Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Page 39

Lesbók Morgunblaðsins - 22.12.1984, Page 39
Sumar í Hrauntúni Tradirnar í Hrauntúni liggj* Ármanasfell og Skjaldbreiður i baksyn. aorður að Ármannsfelli og eru nú grasi grónar. Nú sést ekkert eftir af bænum í Hrauntúni í Þing- vallasveit nema tóftir. Árið 1919 bjó Jónas hrepp- stjóri Halldórsson þar enn, og greinarhöfundurinn segir frá því þegar hún dvaldist þar sumarlangt með móður sinni. EFTIR SIGURVEIGU GUÐMUNDSDÓTTUR Bærinn í Hrauntúni eins og hann leit út samkræmt minni greinarhöfundar og mjög ónákvæmri rissmynd. Vatnslitamynd eftir Gísla Sigurðsson. umarið 1919 var móðir mín, Hólmfríður Hjaltason, ráðin sem ráðskona að Hrauntúni í Þingvallasveit. Faðir minn, Guðmundur Hjaltason, hafði dáið úr spönsku veikinni þá um veturinn. Móðir mín fór eftir auglýsingu í blaði og þekkti því ekkert til væntanlegs verustaðar. Einhver kunnugur bar bænum gott orð og sagði að ekki sæist i hús þar fyrir skógi. Það var mikið tilhlakk fyrir níu ára krakka að eiga að dvelja í slíkri skógarparadís. Ferðin hófst eldsnemma að morgni frá Hafnarfirði og gengum við alla leið til Reykjavíkur. Koffortinu sínu kom móðir mín á hestvagn Guðmundar Magn- ússonar pósts og gengum við á eftir vagn- inum. Ansi var nú brekkan erfið upp Öskjuhlíðina og fegin var ég þegar við komumst inn að Tungu, húsi Dýravernd- unarfélags íslands. Þar hittum við Símon bónda í Vatnskoti en hann var búinn að fá sér vörubíl sem flutti bæði fólk og fé. Bíll- inn var ekki yfirbyggður og sátu ailir á honum undir beru lofti. Fyrir utan okkur mömmu voru tvær danskar stúlkur í bíln- um og drengur á mínum aldri. Var nú lagt af stað og ekið inn að Elliða- ám. Þá stansaði bíllinn og vildi ekki fara lengra. Símon sagði að hlassið væri of þungt. Lét hann konurnar og strákinn fara úr og gengu þau aftur í bæinn. Ég fékk að sitja í heim í Tungu. Þar biðum við í tvo daga en síðan lagði sama fólkið af stað. Símon í Vatnskoti var einstaklega kátur og glaður maður, lék við hvern sinn fingur hvað sem á gekk. Við fórum framhjá Geithálsi og þaðan sem leið lá austur Mosfellsheiði. HJÁ Þingvallapresti Símon í Vatnskoti skilaði okkur mömmu heim á prestssetrið, sagði að þar myndi hún fá leiðbeiningu um hvert hún ætti að fara. Þá voru á Þingvöllum þrjú hús fyrir utan prestssetrið, Konungshúsið sem reist var handa Friðriki áttunda, veitingahúsið Valhöll, á allt öðrum stað en nú er, og í Fögrubrekku sumarbústaður Péturs Hjaltested kaupmanns. Bærinn prestsins var nokkuð stór í mínum augum. Mamma barði að dyrum og gerði boð fyrir prest. Hann kom fljótt til dyra og bauð til stofu. Síra Jón Thorsteinsson var lágur vexti og grannur. Hann var í svörtum jakkafötum og víður jakkinn, mjög svo prestslegur. Hann bauð okkur skyr að borða og kaffi á eftir í fallegum postulínsbollum með rauðri rós. Séra Jón var einstakt ljúf- menni, þýður og einlægur í viðmóti. Mamma hafði verið kvíðin að fara í vist hjá ókunnugum, komin um fimmtugt með barn í eftirdragi. Hún hafði átt góða daga sem húsmóðir á sínu heimili svo að við- brigðin voru mikil. Síra Jón hlustaði á hana af hluttekningu, fór því næst að fræða hana um væntanlegan húsbónda. Jónas Halldórsson hreppstjóri í Hraun- túni var fæddur árið 1853. Halldór faðir Jónasar hafði komið með einum Þingvalla- presta vestan af Snæfellsnesi. Prestur LESBOK MORGUNBLAOSINS 22. DESEMBER 1984 39

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.