Morgunblaðið - 06.01.2001, Side 1
4. TBL. 89. ÁRG. LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
MORGUNBLAÐIÐ 6. JANÚAR 2001
Jóhannes Páll páfi II veifar til fólks
við sérstaka athöfn fyrir börn í
Páfagarði í gær. Í dag mun hann
loka hinum heilögu dyrum Péturs-
kirkjunnar og þar með lýkur form-
lega hátíðarárinu í tilefni af því, að
kristin trú er nú að hefja sína þriðju
þúsöld.
AP
Hátíðarári
að ljúka
GILEAD Sher, einn samninga-
manna Ísraelsstjórnar, afhenti í gær
svör hennar við tillögum Bills Clin-
tons Bandaríkjaforseta um friðar-
samning milli Ísraela og Palestínu-
manna. Var haft eftir ísraelskum
embættismanni, að í svarbréfinu
væri fallist á tillögur Clintons sem
góðan vegvísi en með því skilyrði, að
Palestínumenn gerðu það einnig.
Mjög ólíklegt þykir, að nokkur
samningur náist milli Ísraela og Pal-
estínumanna áður en Clinton lætur
af embætti 20. þessa mánaðar.
Sher afhenti svarbréfið í gærdag
og ætlaði þá um kvöldið að eiga fund
með Clinton. Hafði ekki verið skýrt
frá innihaldi bréfsins í gærkvöld en
búist er við, að í því sé að finna ýmsa
fyrirvara, ekki síður en hjá Yasser
Arafat, leiðtoga Palestínumanna.
Helstu ágreiningsefnin eru yfirráðin
yfir Austur-Jerúsalem og framtíð
palestínsku flóttamannanna og um
þau virðast engar sættir í sjónmáli.
Palestínumenn krefjast þess, að
flóttafólkið fái að snúa aftur til fyrri
heimkynna sinna í Ísrael og þeir
krefjast fullra yfirráða yfir A-Jerú-
salem. Ehud Barak, forsætisráð-
herra Ísraels, hefur fallist á yfirráð
Palestínumanna yfir arabískum
hluta borgarinnar en ekki yfir helgi-
stöðunum og hann þvertekur fyrir,
að palestínsku flóttamennirnir fái að
snúa aftur. Segir hann, að það jafn-
gilti því, að Ísraelum verði úthýst í
eigin landi.
Sameinuðu þjóðirnar áætla, að
750.000 Palestínumenn hafi flúið eða
verið reknir burt á stríðsárunum
tveimur eftir stofnun Ísraelsríkis
1948 en nú eru þeir og afkomendur
þeirra næstum fjórar milljónir tals-
ins. Sneru þeir allir aftur yrðu þeir,
og sú milljón Palestínumanna, sem
nú býr í Ísrael, jafnmargir gyðingum
í landinu.
Utanríkisráðherrar arabaríkj-
anna lýstu yfir fullum stuðningi við
afstöðu Arafats og Palestínumanna á
fundi í Kaíró í Egyptalandi í fyrra-
dag og ísraelska dagblaðið Yediot
Aharonot sagði í gær, að vegna þess
teldi Barak, að engar líkur væru á
viðræðum í bráð.
Skotin á heimili sínu
Ísraelskir hermenn skutu í gær til
bana 37 ára gamlan Palestínumann á
Gaza og 19 ára gamla stúlku á heimili
hennar á Vesturbakkanum. Særðist
vinkona hennar einnig. Kváðust her-
mennirnir hafa verið að svara skot-
hríð en vitni segja, að hún hafi engin
verið, aðeins hvellir frá púðurkerl-
ingum sem krakkar léku sér með.
Ísraelar munu kjósa nýjan for-
sætisráðherra 6. febrúar nk. og
bendir allt til, að harðlínumaðurinn
Ariel Sharon, leiðtogi Likud-flokks-
ins, muni bera sigur úr býtum. Í Gal-
lup-könnun, sem blaðið Maariv birti í
gær, fékk hann 50% atkvæða en Bar-
ak aðeins 22%.
Ísraelar og Palestínumenn ítreka sína fyrri afstöðu
Litlar líkur á nýjum
viðræðum í bráð
Washington, Jerúsalem. AP, AFP, Reuters.
Reuters
Palestínumenn kveikja í myndum af þeim Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna, og Ehud Barak, forsætisráð-
herra Ísraels, í mótmælum sem efnt var til í borginni Nablus á Vesturbakkanum í gær.
CARLA Del Ponte, aðalsaksóknari stríðglæpa-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna, lýsti því yfir í gær
að þótt mögulegt væri að Slobodan Milosevic,
fyrrverandi forseti Júgóslavíu, kæmi fyrir rétt í
heimalandinu, væri ófrávíkjanlegt að hann yrði
framseldur og réttað yrði yfir honum í Haag.
Saksóknarinn lét þessi ummæli falla eftir að ut-
anríkisráðherra Júgóslavíu, Goran Svilanovic, gaf
til kynna á fundi með bandarískum ráðamönnum í
Washington í fyrradag að Júgóslavar gætu fallist
á að stríðsglæpadómstóll SÞ réttaði yfir Milosevic
ef réttarhöldin færu fram í Júgóslavíu.
„Það er óhugsandi að réttarhöldin fari fram í
Belgrad, því það er ekki hlutlaust svæði og það er
ólíklegt að fórnarlömb verði tilbúin að bera vitni
þar,“ sagði Florence Hartmann, talsmaður Del
Ponte, við fréttamenn í gær. Hartmann sagði að
mögulegt væri að hluti réttarhaldanna yfir Milose-
vic færi fram í Júgóslavíu en það yrðu aðeins yf-
irheyrslur vitna sem búsett væru í Serbíu.
