Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Síða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Síða 13
A'ií er ljóstæknin notuð tíl að gefa hugmynd nm Valhöll. Hér er atriði úr Rínargullinu. 138 SÝNINGAR Á HRING NIFLUNGSINS Fyrstu hátíðahöldin í Bayreuth hófust síðdegis þann 13. ágúst 1876 með flutningi fyrsta hluta „Hringsins", Rínargullsins. Ludwig II., sem verið hafði viðstaddur lokaæfingar var fjarri, en margt var þó stórmenna, s.s. Wilhelm I. Þýskalands- keisari og Dom Pedro keisari Brasilíu. Tókust hátiðahöldin stórkostlega og lauk hinn 30. ágúst. Fram til þessa dags hafa sýningar á „Hring Niflungsins" í Bayreuth orðið 138 á 59 sýningarárum. Aðsóknin er gífurleg. Nú í ár voru á hátiðahöldunum auk „Hrings- ins“ einnig sýndar óperurnar „Hollending- urinn fljúgandi", „Parsifal" og „Meistara- söngvararnir frá Niirnberg". Urðu sýn- ingar alls 28 á tímabilinu frá 25. júli til 29. ágúst auk lokaðra sýninga, m.a. fyrir fé- laga alþýðusambandsins þýska. Var upp- selt á allar sýningar og hátíðagestir alls hátt í sextíuþúsund, en komust þó færri að en vildu og varð að vísa frá um þrjátíu þúsund að sögn ráðamanna í Bayreuth. Virðist þar litlu skipta hátt miðaverð, sem er allt að 2.200 kr. fyrir hverja sýningu. Sjálf eru hátíðahöldin mjög viðamikil í framkvæmd og margt um manninn þær 5 vikur sem sýningar standa. Markast sá stutti tími af sumarleyfum listafólksins sem fram kemur, þar sem óframkvæman- legt væri að fá til samstarfs svo stóran hóp á öðrum árstíma. Mun t.d. hópur einsöngv- ara í ár hafa verið talinn á sjöunda tug. Fjöldi starfsfólks er og mikill. Má sem dæmi nefna að við sýningu eru um 80 starfsmenn við störf að tjaldabaki. Ekki má við slíka upptalningu gleyma hátíða- gestunum, sem komnir voru hvaðanæva og við upphaf sýninga og í leikhléum settu á svið sýningu ekki síður athyglisverða en óperurnar ef dæma má af fjölda staðarbúa sem þyrpist að til að skoða þetta fólk, sem djásnum skreytt og uppábúið, hvort heldur á vest- eða austræna vísu gekk hægum skrefum í trjágarðinum umhverfis bergj- andi á kampavíni spaklega þenkjandi um list þá, sem framin var á fjölum þessa gamla húss. Byltingarmaður I Dresden Sviðið er Evrópa í umbrotum á fimmta áratug 19. aldarinnar. Hásætum er velt, forn landamæri útmáð og almúginn gerir sér götuvígi og skekur vopnin. Richard Wagner er kominn til Dresden ásamt konu sinni, þar sem hann þrítugur hafði hreppt stöðu tónlistarstjóra við hið Konunglega saxneska hirðleikhús þar. Þangað komu þau hjón frá París þar sem Niflungahringurinn endar á Götterdammer- ung, eða Ragnarökum, og er þessi sviðsmynd þaðan. Árið 1871 kemur Wagner í fyrsta skipti til Bayreuth. Hann hafði af afspurn og alfræðibókum kynnst óperuhúsi því sem Wilhelmína markgreifynja hafði látið byggja og vonaðist til að húsið myndi fall- ið til sýninga á verkum hans, en svo reynd- ist ekki. Lega bæjarins og stærð féll hins vegar prýðilega að hugmyndum Wagners um eigið óperuhús. Fann hann stað í út- jarði bæjarins á skógi vaxinni hæð sem honum leist vel á og festi sér. Sama ár tilkynnir hann opinberlega í Leipzig að fyrstu hátíðahöldin í Bayreuth muni fara fram að sumri 1873. Að því vann nú Wagn- er öllum árum með hjálp konungs síns Ludwigs II., enda þótt ráðgjöfum hins síð- arnefnda muni síður en svo hafa litist á áætlanir skáldsins. Ekki var nóg með að Wagner litist vel á Bayreuth til þeirra hátíðahalda og sýninga á verkum sínum sem hann hafði lengi dreymt um, heldur ákvað hann, þreyttur á flökkulífinu, að reisa þar heimili sitt. Fann hann því stað í jaðri garðs hallar þeirrar, sem Wilhelmína prinsessa og markgreif- ynja hafði byggt rúmri öld áður. Var húsið fullgert á þremur árum og flutti Wagner inn með fjölskyldu sína vorið 1874. Valdi hann húsinu nafnið „Wahnfried", sem á íslensku gæti útlagst Ginningafró. HORNSTEINN LAGÐUR 1872 Reyndist gestkvæmt i