Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Side 24

Lesbók Morgunblaðsins - 20.12.1993, Side 24
4- Stefnumót við Munch Allir þekkja „Ópið“ sem Edvard Munch málaði fyrir réttum 100 árum og verður að öllu saman- lögðu að teljast frægasta verk hans. Mannleg vera, sem líkist þó helzt vofu, æpir í tryllingi og tekur um leið fyrir eyrun; augun eru næst- > Heilli öld eftir að EDVARD MUNCH málaði sumar af sínum kunnustu myndum er hann ennþá risinn í myndlist Norðurlanda og raunverulega sá eini meðal norrænna myndlistarmanna sem rís alveg undir því að vera kallaður heimsfrægur. Eftir GÍSLA SIGURÐSSON um hvít. Að baki er kvöldhiminn og sjávar- strönd. Veran er á leið yfir brú og menn á eftir henni, en við vitum ekki hversvegna hún er svona angistarfull; hversvegna hún æpir. Þeirri spurningu svarar málarinn ekki, en menn segja: Þetta er óp allra sem þjást og myndin lýsir jafnframt óttanum við hið óvænta. Með þessari mynd má segja að Munch hafi lagt grundvöllinn að expres- sjónismanum, sem þýzkir málarar tóku flestum framar uppá sína arma á árunum 1905-15. Áherzlan þar er á tjáningarríkt innsæi; þetta er aðferð sem hentar vel til að útmála sálarástand. II A Munch-safninu í Osló var margt um manninn þennan dag í septemberbyrjun. Þar voru Japanir og aðrir Austurlanda- menn líklega í meirihluta, en þar voru líka Spánverjar og Italir og nokkrir bandarískir blökkumenn. Og að sjálfsögðu landar mál- arans. Fólk kemur langt að í einskonar pílagrímsför á Munch-safnið í Osló og mað- ur varð greinilega var við sambland af and- akt og aðdáun. Hér birtist það sammann- lega sem allir geta skilið og jafnvel heim- fært uppá sjálfa sig: Æskan, ástin, afbrýðis- semin, óttinn, sjúkdómarnir og dauðinn. En umfram allt einnig fegurðin; sú fegurð sem birtist í lit, teikningu og frábærum efnistökum meistarans. Ég tók eftir því að sumir voru að leita að frægum lykilmyndum Munchs; myndum sem ævinlega sjást í þeim fjölmörgum bók- um, sem út hafa komið um lífsverk hans. Þar á meðal er „Ópið“, „Dauðaherbergið“, „Veika systirin", „Madonna“ og „Lífsdans- inn“. Munch málaði þessar myndir oftar en einu sinni, sumar margoft, og hann vann af þeim útfærslur í grafík. Flestar þessar lykilmyndir eru ekki í Munch-safninu, heldur í vörzlu Nasjona- lgalleriet,, sem er listasafn norska rfldsins og er einnig í Osló. Þegar Munch var orð- inn frægur í útlöndum voru þessar myndir keyptar af honum. En honum þótti næstum óbærileg tilhugsun að sjá af „börnunum sínum“ eins og hann sagði, og málaði þá aðra útgáfu til þess að eiga sjálfur. í raun- „Sjálfsmynd með víni“, 1906. Edvard Munch skömmu fyrir andlát sitt í vinnustofunni á Ekely. inni má segja að fá, en afar hugstæð mynd- efni, hafi hann verið að mála aftur og aftur alla ævina. „Veiku systurina“ málaði hann sex sinnum. í Munch-safninu var að vísu ein af þekkt- ari myndum málarans uppi: Sjálfsmynd frá 1940 sem hann nefndi „Milli klukkunnar og rúmsins" og er sú síðasta af mörgum sjálfsmyndum hans. Hann átti þá fjögur ár ólifuð; dó í janúar 1944. Muneh er í flokki með Rembrandt og fáeinum öðrum málur- um, sem hafa málað sjálfa sig af kostgæfni - og miskunnarleysi - frá unga aldri og framá grafarbakkann. I nýlegri og ágætri bók dr. phil. Rögnu Stang um „Munch-men- nesket og kunstneren", er fyrsti kaflinn einmitt um þennan þátt í list hans. Á elztu myndunum sjáum við fallegan ungan mann, enda er hann tæplega tvítugur. Aldeilis makalaus þroski og fæmi birtist síðan í sjálfsmynd með sígarettu, sem er kápu- mynd bókarinnar og þegar Munch málar hana, hefur hann aðeins tvö ár um tvítugt. Og á sama ári má segja að hann „taki kúrs- inn“ til framtíðarinnar með „Sjálfsmynd í Víti“ sem gefur þá þegar hugmynd um andlega vanlíðan. Á sjálfsmynd frá 1904 er hann í senn heimsmannslegur og glæsilegur fullþroska maður; málar sig þá með pensil í hendi. En svipmótið er breytt og þunglyndið farið að gera vart við sig fyrir alvöru þegar hann málar „Sjálfsmynd með víni“ úti í Þýzka- landi 1907, þá 44 ára. Liðlega áratugi síðar málar hann sjálfan sig fárveikan af spönsku veikinni og í fjölmörgum sjálfsmyndum frá síðari áratugunum í lífi hans, útmálar hann líkamlega hrömum sína í bland við andlega vanlíðan. Þá notar hann htinn til þess að undirstrika geðslag og sálarástand; málar sig stundum eldrauðan, stundum grænan í framan eða gulan. III I öllum pælingum Munchs um gleði og þjáningar Úfsins er konan rauði þráðurinn. Sjálfur hafði hann þann glæsibrag til að bera að hann hlaut að vekja áhuga hjá konum, - og hann hafði eðlilega og jafnvel mjög sterka náttúru til kvenna. En hann kvæntist aldrei og sleit sig lausan þegar ung og vel efnum búin stúlka, landi hans, vildi krækja í hann. Þar kom ekki síst tii sú skoðun hans, að hann væri fæddur með „spírur" geðveiki úr föðurættinni og berkla úr móðurættinni. Honum fannst að hann mætti ekki eignast afkomendur vegna þessa og auk þess hafði hann snemma ákveðið Edvard Munch, 22 ára. að myndlistin skyldi vera eitt og allt í lífi hans; engin kona kæmist þar á milli. Þessi afstaða olli samt gífurlegri tog- streytu í lífi hans. Óttann við ættarsjúkdó- mana hafði hann alið með sér frá bam- æsku, en það er athyglisvert að hann taldi þann ótta verðmætan, því hann var forsend- an fyrir list hans. Sjálfur skrifaði hann svo: „Þessum veikleika vil ég halda; hann er hluti af sjálfum mér. Ég vil ekki losna við sjúkdóminn, hversu mjög er ekki list mín skuldbundin honum." Svo virðist sem samband Munchs við konur hafi verið mótað fremur af kvöl en sælu. Kvöl afbrýðisseminnar er honum svo hugstæð, að aftur og aftur skýtur þessu myndefni upp, - oftast með tveimur karl- mönnum og einni konu. Bæði þá og í ýms- um öðrum myndum er konan túlkuð sem „femme fatale“, skaðræðiskvendið, eða vampíra sem sígur úr mönnum blóð. Jafn- vel Madonna - hin elskandi kona - gæti virzt til í tuskið. En stundum, til dæmis í portrettum, málar hann konur hlutlaust og án áherzlu á kynferðislegu hliðina. Svo er til dæmis um mynd hans af Inger systur sinni. Þar sjáum við svartklædda, siðprúða og guð- hrædda, norska stúlku og í þeim búningi sem borgaraleg tízka bauð. Og Karen móð- ursystur sína, sem hann átti svo mikið að þakka, málaði hann af sýnilegum kærleika. 24 f

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.