Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞORSTEINN Einars- son, fyrrverandi íþróttafulltrúi, lést á heimili sínu í Reykja- vík í fyrrinótt, 89 ára að aldri. Þorsteinn fæddist í Reykjavík 23. nóvem- ber 1911. Foreldrar hans voru Einar Þórð- arson afgreiðslumaður og Guðríður Eiríks- dóttir húsmóðir. Þorsteinn varð stúd- ent frá Menntaskólan- um í Reykjavík 1932. Hann starfaði sem kennari við Gagnfræðaskóla Vest- mannaeyja 1934–41. Árið 1941 var hann ráðinn íþróttafulltrúi ríkisins og gegndi því starfi til ársins 1981. Þorsteinn gegndi ýmsum trún- aðarstörfum á starfsævi sinni. Hann var formaður íþróttaráðs Vestmannaeyja 1934–41, félagsfor- ingi skátafélagsins Faxa í Vest- mannaeyjum 1938–1941, í stjórn Bandalags íslenskra skáta 1942–52, varas- kátahöfðingi 1948–59, í stjórn Dýraverndun- arsambands Íslands 1959–72, formaður skólanefndar Íþrótta- kennaraskóla Íslands 1943–81, fram- kvæmdastjóri íþrótta- nefndar ríkisins 1941– 81, framkvæmdastjóri Félagsheimilasjóðs 1948–81, í blaðstjórn Íþróttablaðsins og rit- nefnd 1943–69 og í bókuútgáfunefnd ÍSÍ 1950–51. Hann sat einnig í fræðslu- nefnd ÍSÍ og í stjórn Félags áhuga- fólks um íþróttir aldraðra. Þorsteinn gaf einnig út fugla- handbók og bók um íslenska glímu, auk kennslubóka í íþróttum. Eiginkona Þorsteins var Ásdís Guðbjörg Jesdóttir, en hún lést á síðasta ári. Þau eignuðust tíu börn. ÞORSTEINN EINARSSON GYLFI Ásmundsson sálfræðingur varð bráðkvaddur á heimili sínu 5. janúar, 64 ára að aldri. Gylfi fæddist 13. september 1936 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Gróa Ásta Jafetsdóttir húsmóðir og Ásmundur Ás- mundsson bakara- meistari. Gylfi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1956 og MA-prófi í sálar- fræði frá Háskólanum í Edinborg í Skotlandi 1961. Hann lagði stund á framhaldsnám í klínískri sálfræði við Wayne State University í Detroit í Bandaríkjunum 1963– 1964. Að námi loknu starfaði Gylfi sem sálfræðingur við geðverndar- deild barna á Heilsuverndarstöð Reykjavíkur í nokkur ár og var einnig aðstoðarrannsóknarmaður við Lafayette Clinic í Detroit á ár- unum 1963–64. Hann var sálfræð- ingur og síðar yfirsálfræðingur við Kleppsspítalann frá 1965 og við geðdeild Landspítalans frá 1973 og var hann forstöðusálfræðingur þar frá 1985. Gylfi kenndi sálarfræði við ýmsa skóla og námsbrautir og varð dósent í sálarfræði við lækna- deild Háskóla Íslands árið 1974. Gylfa voru falin fjölmörg trún- aðarstörf um ævina. Átti hann m.a. sæti í stjórn Sálfræð- ingafélags Íslands og var formaður félags- ins um skeið. Hann átti sæti í stjórn Geð- verndarfélags Íslands og Öryrkjabandalags Íslands um árabil. Hann var í starfs- mannaráði Klepps- spítalans og Ríkisspít- alanna í nokkur ár og í Heilbrigðisráði Ís- lands 1974–77. Gylfi átti sæti í stjórn Nor- ræna sumarháskólans um skeið og í nefnd á vegum menntamálaráðuneytisins frá 1990 til að fjalla um leyfisveit- ingar sérfræðinga í sálarfræði. Þá átti hann sæti í ritnefnd tímarits- ins Geðverndar um langt árabil. Gylfi hlaut viðurkenningu Sál- fræðifélags Íslands sem sérfræð- ingur í klínískri sálarfræði árið 1985. Gylfi lagði mikla stund á ritstörf og þýðingar og liggja eftir hann fjölmörg rit m.a. um sálfræði. Auk þess hefur hann skrifað bókarkafla og fjölda greina um sálfræðileg efni í innlend og erlend fræðirit. Gylfi skrifaði reglulega greinar um sálfræðileg efni í Morgunblaðið og svaraði spurningum lesenda á síð- um blaðsins. Eftirlifandi eiginkona Gylfa er Erla Guðríður Líndal. Eignuðust þau fjögur börn. GYLFI ÁSMUNDSSON Andlát STAFSMENN gatnamálastjóra í Reykjavík munu annast hirðingu jólatrjáa dagana 8.-12. janúar. Þeir borgarbúar sem vilja nýta sér þessa þjónustu eru vinsamleg- ast beðnir að setja jólatrén út fyrir lóðamörk og verða þau þá fjarlægð. Eftir 12. janúar eru íbúar beðnir um að snúa sér til gámastöðva Sorpu. Þá eru íbúar sem fyrr hvattir til að hirða upp leifar af skoteldum og blysum í nágrenni sínu, segir í fréttatilkynningu frá borgarstjóran- um í Reykjavík. Hirðing jóla- trjáa að hefjast BÚAST má við því að mikill hamagangur verði í öskjunni næstu daga því hinar árlegu janúarútsölur eru í þann mund að hefjast í verslunum landsins. Örtröðin í Kringlunni í gær var slík að minnti á dagana fyrir jól- in. Starfsstúlkur í tískuvöruversl- un á Laugaveginum eru hér önnum kafnar við að