húsi þeirra Wagn- ershjóna, Richards og Cosimu. Sótti þau heim fjöldi listamanna, sem og frammá- manna í efnahagslífi og stjórnmálum þess tíma. Húsið skemmdist nokkuð í loftárás- um síðari heimsstyrjaldarinnar en hefir nú verið endurbyggt í fyrri mynd. Er nú 1 því safn mikið og gott, í minningu Rich- ards Wagner og verka hans. Safninu er fyrirkomið í réttri tímaröð þannig að ganga gestsins um sali og ganga er ekki einungis ferð í rúmi heldur og tíma, þar sem ár skáldsins og verk þess líða hjá. í dagstofunni stendur veglegur flygill, sem raunar var gjöf frá Steinway hinum ameríska til Wagners í tilefni fyrstu hátíðahaldanna í Bayreuth, en þar eru nú leiknar af tónböndum og skífum hljóðritanir af verkum Wagners. En víkjum nú sögunni enn á ný aftur í aldir og að óperuhúsi Wagners sjálfs. Þann 22. maí 1872 leggur skáldið hornstein að húsinu í blýhólk sem vera bar. Til að halda upp á daginn stjórnaði Wagner svo sjálfur 9. symfóníu L. van Beethoven í óperuhúsi markgreifanna, þar í Bayreuth Wagner hafði sjálfur mjög ákveðnar hugmyndir um byggingu hússins, er skyldi reist sem eins konar umgjörð um verk hans, þó fyrst og fremst óperuflokkinn „Hring Niflungsins". Segir skáldið í fyrir- mælum sínum að sparað skyldi eftir föng- um við gerð sjálfs hússins. Skreytingar engar og byggt skyldi úr við. Allan sviðs- búnað og tæki skyldi miða við uppfærslu listaverksins. Þar skyldi allt vera sem full- komnast. Wagner bætir því við að söngv- arar og listafólk muni aðeins fá greiddan kostnað, en enga þóknun fyrir framlag sitt. „Sá sem ekki kemur til mín sakir heiðursins eða af áhuga, þann sama læt ég sitja heima." LUDWIG II. BJARGAR MÁLINU Fjármögnun byggingarinnar reyndist Wagner erfið. Hann hafði hugsað sér að selja bréf til fjáröflunar en sú sala gekk illa. Bárust honum þó peningar víða að, m.a. frá Khedivanum af Egyptalandi. Þeg- ar Wagner var nærri gjaldþroti með fram- kvæmd sína var honum boðið mikið fé ef hann vildi flytja aðsetur hátíðahaldanna til Berlínar en hann afþakkaði. Þegar svo var komið hljóp konungurinn vinur hans Ludwig II. undir bagga og veitti honum stórlán til byggingarinnar þannig að húsið varð fullgert. Sagt er að við gerð hússins hafi Wagner haft í huga leikhúsið í Riga, þar sem hann hafði starfað aldarfjórðungi áður. Þar mun gólf áhorfendasalar hafa hallað fram að sviðinu, hljómsveitin verið falin áheyr- endum og mögulegt að deyfa ljósin í saln- um, sem var óvanalegt í þá tíð. í dag stendur „das Festspielhaus" í Bay- reuth að miklu óbreytt á hæð spölkorn frá miðborginni. Er í brekkunum trjágróður og tjarnir; fögur umgerð. Er eitt trjánna þó deyjandi; hátt og beinvaxið grenitré með drúpandi lim og gisið barr. Tímanna tákn, þar sem náttúran er farin að láta á sjá vegna vaxandi spillingar lofts og vatns. Sjálft er „das Festspielhaus" fábrotið hið ytra og klætt tígulsteini. Allir innviðir eru úr tré og salurinn málaður gráum litum og ríkir hið innra sami einfaldleiki. Súlnarað- ir eru með veggjum og á gólfinu mikill halli fram að sviðinu. Áhorfendabekkir eru í fátæklegasta lagi, setið er þétt og rúmar salurinn yfir 1.500 áhorfendur í sæti að meðtöldu rými í stúkum aftan við sjálfan salinn. Sjálf er hljómsveitin falin áheyrendum og er að nokkru leyti komið fyrir undir leiksviði. Stjórnandinn stendur þó þannig að hann hefir góða yfirsýn bæði hvað varðar söngvara og hljómsveit. Sjálf- ur kallaði Wagner hljómsveitargryfjuna „hið dulræna hyldýpi", sem skilur að raunveruleikann (áhorfendur) og hugsjón- ina (sviðið). Öll er bygging hússins á þá lund að sem best megi njóta þeirra verka Wagners sem eru flutt. Einfaldleiki salar og fyrirkomu- lag hljómsveitar gerir að fátt glepur augað frá því sem fram fer á sviðinu við sýningu auk þess sem hljómburður er með miklum ágætum. LESBÖK MORGUNBLAÐSINS 22. DESEMBER 1984 13

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.