Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Síða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.12.1986, Síða 15
Innan úr Langholtskirkju. Hér lagði Hörður til grundvallar tjaldið, sem var elzti samkomustaður kristinna safnaða. Innan úr Kópa vogskirkju. Það sem fyrst var oddbogi, varð að lokum parabóla. sem kostur er aðstæðum síns tíma, en jafn- framt ber honum að draga réttar ályktanir af reynslu liðinna tíma, á grundvelli þess uppeldis, sem nám og lærdómur hefur veitt honum. En leiðin hér er há!...“ fr í framhaldi af þessu spurði ég Hörð: Hver heldur þú sjálfur að séu þín beztu verk? „Ég hef ákveðna tilfínningu fyrir því“, svaraði hann: „Skálholtskirkja, - og Kópa- vogskirkja". Svarið kom mér ekki á óvart; ég hafði raunar búizt við því, að hann nefndi Skálholtskirkju fyrst. Hann kvaðst einnig í þessu sambandi vilja nefna Langholtskirkju. Ég man vel eftir því, þegar Skálholts- kirkja var í smíðum, að margir voru efíns og fannst sem einhverskonar hrikalegt steinbákn væri að rísa á hinum fomhelga stað. Sjálfur var ég ekki sannfærður á þeim tíma, en það sýnir hve varlegt það er að leggja dóm á hús í byggingu. Það er svona álíka og að gagnrýna hálfmálaða mynd og hlýtur einungis að teljast móðgun við höf- undinn. Skálholtskirkja er stórkostleg á sínum stað; það höfum við séð fyrir löngu. En allt orkar tvímælis þá gert er, það er gamla sagan. Um þetta verkefni sagði Hörð- ur: „Skálholtskirkja hefur algera sérstöðu meðal þeirra verkefna, sem ég hef unnið að. Á því hvíldi þungi sögunnar og sumir voru óánægðir með, að ekki skyldi fara fram samkeppni. Lausn mín byggir á þeim grunni, sem þarna var fyrir hendi: Fyrri kirkjum í Skálholti, allt frá miðaldakirkjunni til Bry- njólfskirkju og annarra. Mælikvarðinn er þessi stórbrotni fjallahringur Ámessýslu og víðsýnið sem þar er. Ég hugsaði mér, að kirkjan yrði að gnæfa þama eins og upp- rétt hendi. Að teikna kirkju í Skálholti var áhættu- samara en nokkuð annað, sem ég tók að mér; það var hreinasta blóðþrýstingsatriði. En séra Sigurbjöm Einarsson stóð mér þétt við hlið; hann hafði beitt sér manna mest fyrir endurreisn Skálholts og sýndi mér fullt traust, sem var ákaflega mikils virði. Eftir fomleifarannsóknir á grunni kirkj- unnar, þar sem rómanska formið kom fram, var auðvelt að komast að niðurstöðu; aldrei kom til greina að byggja úr öðm en steini. Sumar fyrri kirkjur í Skálholti, til dæmis á dögum Páls biskups Jónssonar, voru með skozku klausturkirkjulagi, sem er ró- manskt. Ég skilgreini núverandi stíl kirkj- unnar sem einföldun á rómanska stílnum, útfært með nýju byggingarefni. Það gildir einnig um kirkjuna að innan. Þetta er kross- kirkja og útbrotakirkja, en kórinn miklu styttri en tíðkaðist í kaþólskum sið. Síðast en ekki sízt var mikil blessun að eiga þær að, Nínu frænku okkar, sem var sérstaklega ráðin til að gera altaristöflu, og Gerði, sem á heiðurinn af gluggunum eftir að hafa unnið f samkeppni, þar sem Nína varð önnur.“ ☆ Altaristafla Nínu Tryggvadóttur í Skál- holtskirkju er eitt merkasta kirkjulistaverk á voru landi og setur stórkostlegan svip á kirkjuna, sem er annars ákaflega einföld í sniðum að innan. Hálf-abstrakt, fljótandi og mjög svo stílfærð form altaristöflunnar mynda ákjósanlega andstæðu við hinar af- dráttarlausu línur í kirkjubyggingunni sjálfri. Þótt ótrúlegt megi virðast, er frum- mynd Nínu lítil og unnin á pappír með vatnslitum. í aðalatriðum er útfærslan í Skálholti eins, þó hafa verið gerðar nokkrar breytingar í fullvinnslunni og stjórnaði Nína því. Frummynd Nínu er í eigu Harðar og meðal þeirra listaverka þar á heimilinu, sem honum eru kærust. „Kópavogskirkja hlaut að kalla á aðra og ólíka útfærslu", segir Hörður. „Hún er byggð uppi á grýttri hæð í þéttbýli eins og flestir vita. Formið hafði ekki verið reynt hér: Parabólan, boginn, sem segja má að taki við af hinum gotneska oddbogastíl og hentar ágætlega vel steinsteypunni. Reynd- ar byijaði ég á því að teikna