Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ SAMTÖK atvinnulífsins telja að samhliða mynd- arlegum afgangi hjá ríkissjóði minnki aðhald að rík- isútgjöldum. Samtökin benda á að frá 1998-2001 hafi ríkisútgjöld hækkað árlega um 10%. Útgjöld í fjárlögum ársins 2001 séu 26 milljörðum hærri en í fjárlögum ársins 2000. Þetta sé 13% aukning. Í yfirliti SA segir að frá 1998 hafi rekstrargjöld hækkað árlega um 13%, rekstrar- og neyslutil- færslur 9%, viðhald um 12% og fjárfesting um 9% en fjármagnskostnaður hafi staðið í stað. Ríkisútgjöld eru að jafnaði meiri en fjárlög gera ráð fyrir og bendir SA á að útgjöld ársins 2000 hafi farið 7 milljörðum fram úr heimildum. SA segir að launabreytingar hjá opinberum starfsmönnum sýni skort á nægilegu aðhaldi. „Laun flestra stétta hafa hækkað meira en verðlag undanfarin ár en laun rík- isstarfsmanna þó sýnu meira en annarra. Á 2. árs- fjórðungi 2000 var kaup opinberra starfsmanna og bankamanna 35% hærra en á 2. fjórðungi 1997.“ SA segir að útgjöld til sjúkratrygginga hækki um tvo milljarða frá fjárlögum fyrra árs, eða um 21%, einkum vegna mikils lyfjakostnaðar. Greiðslur vegna búvöruframleiðslunnar hækki um rúman milljarð, eða um tæp 20%. Útgjöld til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga hækki um rúmlega tvo milljarða, eða um 55%. Barnabætur hækki um tæpan milljarð, eða um 22%. Ný lög um fæðingarorlof kosti 700-800 milljónir. Þá aukist fjárfestingar um 3,5 milljarða, eða um 27%. Þar muni mest um auknar vegafram- kvæmdir og hafnarframkvæmdir. „Nú þegar má sjá fyrir að ríkisútgjöld ársins 2001 fari fram úr fjárlögum. Nýfallinn dómur um tengingu örorkubóta við tekjur maka gæti kostað ríkið milljarða. Þá er rætt um að færa dagvinnulaun framhaldsskólakennara nær heildarlaunum. Pétur Blöndal stærðfræðingur og alþingismaður hefur varpað því fram að hækkun lífeyrisskuldbindinga vegna þessa gæti kostað ríkissjóð 14 milljarða króna,“ segir í samantekt SA. Samtök atvinnulífsins segja fyrirsjáanlegt að ríkisútgjöld fari fram úr fjárlögum Ríkisútgjöld hafa aukist um 10% á ári frá 1998 KRISTÍN Rós Hákonardóttir sund- kona, sem hlaut fern verðlaun á Ól- ympíumóti fatlaðra í Sydney á síð- asta ári, fékk á miðvikudag styrk úr Minningarsjóði Gunnars Thor- oddsen, fyrrverandi forsætisráð- herra og borgarstjóra. Kristín, sem í lok síðasta árs var útnefnd íþróttakona ársins hjá Íþróttasambandi fatlaðra, fékk 250 þúsund króna styrk fyrir árangur sinn í íþróttum. Það var frú Vala Thoroddsen, ekkja Gunnars, sem afhenti styrk- inn, en þetta er í fimmtánda sinn sem hann er veittur. Minning- arsjóður Gunnars Thoroddsen er í vörslu borgarstjórans í Reykjavík, sem ákveður úthlutun úr honum að höfðu samráði við frú Völu. Ingi- björg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri var viðstödd athöfnina. Morgunblaðið/Golli Kristín Rós Hákonardóttir hlaut í gær styrk úr Menningarsjóði Gunnars Thoroddsen. Frá vinstri: Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri, Kristín Rós og frú Vala Thoroddsen. Kristín Rós sundkona hlýtur styrk væru þar á. „Við nánari eftirgrennsl- an kom það á hinn bóginn í ljós að ekki reyndist unnt að fá flugstjóra á flugvélina með svo skömmum fyrir- vara þrátt fyrir ítarlega leit. Þá reyndist einnig ómögulegt að fá aðra flugrekstraraðila til að taka vaktina þessa nótt,“ segir Leifur ennfremur í bréfinu. Greiðslur of lágar Hann segist harma mjög að ekki reyndist unnt að standa við samning við heilbrigðisráðuneytið. Slíkt muni ekki gerast aftur. Leifur minnir jafnframt á að Mý- flug gerði fyrir nokkru tilboð í sjúkraflug til Vestfjarða sem er nokkru hærra en þær greiðslur sem nú eru greiddar fyrir verkefnið. Hann segir það skoðun sína að nú- verandi greiðslur fyrir sjúkraflug séu það lágar að ómögulegt sé að sinna þeirri þjónustu sem krafist sé. HEILBRIGÐISRÁÐUNEYTINU hefur borist bréf frá Leifi Hallgríms- syni, framkvæmdastjóra Mýflugs, þar sem hann útskýrir hvers vegna félagið gat ekki tekið að sér sjúkra- flug frá Patreksfirði til Reykjavíkur á nýársnótt. Loftferðaeftirlitið hefur veitt Mýflugi flugrekstrarleyfi á ný en Leifur segir í bréfinu að misskiln- ingur á milli flugrekstrarstjóra Mý- flugs og loftferðaeftirlitsins hafi valdið því að