Stefnubreyting af hálfu Júgóslavíustjórnar
Stríðsglæpadómstóll SÞ gaf árið 1999 út ákæru
á hendur Milosevic fyrir stríðsglæpi og glæpi gegn
mannkyninu, þar eð hann hefði borið ábyrgð á
skipulagningu og framkvæmd grimmdarverka
Serba gegn Kosovo-Albönum. Vojislav Kostunica,
sem bar sigurorð af Milosevic í forsetakosning-
unum í Júgóslavíu í september sl., neitaði eftir
embættistökuna að framselja meinta stríðsglæpa-
menn en hefur síðan fallist á að taka upp takmark-
að samstarf við dómstólinn og leyft saksóknurum
að opna skrifstofu í Belgrad.
Sósíalistaflokkur Milosevic sendi frá sér yfirlýs-
ingu í gær þar sem samstarf við stríðsglæpadóm-
stól SÞ er fordæmt. Fullyrt er að ef stjórnvöld við-
urkenni lögsögu dómstólsins séu þau þar með að
færa alla ábyrgð á atburðunum í Kosovo á hendur
Júgóslövum.
Aðalsaksóknari stríðsglæpadómstóls Sameinuðu þjóðanna
Milosevic verði framseldur
Amsterdam, Haag, Washington. AFP, AP.
STJÓRNENDUR virðulegasta
leikhússins í Kína, Shanghai
Grand, hafa ákveðið að baða
gesti sína í rafbylgjum til að
reyna að þagga niður í öllum
farsímunum sem glymja lát-
laust meðan á sýningum stend-
ur.
Fulltrúar leikhússins hafa
margbeðið fólk að slökkva á far-
símunum og símboðunum og
umfram allt að sitja kyrrt í sínu
sæti. Á það hefur ekki verið
hlustað og mörgum leikhúsgest-
inum finnst ekkert að því að tala
lengi í símann í miðri sýningu og
hækkar þá gjarnan róminn til að
yfirgnæfa „hávaðann“ á sviðinu.
Shanghai Grand-leikhúsið
var byggt 1998 og var því sér-
staklega ætlað að auka hróður
þessarar gömlu heimsborgar.
Stjórnendur þess hafa síðan
verið í því að skammast sín þeg-
ar næstum ekkert hefur heyrst í
heimsfrægu listafólki víðs vegar
að úr heimi fyrir símaskvaldrinu
í salnum.
„Útlendingar líta þetta mjög
alvarlegum augum en kínversku
áhorfendurnir, sem oft hafa
fengið aðgöngumiðann að gjöf,
fylgjast ekki með því sem fram
fer á sviðinu. Þeir eru komnir til
að slappa af,“ sagði Ying, yfir-
maður tæknideildar leikhússins.
Þar er nú verið að prófa búnað
sem hindrar allt samband við
farsíma í salnum. Var hann sótt-
ur í vopnabúr kínverska hersins.
Farsímafárið í Kína
Leikhús-
gestir í
rafskýi
Peking. The Daily Telegraph.
SEX sinnum hafa hjólbarðar
sprungið á Concorde-þotum og vald-
ið því, að gat hefur komið á eldsneyt-
isgeyma flugvélanna. Það gerðist
síðan í sjöunda sinn er Concorde-
þota í eigu Air France hrapaði til
jarðar fyrir utan París í júlí á síðast-
liðnu sumri. Þá fórust 113 manns.
Frönsk nefnd, sem rannsakað hefur
slysið, skýrði frá þessu í gær.
Í skýrslu nefndarinnar er staðfest,
að málmhlutur úr DC-10-þotu í eigu
bandaríska flugfélagsins Continen-
tal Airlines hafi valdið því, að hjól-
barðar Concorde-þotunnar sprungu.
Var DC-10-þotan á flugbrautinni
skömmu áður.
Hjólbarðar á Concorde-þotunum,
sem British Airways og Air France
tóku í notkun 1976, sprungu alls 57
sinnum frá 1979 til 1993 og sex sinn-
um kom gat á eldsneytisgeyma. Að-
eins einu sinni voru það hlutar úr
hjólbarðanum sjálfum, sem ollu því,
en í hin skiptin „ýmsir aðrir hlutir“.
Ekki kom upp eldur í geymunum í
þessi skipti eins og í því sjöunda.
Air France og tryggingafélög
flugfélagsins hafa höfðað mál fyrir
frönskum dómstóli gegn Continental
Airlines vegna hlutar þess í slysinu á
síðasta ári. Í skýrslunni segir rann-
sóknarnefndin, að athugun á DC-10-
þotunni hafi sýnt, að viðhaldi hennar
hafi verið stórlega áfátt.
Rannsóknin á
Concorde-slysinu
Sex sinn-
um komið
gat á geymi
París. AFP.
♦ ♦ ♦
ALLNOKKUR lækkun varð á
bandarískum verðbréfamarkaði í
gær og er sú hækkun, sem varð í
fyrradag vegna vaxtalækkunar
seðlabankans, gengin til baka.
Nasdaq-vísitalan féll í gær um
6,21% og Dow Jones um 2,28%. Var
ástæðan áhyggjur af afkomu fyrir-
tækja og orðrómur um, að Bank of
America hefði orðið fyrir miklu út-
lánatapi. Vísuðu talsmenn bankans
því á bug en samt lækkaði gengi
hlutabréfa í bankanum allmikið.
Gengislækk-
un á markaði
New York. AFP.