oddboga, sem síðar þróaðist í það bogaform, sem sjá má, því það hentaði betur byggingarefninu. Þessar tvær kirkjur eru ákaflega ólíkar, en ég var samt með þær á teikniborðinu á sömu árunum". Kópavogskirkja er eins að sjá úr öllum áttum, enda er hún hrein krosskirkja með fjórum, jöfnum álmum og átta parabólum. Áð sjálfsögðu setja gluggar Gerðar Helga- dóttur sinn svip á hana. „Þeir eru afar fagrir“, segir Hörður,,, en ef til vill lítið eitt kaþólskari en ég hefði kosið. Við messugjörð í kaþólskum sið var yfírleitt heldur skuggsýnna og Gerður var um þetta leyti með margar kaþólskar kirkj- ur í takinu. Ég hefði kosið að dagsbirtan nyti sín betur með ljósari gluggum og eins að ljósið innan úr kirkjunni sæist betur ut- anfrá. En við það varð ekki ráðið. Við þetta verk naut_ ég ómetanlegs stuðnings * séra Gunnars Árnasonar sóknarprests í Kópa- vogi. Þriðja kirkjan, sem ég nefndi og mér fínnst hafa tekizt vel, er Langholtskirkja. Jafnframt er hún afskaplega ólík hinum kirkjunum tveimur og sérstæð í þá veru, að þar var í fyrsta sinn byggt sérstakt og sjálfstætt safnaðarheimili. I aðalbyggingu kirkjunnar er miðað við form tjaldsins, sem var upprunalegur samkomustaður hinna fyrstu safnaða“. Tónlistarflutningur fer í vaxandi mæli fram í kirkjum; vel þekktur er kór Lang- holtskirkju og sumartónleikarnir í Skálholts- kirkju. Nú hefur Sálumessa Mozarts verið flutt í Hallgrímskirkju og því er von að spurt sé: Hvað getur arkitektinn gert til þess að bæta hljómburðinn, þegar hann teiknar kirkju? „Hljómburðarvísindi eru ekki mjög göm- ul“, segir Hörður, „þó voru haldin námskeið í þeim, þegar ég var að læra úti í Þýzka- landi. En þetta eru mjög óáreiðanleg vísindi og það er aldrei neitt gefið, hversu mjög sem vandað er til hlutanna. Ég minnist þess frá þeim tíma, þegar ég var formaður byggingarnefndar Þjóðleikhússins og við vorum að ganga frá salnum að innan, að við fengum þá Steinþór Sigurðsson jarð- fræðing og Gunnlaug Briem, sem þá var yfírverkfræðingur hjá Pósti og síma, til að gera tillögur. Til vonar og vara voru tillögur þeirra sendar sérfræðingi Konunglega leik- hússins í Kaupmannahöfn til umsagnar. Hann skrifaði greinargerð, sem gekk mjög þvert á niðurstöður okkar manna, svo við báðum um úrskurð frá prófessor Kruger hinum sænska, sem talinn er einskonar upphafsmaður þessara vísinda. Hann sagði: Petersen hefur rangt fyrir sér — það var sá danski. Svo við gengum frá salnum, stuðlaberginu uppi í loftinu og öllu, sam- kvæmt tillögu Steinþórs og Gunnlaugs og ekki ber á öðru en það hafi gefízt vel. Hljóm- burður í Skálholtskirkju þykir góður; bæði hljóðfæraleikur og söngur njóta sín vel þar og sama er að segja um hinar kirkjumar, Langholtskirkju og Kópavogskirkju." Sjálfur hlustaði ég á Sálumessu Mozarts í Hallgrímskirkju og það var auðheyrt, að hljómurinn þar er ákaflega sterkur. En ég er langt í frá að vera fróður um hljómburð, hvað þá sérfróður. Mér fannst bergmálið ekki standa lengi eftir að tóni var sleppt, en um þetta er fólk ekki sammála og talað hef ég við tónlistarfólk, sem taldi bergmálið of mikið og einnig, að hljómburður væri ekki nægilega góður út við veggina. Að minnsta kosti hljómaði kórinn glæsilega á miðbikinu og það var mikilfenglegt að koma í þetta hús og sjá glæsileika þess að innan. Allir vita, að Guðjón Samúelsson, fyrrum húsameistari ríkisins, teiknaði Hallgríms- kirkju. Hitt vita kannski færri, að það er Hörður Bjamason, sem heiðurinn á af þessu glæsta innra útliti eftir að hann tók við verkinu sem húsameistari ríkisins að Guð- jóni Samúelssyni látnum. En hvað kom til? „Ekkert var tilbúið áf hálfu Guðjóns um innra útlit kirkjunnar", segir Hörður. „Að- eins hafði hann teiknað sneiðingu. Þar gerði hann ráð fyrir að setja loft í kirkjuna, sem klæddi af risið og hann gerði ekki ráð fyrir súlum.