leyfið féll úr gildi. Leif- ur segist hafa gert ráð fyrir því að leyfið myndi endurnýjast sjálfkrafa eins og gerðist við síðustu endurnýj- un en svo reyndist ekki vera. Í bréfi sínu segir Leifur að heil- brigðisráðuneytið hafi farið fram á það við Mýflug að félagið tæki að sér að sinna sjúkraflugi á Vestfjörðum áfram því ekki hafði tekist að ljúka samningum við þann aðila sem tilboð var tekið frá. Hann féllst á þetta og taldi að litlir eða engir meinbugir Mýflug aftur með flugrekstrarleyfi Ekki tókst að útvega flugstjóra á nýársnótt UNDIRRITAÐUR var á Grænlandi í vikunni samningur milli Flugfélags Íslands, FÍ, og grænlensku heima- stjórnarinnar um flug milli Reykja- víkur og tveggja staða á austur- strönd Grænlands; Kulusuk og Nerlerit Inaat. Að sögn Árna Gunn- arssonar, sölu- og markaðsstjóra FÍ, er samningurinn til eins árs og tryggir félaginu tekjur upp á um 100 milljónir króna yfir árið. Um 10 þús- und manns flugu með FÍ milli Reykjavíkur og Grænlands á síðasta ári. Árni taldi í samtali við Morgun- blaðið að með þessum samningi við Grænlendinga myndi farþegafjöldi haldast svipaður en fraktflutningar líklega aukast nokkuð. Til Kulusuk verður flugið tímasett þannig að samdægurs náist tenging til Nuuk, höfuðstaðar Grænlands, á vestur- ströndinni en þar var samningurinn undirritaður. Fyrsta flugið samkvæmt þessum samningi var farið 2. janúar sl. Flog- ið verður tvisvar í viku allt árið, á þriðjudögum og laugardögum. Á þriðjudögum er farið frá Reykjavík til Nerlerit Inaat og þaðan til Kul- usuk, sem er nokkru sunnar við ströndina, og síðan til baka til Reykjavíkur. Á laugardeginum er farinn öfugur hringur og byrjað á flugi til Kulusuk. FÍ ætlar að nota Metro-vél og ATR-vél í þetta Græn- landsflug. Flug til Nerlerit Inaat eru einu samgöngur þessa 500 manna og af- skekkta bæjar við umheiminn, en danskt heiti hans er Constable Pynt. „Eins og gefur að skilja eru far- þegaflutningar til Nerlerit Inaat ekki miklir og undir venjulegum kringumstæðum hefðum við ekki tekið þetta flug að okkur. En með samningnum tryggir grænlenska heimastjórnin okkur ákveðnar tekjur þannig að áhættan af fjölda farþega liggur ekki hjá okkur,“ sagði Árni. Samningur Flugfélags Íslands við grænlensku heimastjórnina undirritaður Samningur Flugfélags Íslands og grænlensku heimastjórnarinnar var undirritaður í Nuuk á Grænlandi. Frá vinstri eru Friðrik Adolfsson, sölustjóri leiguflugs, Árni Gunnarsson, sölu- og markaðsstjóri, Jón Karl Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins, Steffen Ulrich-Lynge, innanlandsráðherra heimastjórnarinnar, Kaalat Mueller, aðstoðarmaður ráðherra, Jens K. Lyberth ráðuneytisstjóri og Jacob Juhl Jensen deildarstjóri. Tryggir 100 milljóna tekjur á ári AÐSÓKN að Viðey hefur vaxið mjög síðustu þrjú árin. Árið 2000 urðu gestirnir flestir eða 27.809 talsins, sem er 25,13 % af íbúafjölda Reykjavíkur. Er það fjölgun um 2.900 frá árinu 1999 og um nærri 5.800 frá 1998. Kirkjugestir, sem eru taldir þarna með, hafa og aldrei verið fleiri en þetta ár eða 3.186. Fram til miðs nóvember voru fluttar 10 almennar messur í Viðeyjarkirkju, 1 barnamessa og 3 helgistundir. Þessar 14 at- hafnir sóttu 914 manns og af þeim gengu 321 til altaris. 17. nóvember tóku gestir svo að streyma í aðventuhlaðborðið í Viðeyjarstofu. Þeir urðu alls tæplega 2.500 fram til jóla. Þeim var öllum gefinn kostur á að koma fyrst til 15 mínútna helgistundar í Viðeyjarkirkju. Það þáðu 2.272 og helgistundir þessa tímabils urðu 63. Hjónavígslur í Viðeyjar- kirkju á árinu 2000 voru 11 og skírnir 4. Staðarhaldari lætur af störfum um mánaðamótin Eins og kunnugt er lætur sr. Þórir Stephensen af starfi staðarhaldara í Viðey, fyrir aldurs sakir, um næstu mán- aðamót. Frá og með 1. febrúar tekur Árbæjarsafn – minjasafn Reykjavíkur, við þeim störfum, sem staðarhaldarinn hefur haft á hendi. „Ég er, á þessum tímamót- um“, segir sr. Þórir, „mjög þakklátur fyrir þá vaxandi vel- gengni og vinsældir sem Viðey og starfsemin þar hafa notið. Ég þakka þetta ekki síst ár- angursríku samstarfi við dug- mikla og þjónustufúsa veit- ingamenn í Viðeyjarstofu og þá sem standa að Viðeyjarferj- unni.“ Metað- sókn að Viðey í fyrra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.