman lítið iag krefst vissrar ögunar og mikillar tillitssemi — og slíkt þroskar manneskj- una. Ég er nú búin að starfa við kórstjórn æði lengi, eða ein 17 ár, og nú má segja að Hamrahlíðarkórinn sé kominn á fastan grundvöll. Hann hefur hlotið margskonar viðurkenningar og er orðin „stabíll", en þegar ég segi þetta er mér jafnframt ljóst að ég er ekki ein um heiðurinn þótt ég hafi verið stjórnandinn. Aðrir hafa undirbúið jarðveginn og þá er ég að hugsa um pabba, Róbert A. Ottósson o.fl. En ég verð stund- um vör við það að ungt fólk sem er að koma frá námi núna sér ekki að aðrir hafá rutt brautina — gengið veginn á undan. Svona starf sprettur ekki af engu. Gagnvart sjálfri mér hef ég stundum fundið fyrir því að fólk hugsar sem svo: getur stelpa eða kona staðið í svona starfi — er hægt að taka hana alvarlega? Og stundum þarf mikið til að sannfæra fólk um að svo sé. En þetta segi ég nú án allrar beiskju. Aðalatriðið er hvar kjarninn liggur í svona starfi. Ég reyni eins og ég get að ala þetta unga fólk upp við góða tónlist svo það geti notið hennar og miðlað henni — svo hún verði partur af lífi þeirra. Ég veft að ég er stundum ströng, en þá má líka spyrja: Er það ekki nokkurs virði ef starf hefur þau áhrif á ungt fólk að það verði betri mann- eskjur og hafi góð áhrif á aðra?“ 20

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.