“ Ég held að ekki þurfí mikið ímyndunar- afl til að sjá, að á þann veg hefði kirkjan nánast tapað þeim innri glæsileika, sem hún ótvírætt hefur. Þar hefði orðið nánast kassa- laga rými, að vísu með bogaformi í kór og kirkjan hefði þá orðið sem hver annar stór salur. Sú hugmynd Harðar að nýta hæð kirkjunnar til fulls, breytir hér öllu. Hann lagði einnig til og teiknaði tvær súlnaraðir, sem látnar eru bera uppi gotneskar hvelfing- ar, líkt og Guðjón gerði í Landakotskirkju. Bárður ísleifsson arkitekt vann með Herði við útfærsluna á kirkjunni, en hann hafði áður unnið hjá Guðjóni og þá með honum við útlitið á Hallgrímskirkju. í áratugi hefur það verið nánast ríkjandi tízka meðal þeirra, sem taka þátt í umræðu um byggingarlist og umhverfísmál að hall- mæla þessu stórvirki á Skólavörðuholti og fínna því flest til foráttu. Ég spurði Hörð, hvort hann tæki undir þann söng. Hann sagði: „Ég álít að Hallgrímskirkja eigi eftir að standa af sér alla fordóma. Þetta er mikil- fengleg kirkja, en ég hefði samt áreiðanlega leyst þetta verkefni allt öðruvísi en Guðjón. Hann teiknaði kirkjuna að beiðni kirkju- málaráðuneytisins, en hafði raunar áður gert tillögu um kirkju á þessum stað - og meira að segja einskonar háborg íslenzkrar menningar, sem samkvæmt tillögunni átti að rísa á Skólavörðuholti. En sú kirkja, sem Guðjón teiknaði þar var dálítið í Péturs- kirkjustíl og alveg ólík þeirri Hallgríms- kirkju, sem nú er risin". ☆ Þá dagana sem við Hörður Bjamason ræddum saman, stóðu yfir á fundum og í ijölmiðlum umræður um tillögur tveggja arkitekta að útliti Kvosarinnar. Sumir sjá ákaflega eftir nokkrum gömlum húsum, sem gert er ráð fyrir að víki til að samræmt útlit náist og að miðbærinn verði ekki eins og skörðóttur hundskjaftur. Ég hef margoft viðrað skoðanir mínar á þeim kotrassabrag, sem mér finnst ríkja í miðbæ Reykjavíkur og er nú mál að linni. En hvað segir Hörð- ur Bjarnason um kotrassabraginn? „Ég vil gjaman sjá breytingu til meiri reisnar á miðbænum og ég tel þessa tillögu þeirra Guðna og Dagnýjar nokkuð góða. En hitt er svo annað mál, að ég er ekki ánægður með nýtt alþingishús samkvæmt verðlaunatillögunni. Það er út af fyrir sig gott hús, en hentar bara ekki á þessum stað og gæti orðið til þess að annað yrði þá gert í sama mælikvarða. Mér leizt betur á tillögu Manfreðs Vilhjálmssonar, sem fékk 2. verðlaun. En ef að líkum lætur verður þetta hús því miður byggt þarna." Eins og ljóst er af því, sem að framan er rakið, hefur Hörður Bjamason unnið í anda þeirra, sem skópu Bauhaushreyfing- una fyrr á öldinni. Hann á sína uppáhalds- arkitekta og eins og að líkum lætur eru þeir módemistar, sem hafa unnið í anda Grophiusar. í því sambandi nefnir Hörður sérstaklega finnska kollega sína, þar á meðal prófessor Sirén, sem teiknaði finnska ríkisþinghúsið, son hans Hekkí, sem hefur meðal annars teiknað Det Lille Theater í Helsinki, og kona hans Kaja er afbragðs arkitekt, segir Hörður. Enginn smáræðis arkitektafjölskylda það. Hartn nefnir einnig Saarinen-feðgana og þann, sem frægastur er utan Finnlands, höfund Norræna hússins hér: Alvar Aalto. Að lokum nefnir Hörður þrjá stórmeistara módemismans á alþjóðleg- um vettvangi: Frank Lloyd Wright, Nervi og Mies van der Rohe. Það fer ekki milli mála, að tungutak byggingarlistarinnar fer ekki eftir landamæmm. Þó em til þjóðir, sem halda ákaflega fast í sérstæðan og hefðbundinn byggingarstíl; ég nefni til dæmis Alpastílinn í Austurríki og Sviss. En er hægt að tala um einhverja íslenzka sér- stöðu í þessum efnum? Hörður telur að svo sé ekki: „Við höfðum sérstakan stfl, sem byggðist á að nota til- tækt efni, torf og gijót og var neyðarlausn, en oft voru þessi hús fagurlega unnin af litlum efnum. Með nútíma byggingarefnum urðum við að farga þessum stíl; við getum ekkert notað af honum. Ég tel, að við mun- um ekki sjá annan arkitektúr hér en í nágrannalöndunum. Byggingarefni og tækni við byggingar ráða mestu um það, svo og sú staðreynd, að við læmm arkitekt- úr erlendis". LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 24. DESEMBER 1986

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.