hengja upp auglýsingaskilti í búðarglugga sína undir skeleggri stjórn starfssystur sinnar að utan. Morgunblaðið/Þorkell Útsölur eru um allan bæ HELGI Pétursson, formaður sam- göngunefndar Reykjavíkur, telur að borgaryfirvöld verði ekki við óskum lögreglustjórans í Reykjavík um hækkun hámarkshraða við vissar göt- ur úr 30 km í 50 km. Hann segir að sú aðgerð að lækka hámarkshraða úr 50 km í 30 km/klst hafi gefist afar vel. Íbúar séu yfirleitt ánægðir með breytinguna. Þá hafi fjöldi óska borist samgöngunefnd frá Reykvíkingum um að slíkt verði gert víðar. Helgi segir að áfram verði unn- ið að því að draga úr umferðarhraða í borginni. Hann býst því ekki við að borgaryfirvöld verði við óskum lög- reglustjóra um hækkun hámarks- hraða við þessar götur. Lögreglustjórinn í Reykjavík fór fram á þessar breytingar þar sem reynslan sýni að dómarar dæmi menn ekki til ökuleyfissviptingar fyrir hrað- akstur í götum þar sem hámarkshraði er 30 km, jafnvel þó aðreglugerð kveði á um slíkt. Því hafa þeir sem hafna dómsátt iðulega hlotið vægari refsingu með því að láta málið fara fyrir dóm. Helgi spyr hvort ekki væri betra að hækka sektir við hraðakstri í íbúðarhverfum en fella niður ökuleyf- issviptingu fremur en að hækka há- markshraðann. Hann undrast einnig hugarfar þeirra sem aka langt yfir leyfilegum hraða um íbúðargötur þar sem von er á börnum að leik. Hámarkshraði á Miklubraut og Gullinbrú líklega aukinn Lögreglustjóri fór einnig fram á að hámarkshraði yrði hækkaður á Miklubraut, frá Grensásvegi að brúnni yfir Elliðaár og á Gullinbrú, frá Höfðabakkabrú að Hallsvegi. Í ljósi þeirra breytinga sem nýlega voru gerðar á þessum götum megi fullyrða að þær beri þennan hraða. Lagt var til að hámarkshraði yrði 70 km á Miklubraut og 60 km á Gull- inbrú. Helgi tekur undir þessa tillögu lögreglustjóra og telur líklegt að sam- göngunefnd mæli með breytingum á hámarkshraða. Þær hafi verið til um- ræðu lengi. Helgi segir niðurstöðu í þessum málum að vænta fljótlega. Fundur verður í samgöngunefnd Reykjavíkur á mánudaginn. Formaður samgöngunefndar um hækkun hámarkshraða úr 30 km í 50 km Ólíklegt að borgin verði við tillögum lögreglustjóra Taldi Stúdentaráð upphæð grunn- framfærslu ekki byggjast á nægileg- um rökstuðningi þar sem stjórn LÍN hefði vanrækt lögboðnar skyld- ur sínar um að annast gagnasöfnun um fjárþörf námsmanna. Málskots- nefndin felldi úrskurð Stúdentaráði í óhag og leitaði ráðið því til umboðs- manns Alþingis sem telur niður- stöðu nefndarinnar „með öllu órök- studda“ og beinir því til hennar að hún taki málið til skoðunar á ný. Lögfræðilegt álitamál Málskotsnefnd er sjálfstætt stjórnvald innan Lánasjóðsins. Ef námsmenn una ekki niðurstöðu stjórnar sjóðsins geta þeir skotið málum til nefndarinnar. Nefndin gefur þá stjórn LÍN færi á umsögn og í þessu tilviki skilaði stjórnin inn athugasemdum. Gerði málskots- nefndin ekki athugasemdir við af- greiðslu stjórnarinnar varðandi grunnframfærslu þessa náms- manns. Aðspurður um viðbrögð við nið- urstöðu umboðsmanns Alþingis sagði Steingrímur Ari Arason, fram- kvæmdastjóri LÍN, það lögfræði- legt álitamál hvað málskotsnefndin ætti að sinna miklu eftirlitshlut- verki. Nefndin hefði talið það hlut- verk sitt að kanna hvort lögum og reglum hafi verið framfylgt en ekki hvort stjórn eða starfsmenn sjóðsins hefðu sinnt vinnuskyldu sinni. „Að því gefnu að Stúdentaráð óski eftir því að málskotsnefndin taki málið upp og að nefndin óski eftir frekari upplýsingum á ég ekki von á öðru en að stjórn sjóðsins verði við því. Vandinn við þetta mál er að það orðið meira en tveggja ára gamalt. Að því leytinu eru allir frestir út- runnir og margt gerst frá þeim tíma,“ sagði Steingrímur Ari. Telur niðurstöðu mál- skotsnefndar órökstudda UMBOÐSMAÐUR Alþingis hefur beint því til málskotsnefndar Lánasjóðs ís- lenskra námsmanna, LÍN, að hún taki á ný til skoðunar kæru sem varðar ákvörðun á grunnframfærslu, komi fram ósk þess efnis. Telur umboðsmaður að málið hafi ekki sætt nauðsynlegri rannsókn af hálfu nefndarinnar er hún fékk það til umfjöllunar.Umboðsmaður hefur skilað áliti sínu til Stúdentaráðs Háskóla Íslands og málskotsnefndar LÍN. Stúdentaráðið, fyrir hönd skjól- stæðings síns, kærði til nefndarinnar ákvörðun á grunnframfærslu. Umboðsmaður um Lánasjóð íslenskra námsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.