Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 27

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Blaðsíða 27
Að hrópa tíu sinnum á dag Sigurður / blutverki Fausts í NUrnberg 1943. Fyrir skömmu birtist hér í blaðinu samtal við Hilmar Skagfield verksmiðjueiganda í Tallahassee og ræðismann íslands þar og var m.a. minnst á föður hans Sigurð Skag- field óperusöngvara og dvöl hans í fanga- búðum nasista á styrjaldarárunum. Les- bók hafði áhuga á að kynna sér nánar ævi Sigurðar og örlög og fékk í því skyni heim- ildir hjá Hilmari til að vinna úr efni í þessa grein. Sigurður Skagfield var lang- dvölum erlendis og aflaði sér mikillar menntunar, enda vel búinn undir starf sitt sem óperusöngvari. Hann kvæntist Lovisu, móður Hilmars Skagfield, 1922 og var þá 27 ára gamall, fæddur 29. júní 1895, en lést sama mánaðardag í september 1956. Lov- isa var dóttir Alberts Kristjánssonar bónda á Páfastöðum í Skagafirði og Guð- rúnar Ólafsdóttur og var Albert síðari maður hennar. Að lokinni námsdvöl á Hól- um í Iljaltadal varð hann ráðsmaður hjá Guðrúnu, sem þá var ekkja eftir Stefán Jónasson á Páfastöðum og giftust þau Al- bert árið eftir að hann kom þangað, 1889. Um þau hjón og fleiri sem bjuggu í Skaga- firði mátti segja eins ogkomist var að orði um bændur í Reykjadal í Guðmundar sögu dýra: „Þar var þá gott bóndaval í dalnum." Albert og Guðrún þóttu hin merkustu hjón og var Guðrún dóttir séra Ólafs Ólafsson- ar sem kallaður var stúdent vegna þess hve langt leið frá því hann lauk námi í skóla og þar til hann fékk brauð. Frá hon- um segir m.a. í Bólu-Hjálmars sögu, en Björn Egilsson frá Sveinsstöðum hefur skrifað um Albert á Páfastöðum í 3. bindi ritverksins, Bóndi er bústólpi. Ingibjörg Lovisa kona Sigurðar Skag- fields var fædd 7. janúar 1895, annað barn Guðrúnar og Alberts. Hún ólst upp á heimili gáfaðra og glæsilegra foreldra sinna ásamt tveimur öðrum systkinum sínum sem upp komust, en tók við bústjórn hjá föður sínum eftir andlát móður sinnar og þótti stjórnsöm myndarhúsmóðir eins og Guðrún móðir hennar. aðdáandi jóns leifs Eins og fyrr getur dvaldist Sigurður Skagfield langdvölum erlendis bæði við nám og störf og aflaði sér meiri frægðar sem óperusöngvari en almennt gerist með litlum þjóðum. Hann kynnti sér heims- tónlist og túlkaði hana í merkum óperu- húsum, en flutti jafnan með sér íslenskan arf, enda þjóðrækinn vel og kunni að meta rammíslenska arfleifð, söng mikið af ís- lenskum sönglögum og gerði garðinn fræg- an. Leiðir þeirra Jóns Leifs lágu því saman og kunnu þeir vel að meta hvor annan. Sigurður Skagfield söng m.a. syrpu af sönglögum Jóns Leifs við fornan íslenskan skáldskap og taldi hann mikinn brautryðj- anda í tónlist. Þegar Sigurður Skagfield kom heim að stríði loknu skrifaði hann greinar og gagnrýni í íslensk blöð, einkum um íslenska tónlistarmenn og eina slíka grein nefndi hann: Tónskáldið Jón Leifs. Þar vitnar hann í ljóðlínur eftir Runeberg, þar sem talað er um að hatrið snúi sér aftur við gröfina og segir að engin ástæða sé til þess að Jón Leifs leggist í gröfina til að hljóta viðurkenningu á íslandi, því að hann hafi samið stórverk, þessi húnverski alheimsborgari, eins og hann kemst að orði. Hann segir enn að Jón Leifs sé ein- stæðastur allra Norrænna tónskálda sem farið hafi nýjar leiðir á þessari öld „og hefði hann að sjálfsögðu fyrir hundrað ár- um annaðhvort verið álitinn tröll eða huldumanns sonur eða landshornamaður". Þá minnist Sigurður á íslenska Iistamenn með framúrskarandi listgáfur sem hafi verið hraktar út í ystu myrkur á íslandi og enn eimi eftir af þessu skilnings- og