Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Qupperneq 2

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Qupperneq 2
JÓLABLAÐ LESBÓKAR Forsíðan Myndin er eftir Leif Breiðflörð myndlistarmann og unnin sérstaklega fyrir Lesbókina í tilefni jólanna. Leifur nefnir myndina Hátfðastund. „ÉG FÓRIMA ÞÉR VÖRUM MÍIVUM, TUNGU OG HJARTA“ Efri myndin: Herbert von Karajan og Jóhannes Páll II páfi við athöfnina í Péturskirkjunni. Neðri myndin: Sálumessa Mozarts flutt í Hallgrímskirkju í nóvember. og sannarlegs frelsis í friðvana heimi. Heil- ög kirkja, hvort heldur er hin rómversk- kaþólska móðurkirlq'a eða aðrar þær kirkjudeildir, sem taka undir sömu postu- llegu trúarjátninguna eins og þjóðkirkja vor, lúthersk og breið, virða þær dásamlegu gjafir skaparans á sviði listanna, til þess að he§a hugi manna yfir kíf og hvers- dagsamstur. Sá metnaður hefur Ieitt tvo mikla persónuleika, hljómsveitarstjórann Herbert von Karajan og hinn listunnandi páfa, Jóhannes Pál II., til samstarfs í list- túlkun, sem er innblásin af helgum anda Guðs og vænleg til hjálpar vegvilltum efnis- hyggjumönnum og afneiturum trúarinnar. Sá sami helgi metnaður réttlætir þá dá- samlegu dirfsku, er felst í byggingu Hall- grímskirkju á Skólavörðuhæð. Þar geta þjónar kirkjunnar og listamenn í ýmsum greinum tekið höndum saman' í tjáningu lista. Þjóðkirkjan þarf að nálgast mikilvæg- asta hlutverk sitt, guðsþjónustuna, með þeirri skýlausu kröfu, að hún sé borin uppi af sömu einlægni og fegurðarviðleitni og göfugar listir. Það var mikið fagnáðarefni, að flutningur Sálumessunnar eftir W.A. Mozart skyldi marka upphaf tónleika- halds í Hallgrímskirkju. Sá vandaði flutningur úrvalsliðs einsöngvara, Módettukórsins og kammersveitar undir stjórn Harðar Askels- sonar benti ótvírætt til þess, að kirkjan gæti orðið frábært tónleika- hús. En þá verður hins vegar að gæta að því, að þeir tónleikar, sem þar verða haldnir, verði fyrst og fremSt guðs- þjónusta eins og hátíða- messan í Péturskirkj- unni, sem hér hefur verið fjallað um. Það er hægur vandi að tengja þann mikla auð kirkju- legra tónverka, eldri sem yngri, ákveðnu messuformi með öllum liðum; þar sem vígður maður er „celebrant". Til þess var Hallgrímskirkja reist, að þar yrði messað, að þar geti menn fórnað Guði vörum sínum, tungu og hjarta, já, gjörvallri veru sinni. Og auðvitað verða áhrifin að ná til allra helgidóma landsins í aukinni listiðkun til stuðnings lofgjörðinni og bæninni. Hefur Skálholtsstaður þegar eignast gildan hlut í þessari vakningu með músíkdögum á sumar- mánuðum. Hólar bíða slíkrar endurreisnar, sem vonandi er á næsta leiti, eftir væntanlega viðgerð dómkirkjunnar fornu. Það liggur í aug- um uppi, að fátt eða ekkert getur aukið já- kvæð áhrif kirkjunnar fremur en listræn reisn og fegurð, sem grundvallaðar eru á öfgalausri trú og lærdómskröfum. Það mun lyfta henni yfir þá lágsigldu þjóðmála- umræðu, sem hlýtur að vekja ugg um andlega velferð þjóðarinnar. Því má ekki gleyma, að menntir og listir risu hæst á þessu landi í skjóli heilagrar kirkju. Á Hólum í Hjaltadal var íslenskri tungu bjargað frá tortímingu af ráðríkum kirkju- höfðingja, Guðbrandi biskupi Þorlákssyni, sem auk bókmenntalegrar þekkingar var myndlistarmaður (grafíklistamaður) eins og útgáfur hans bera með sér. Já, hann kom því mjúklega lagi heilags Gregors á þrykk í Grallara sínum og hefur sennilega sungið það með líkum hætti og hans heilagleiki í Róm við hliðina á von Karajan í fyrra. BOLLI Gústavsson í Laufási Jólarabb Eftir séra Bolla Gústavsson í Laufási: „Ég fóma þér vörum mínum, tungu og hjarta". Menn sá eg þá... Kafli úr Sólarljóðum með mynd eftir Torfa Jónssson. íslenzkar konur í tónlist. Grein eftir Jón Þórarinsson tónskáld. Hlutverk kirkjunnar. Grein eftir séra Heimi Steinsson í flokknum Austan um Heiði. íslenzkur skurðlæknir á 18. öld. Grein eftir Ævar R. Kvaran. Mynd: Sigrún Eldjám. Stórmenni kveður fyrir tímann. Smásaga eftir Indriða G. Þorsteinsson. Mynd: Örlygur Sigurðsson. Skálholtskirkja lagði mér mestan