Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 16
LANDIÐ 16 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ HIGH COURT OF JUSTICE CHANCERY DIVISION MÁL NR. 4833 ÁRIÐ 2000 varðandi ROYAL LIVER ASSURANCE LIMITED og varðandi CALEDONIAN INSURANCE COMPANY LIMITED og varðandi LÖG UM VÁTRYGGINGAFÉLÖG FRÁ 1982 Tilkynning um flutning allra langtímavið- skipta Caledonian Insurance Company Limited til Royal Liver Assurance Limited Samkvæmt 4. málsgrein I. hluta skrár 2C vátryggingalaga frá 1982 tilkynnist hér með, að með ákvörðun dags. 12. desember 2000, hefur High Court of Justice í Englandi samþykkt áætlun um flutning allra langtíma vátrygginga- viðskipta Caledonian Insurance Company Limited (utan undanþegin vátryggingaskírteini eins og þau eru skil- greind í áætluninni) til Royal Liver Assurance Limited og tekur flutningurinn gildi kl. 11.59 e.h. hinn 31. desember 2000 og hefur dómstóllinn tekið ýmsar ákvarðanir í tengsl- um við framangreint samþykki. Vestmannaeyjum - Þrátt fyrir að Ísfélag Vest- mannaeyja hafi nánast brunnið til grunna stendur vest- urhluti hússins, og er nú unnið hörðum höndum við að gera þar klárt svo frysta megi þar loðnu á vertíðinni og jafnvel síld fyrir loðnuvertíð. Jólaskreytingarnar á þakinu voru ekki teknar niður þrátt fyrir hinn mikla bruna heldur færðar vestar á þak hússins. Það hefur farið vel í bæjarbúa að sjá skreytingarnar á þakinu og fólki finnst að það beri vott um bjartsýni eigendanna og bæjarbúar bera með sér þá von í brjósi að fyrirtækið verði endurreist og þar hefj- ist aftur rekstur. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Jólaskreyting á Ísfélaginu Stykkishólmi - Sæferðir ehf. í Stykkishólmi tóku við rekstri Breiðafjarðarferjunnar Baldurs hinn 1. janúar. Þetta þykja talsverð tíðindi því sama félagið hafði fram að þeim tíma annast útgerð Baldurs frá upphafi eða í 77 ár. Við þessa breytingu lét Guðmundur Lárusson af stöfum framkvæmdastjóra Bald- urs sem hefur séð um rekstur hans frá árinu 1973. Áður voru faðir hans og afi framkvæmdastjórar fyrirtæk- isins. Guðmundur Jónsson keypti fyrsta Baldur árið 1924 og sá um rekstur hans þar til hann andaðist árið 1941. Lárus Guðmundsson tók þá við, fyrst sem skipstjóri og síðan sem framkvæmdastjóri. Að sögn Péturs Ágústssonar, tals- manns Sæferða, verða ekki miklar breytingar á rekstri Baldurs við þessar breytingar, enda erfitt um vik þar sem í útboði Vegagerðarinn- ar í rekstur Baldurs var tekin fram tíðni ferða og önnur þjónustu sem á að veita. Áhöfn Baldurs var boðin endurráðning og verða þar litlar breytingar. Ýmsar minni háttar breytingar verða gerðar sem aðal- lega snúa að afgreiðslu ferjunnar. Pétur segir að ferjan hafi verið vel rekin á liðnum árum og hafi veitt góða þjónustu. Það er ætlun Sæ- ferða að viðhalda því orðspori og jafnvel gera betur með tíð og tíma. Þegar Pétur var spurður að því hvort ferjan þjónaði kröfum tímans sagði hann að svo væri ekki á allan hátt. Þarfirnar hefðu breyst mikið síðustu ár. Mikil fjölgun hefur verið á flutningi vöruflutningabíla yfir Breiðafjörð og getur Baldur ekki sinnt því nógu vel. Þörf á stærri og hraðskreiðari ferju Hann sagði að þörf væri á stærri og hraðskreiðari ferju sem gæti flutt fleiri bíla og væri fljótari í förum á milli. Því miður væru þær breyting- ar ekki sjáanlegar. Nú tekur 3 tíma að sigla með Baldri yfir Breiðafjörð. Sæferðir taka við rekstri Baldurs Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Pétur Ágústsson hjá Sæferðum býður Hörð Gunnarsson skipstjóra vel- kominn til starfa, en fyrirtækið tók við rekstri Baldurs um áramót. Búðardalur - Heilsugæslustöðinni hér í Búðardal barst á dög- unum rausnarleg gjöf. Það er Dopplertæki sem meðal annars er notað við mæðraskoðun. Tækið heitir Dopplex, það er frá fyr- irtækinu Huntleigh Diagnostics og fer ekki mikið fyrir því. Það leysir af hólmi eldra tæki og í stað skruðninga úr gamla tækinu geta verðandi mæður heyrt hjartslátt ófædds barns síns. Þar að auki hefur hið nýja tæki þann kost að með því er hægt að skoða æðar í útlimum, en það gat það gamla ekki. Það voru kvenfélög í læknishéraðinu sem gáfu Heilsugæslunni þessa gjöf. Þau eru: Kvenfélag Geiradalshrepps, Liljan á Reykhól- um, Hvöt á Fellsströnd, Guðrún Ósvífursdóttir í Hvammssveit, Þorgerður Egilsdóttir í Laxárdal og Fjólan í Suðurdölum ásamt Lionsklúbbi Búðardals. Kærkomin gjöf til Dalamanna Dopplertæki á heilsugæslustöðina Morgunblaðið/Óskar Ingi Ingason Læknarnir Þórður Ingólfsson og Gísli Ólafsson með tækið góða. BROTIST var inn í Egilsstaða- skóla á nýársnótt. Þeir, eða sá, sem þar voru að verki brutu rúðu við útidyr skólans til að komast inn. Þeir höfðu svo á brott með sér netþjón skólans og svokallaðan beini (e. router). Netþjónninn fannst á mið- vikudaginn þegar íbúi í húsi sem er við skólalóðina var að moka snjó frá ruslatunnum en mikið fannfergi er nú á Egils- stöðum. Beinirinn hefur hins- vegar ekki fundist. Lögreglan á Egilsstöðum er með málið í rannsókn. Engin tölvugögn glötuðust Netþjóninum var komið í viðgerð og hann settur í gang í Egilsstaðaskóla í fyrradag. Helgi Halldórsson, skólastjóri Egilsstaðaskóla, segir að net- þjónninn sé í stakasta lagi. Engin tölvugögn glötuðust. Helgi segist afar ánægður með að netþjónninn hafi skilað sér enda á honum ýmis trúnaðar- gögn. Þýfið var á kafi í snjó Tölvubúnaði stolið úr Egilsstaðaskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.