hugs- unarleysi „að telja hina gáfuðu og sér- kennilegu listamenn íslensku þjóðarinnar vergangsmenn og vesalinga". Sigurður Skagfield segir að verk Jóns Leifs séu sterk og fögur, en ekki aðgengileg, og lýsir hinum helstu: Edda-Oratorium, Sinfonia 1, Söguhetjur, Baldr, Tónadrama án orða, Galdra-Loftur og Þjóðhvöt. „Ég er ekki neinn spámaður," segir Sigurður Skagfield I lok greinarinnar, „en um eitt þykist ég fullviss, að þegar íslendingar eignast full- komna ríkis sinfóníuhljómsveit og hægt verður að uppfæra hin stóru verk Jóns Leifs, þá hlustar þjóðin og setur hann á bekk með hinum stóru snillingum íslend- inga, Einari Benediktssyni, Einari Jóns- syni, Jóh. Kjarval og Halldóri Kiljan Lax- ness.“ Sigurður Skagfield eignaðist tvö börn með Lovisu konu sinni, Hilmar ræðismann sem fæddur er 25. júlí 1923, kvæntur Kristínu Guðmundsdóttur, ættaðri frá Ánabrekku á Mýrum, og Eddu húsfreyju á Páfastöðum, fædd 7. maí 1930, gift Baldri Helgasyni bónda. Hilmar sagði í fyrr- nefndu Morgunblaðssamtali að Edda syst- ir hans hefði „þessa fínu söngrödd". Björn Egilsson lýsir Páfastaðaheimilinu með þeim hætti að óvíst sé hvort það hefði verið meiri gæfuvegur fyrir Eddu Skag- field að verða óperusöngkona en bónda- kona, svo mikil húsfreyja sem hún hefur verið á þessu myndarheimili. FYRSTI tenór Við MÖRG ÓPERUHÚS í ÞÝSKALANDI Leiðir þeirra hjóna, Lovisu og Sigurðar Skagfield, skildu, enda var hann langdvöl- um erlendis og með hugann við söngferil sinn. Listamannsbrautin var honum stundum erfið, en ávallt eftirsóknarverð. var eitt af skilyrðunum fyrir því að Sigurður Skagfield óperusöngvari fengi að starfa við óperu í Þýzkalandi á stríðsárun- um, en þar söng hann í 40—50 óperum á árunum 1938—1948 Hann hafði lagt á brattann og vissi að Einbúi gnæfir svo langt yfir lágt, að lyng- tætlur stara á hann hissa. Sigurður taldi þá eiga ýmislegt sameiginlegt. Hann söng fyrst opinberlega á Islandi sem næst æskuslóðunum, á Akureyri 1921, eftir stutta dvöl við söngnám 1 Kaupmanna- höfn. Þótt þá hafi skort á kunnáttuna, leyndi sér ekki að þar var á ferð óvenju- gott söngvaraefni og enginn minni spámaður en Geir Sæmundsson vígslu- biskup hvatti hann eindregið til að helga sig sönglistinni og ekki þurfti að eggja Sig- urð Skagfield lögeggjan. Hann var köllun sinni trúr, lagði sigurviss og ótrauður út á listamannsbrautina, sigraðist með ótrú- legu þreki á öllum erfiðleikum, fjárskorti, einangrun og jafnvel vítistvist í kvalastað nasistanna í Grini. Milli þess sem hann aflaði sér æ meiri þekkingar og tækni kom hann heim til íslands í söngferðalög, naut æ meira álits, var jafnvel fenginn til að syngja tenórhlutverkið í níundu hljóm- kviðu Beethovens þegar fílharmoníska hljómsveitin í Hamborg flutti hana og þannig mætti lengi telja, svo þekktur söngvari sem Sigurður Skagfield var á sín- um tíma, enda fyrsti tenór við mörg óperu- hús í Þýskalandi og víðar í Evrópu þar til Þjóðverjar vörpuðu honum í fangabúðir 1943. „Hann hefur eflaust verið rægður og svo var hann skapmikill maður og þoldi ekki nasista," sagði Hilmar í samtali við Morgunblaðið. Sigurður var lengi í útrým- ingarbúðum nasista, en hélt áfram að syngja í Þýskalandi eftir að bandamenn leystu hann úr haldi í stríðslok og var m.a. fyrsti tenór við óperuna í Hamborg, en kom alkominn heim 1948. Einmana Og Kalinn á Hjarta Mikið af úrklippum er til frá söngferli Sigurðar Skagfields erlendis og flest af því afar lofsamlegt. Ekki verður það þó tíund- LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 22. DESEMBER 1984 27

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.