vanda á hendur. Samtal Gísla Sigurðssonar við Hörð Bjamason fyrrum húsameistara ríkisins. Hestar og hestamenn á íslandi. Bókarkafli frá 1925 eftir George H.F. Schrad- er. Jólanótt. Smásaga eftir Guy de Maupassant. Mynd: Ámi Elfar. í þjónustu frú T. Frásögn eftir Sólveigu Anspach. Mynd: Flóki. Moliere og Aurasálin. Grein eftir Svein Einarsson um jólaleikrit Þjóð- leikhússins og höfund þess. Boðberi nútímalistar - E1 Greco. Grein eftir Hans Platchek. Njála á latínu. Fjórða og síðasta grein Einars Pálssonar i greinaflokknum um öxena Rémigiu. Mynd: Gísli Sigurðsson. Sá horaði frá Hólmavík - og öll hin goðin. Grein um þjóðemishyggju í poppmúsík og Hljómatímabilið eftir Kristinn Jón Guðmundsson. Vilhelm Hammarshöi - meistari grátónaskalans. Grein eftir Braga Ásgeirsson. Haddurinn Áslaugar. Grein eftir Helga Skúla Kjartansson. Leppalúðakvæði og annar verald- legur kveðskapur eftir Hallgrím Pétursson. Eftir Sveinbjöm Beinteinsson. Mjmd: Kjartan Guðjónsson. Sækonuþáttur. Kafli úr elztu skáldsögu síðari tínma á ís- landi. Þorsteinn Antonsson ritar formála um Ólafs sögu Þórhallasonar og höfundinn. Hafnarfjarðarjarlinn. Grein eftir Ásgeir Jakobsson um Einar Þorgils- son. Verðlaunakrossgáta og verðlauna- myndagáta. í höll kóngs og drottningar. Samantekt um hýbýli dönsku drottningarinnar og flölskyldu hennar eftir Brynju Tomer. Síðustu ábúendur í Krýsuvík. Um hjónin í Stóra Nýjabæ, sem komu upp 17 bömum á litlu koti. Eftir Ólaf E. Einarsson. Þann 29. júní 1985 var flutt messa í Péturskirkj- unni í Róm á hátíð postulanna, Péturs og Páls. Fyrir háaltarinu, á milli fjögurra risavaxinna súlna, stóð hans heilag- leiki, Jóhannes Páll II, íklæddur fagurrauðri kórkápu með hvítt, gullbryddað mítur á höfði. Páfinn stóð þar fyrir miðju altari með marga vígða aðstoðar- menn á báðar hendur. En sjálfur var hann „celebrant“ (þ.e. hann stýrði messugjörð- inni) og hljómfögur tenórrödd hans naut sín einkar vel, bæði í lestri helgra texta og eins þegar hann tónaði með mjúklegu lagi heilags Gregors. En óneitan- lega setti það forkunn- arglæstan svip á þessa messugjörð, að góðir gestir fluttu þar þætti úr Krýningarmessu eft- ir tónsnillinginn Wolf- gang Amadeus Mozart. Það var Fílharmóníu- hljómsveit Vínar og víðfrægur kór þeirrar háborgar tónlistarinn- ar, Wiener Singverein, auk óperusöngvaranna Kathlenn Battle, Trud- eliese Schmidt, Gösta Winbergh og Feruccio Furlanetto. En stjóm- andinn var enginn annar en Herbert von Karajan. Þá fluttu heimamenn, þ.e. Cap- ella Musicale Pontificia Sistina, þijá þætti messunnar, víxlsönginn (Responsum graduale), hallelújavers og fómar- söng eftir Monsignor Domenico Bartolucci, sem sjálfur stjómaði kómum. Hin almenna kirkjubæn var flutt á sjö tungumálum, á latínu, þýsku, pólsku, japönsku, arabísku, frönsku og ítölsku. Það var hrífandi að heyra hans heilagleika tóna prefazíuna (þakk- arbæn), sem endar á orðunum: „Og þess vegna með englunum og höfuðenglunum, með tignunum og drott- invöldunum, ásamt með öllum himnesku hirð- sveitum, syngjum vér lofsönginn þinnar dýrð- ar óaflátanlega segj- andi.“ Og þá lyfti von Karajan sprota sínum og kór og hljómsveit upphófu hinn tignarlega og volduga lof- söng: „Heilagur, heilagur, heilagur ert þú, Drottinn Guð allsheijar" (Sebaót). Þættir úr Krýningarmessu Mozarts, sem þama hljómuðu voru: Gloria (Dýrð sé Guði), Credo (Játning trúarinnar), Sanctus (Heilagur), Agnus Dei (Ó, þú Guðs lamb) og hinn gull- fallegi kvöldmáltíðarsöngur, Ave veram. Ifyrr á því ári, sem senn er á enda runnið, gaf Deutsche Grammophone þessa einstæðu messugjörð út á hljómplötu og fylgja allir textar prentaðir og jafnframt ljósmyndir frá atburðum. Þess vegna getum við, sem búum afskekktir, en síður en svo einangraðir, hér við nyrsta haf, notið þessarar dýrðlegu guðs- þjónustu. Atburður af þessu tæi hlýtur að verða fagnaðarefni hveijum þeim, sem vill veg kristinnar trúar sem mestan og þráir að hún hafi varanleg áhrif til innri og ytri friðar 2

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.