Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 VERÐ Í LAUSASÖLU 165 KR. MEÐ VSK. LÍTIL tveggja sæta flugvél af gerðinni Cessna 152 átti í vélar- vandræðum sunnan við Þingvelli um hádegið í gær. Um borð í vél- inni voru mæðgur og flaug dótt- irin vélinni en hún lauk einka- flugmannsprófi í haust. Hún sagði að hreyfill vélarinnar hefði misst afl sunnan við Þingvelli og óskaði þá eftir aðstoð. Hún ákvað í samráði við flug- turninn að fylgja veginum eftir að Selfossi og lenda þar. Lög- reglubíll frá Selfossi fylgdi flug- vélinni á Selfoss og eins kom önn- ur stærri flugvél til aðstoðar og fylgdi henni eftir. Lögreglan seg- ir að mæðgurnar hafi unnið þrek- virki með því að halda ró sinni og lenda heilu og höldnu á Selfossi. Ákvað að halda áfram „Ég hélt fyrst að mótorinn væri að bila og kallaði strax í flugturn- inn og lét vita um ástandið. Fyrsta hugsunin var að leita að mögulegum lendingarstað,“ sagði Unnur Guðjónsdóttir sem flaug vélinni en móðir hennar, Sigríður Káradóttir, var í sinni fyrstu flug- ferð með dóttur sinni. Unnur sagðist hafa fundið að um ísingu var að ræða í blöndungnum því vélin flaug áfram þótt hreyfillinn hikstaði. „Þannig að ég ákvað að halda áfram enda er þetta vél sem svífur vel og auðvelt að lenda henni við þær aðstæður sem þarna voru.“ „Móðir mín stóð sig mjög vel og var hin rólegasta þegar þetta kom upp og sagði mér strax að hún treysti mér fullkomlega til þess að fást við þetta. Það var gott að finna hvað hún var róleg yfir þessu. Við töluðum saman og svipuðumst um eftir mögulegum lendingarstöðum ef svo færi að við þyrftum að lenda. Mamma var eins og fullkomnasti aðstoðar- flugmaður og sá strax að þetta var ekkert stórmál,“ sagði Unnur. „Svo kom önnur vél til okkar og var í sambandi við mig og leið- beindi mér áfram. Ég hélt hæð og flaug bara áfram þar til ég kom að Selfossi þá fór ég í venjulegt aðflug. Vélin var fín í aðfluginu og lendingin tókst vel,“ sagði Unnur Guðjónsdóttir flugmaður. „Mér fannst við ekki vera í neinni hættu. Unnur er fyrirtaks flugmaður og ég vissi auðvitað að ég var í góðum höndum með henni enda varð ég ekkert hrædd og við vorum hinar rólegustu,“ sagði Sigríður Káradóttir, móðir Unnar flugmanns. Hún sagði að eftir athugun á vélinni á Selfossi hefði henni verið flogið síðar um daginn til Reykjavíkur. Mæðgur á einkaflugvél lentu í vandræðum yfir Þingvöllum Morgunblaðið/Helgi Valberg Sigríður Káradóttir var í sinni fyrstu flugferð með dóttur sinni, Unni Guðjónsdóttur flugmanni. Mamma fullkom- inn að- stoðar- flugmaður Selfossi. Morgunblaðið. MAÐUR á fertugsaldri hlaut alvar- lega áverka þegar hann var stunginn með hnífi í háls og brjóstkassa af jafnaldra sínum og kunningja við pítsustaðinn Hróa hött í Fákafeni í Reykjavík í gærkvöldi. Að sögn læknis á Landspítalanum í Fossvogi er maðurinn ekki í lífshættu en hann er með tvö nokkuð djúp stungusár. Árásarmaðurinn lagði á flótta eftir árásina en lögreglan fékk ábending- ar frá sjónarvottum og náði honum rúmum hálftíma eftir árásina fyrir utan heimili hans og flutti hann í fangageymslur lögreglustöðvarinn- ar við Hverfisgötu. Að sögn lögreglu er ekki vitað um ástæður árásarinn- ar en málið er í rannsókn. Mennirnir, sem báðir eru frá Norður-Afríku, lentu í svipuðu máli fyrir utan Hagkaup í Skeifunni 15. október 1999. Þá réðst sami maður að hinum og veitti honum stunguáverka með skærum á hálsi og handlegg, en meiðslin reyndust ekki alvarleg í það skiptið. Morgunblaðið/Ásdís Maður var stunginn með hnífi í Fákafeni í gær en lögreglan fann árásarmanninn eftir ábendingar frá vitnum. Stunginn með hnífi í háls og brjóstkassa Kunningjar frá N-Afríku lenda í átökum öðru sinni VINNU við gerð nýs kjarasamnings framhaldsskólakennara miðaði allvel í gær. Deiluaðilar vonast eftir að tak- ist að ljúka við gerð nýs samnings um helgina. Mikil vinna er hins veg- ar eftir við ýmsa þætti samningsins. Það þykir því tvísýnt að nýr samn- ingur verði tilbúinn fyrir nk. mánu- dag jafnvel þó að ný ágreiningsmál komi ekki til. Ástæðan er m.a. sú að kjarasamningur kennara er mjög flókinn og verið er að ræða um að gera á honum mjög veigamiklar breytingar. Í fyrrinótt var fundað í kjaradeil- unni til kl. 3. Fundur hófst aftur í gærmorgun og stóð fram á kvöld. Nýr fundur er boðaður í dag. Skólastjórum í grunnskólum og launanefnd sveitarfélaganna tókst ekki að ná samkomulagi í gær um kjör skólastjóra eins og að var stefnt. Nýr fundur er boðaður í dag. Form- leg undirritun samnings grunnskóla- kennara og launanefndarinnar fer ekki fram fyrr en búið er að ná sam- komulagi við skólastjóra. Skólastjór- ar krefjast verulegra launahækkana og rökstyðja það m.a. með því að benda á að í samningi grunnskóla- kennara sé verið að auka verkstjórn- arvald skólastjóra og þar með verk- efni þeirra. Óljóst hvort samningar tak- ast um helgina SAMKVÆMT verðkönnun Morg- unblaðsins í þremur lágvöruversl- unum í Reykjavík er Bónus með lægsta verðið. Nítján vörutegundir fengust í öllum verslununum og kostuðu þær samtals 3.538 kr. í Bónus í Holtagörðum, 3.580 kr. í Krónunni í Skeifunni og 4.551 kr. í Nettó í Mjódd.  Munaði/26 Bónus með lægsta verðið Tekinn ölvaður með barn í bílnum RÚMLEGA fertugur karlmaður var handtekinn í umferðinni í Reykjavík í gærkvöldi en hann reyndist vera mjög ölvaður. Maðurinn kvaðst vera í bíltúr en við hlið hans sat barnung- ur sonur hans. Voru þeir færðir á lögreglustöðina við Hverfisgötu en að lokinni skýrslu- og sýnistöku fluttir til síns heima. BILUN varð í gærkvöldi í tækja- búnaði í Vestmannaeyjum vegna Cantat 3-sæstrengsins. Netsamband til Norður-Ameríku lá niðri frá því klukkan sjö þar til viðgerð lauk upp úr klukkan níu. Leigulínusambönd urðu einnig óvirk á þeim tíma. Netsamband lá niðri í tvo tíma ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.