Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 49
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 49
KVEÐJUGUÐSÞJÓNUSTA sr.
Guðmundar Þorsteinssonar verður
kl. 15.30 á sunnudag. Athugið
breyttan messutíma. Organleikari
er Pavel Smid. Kirkjukór Árbæjar-
kirkju syngur. Einsöngvari er Krist-
ín R. Sigurðardóttir. Sr. Þór Hauks-
son sóknarprestur þjónar fyrir
altari á undan prédikun. Leikmenn
flytja bænir og lesa ritningarlestra.
Eftir guðsþjónustuna verða stutt
ávörp í kirkjunni. Eftir það er
kirkjugestum boðið í kaffisamsæti í
safnaðarheimili kirkjunnar. Allir
velkomnir.
Sóknarprestur og sóknarnefnd.
Ríki og þjóðkirkja
á nýrri öld
SUNNUDAGINN 7. janúar verður
haldin fyrsta guðsþjónusta aldarinn-
ar í Hafnarfjarðarkirkju. Á þessum
tímamótum horfir kirkjan fram til
nýs árþúsunds kristinnar trúar í
landinu. Á liðnu ári var haldið upp á
þúsund ára afmæli kristni á Íslandi
eins og alþjóð veit. Var þá minnst
liðinna alda og meðal annars sam-
vinnu ríkis og þjóðkirkju í gegnum
tíðina. Margar spurningar vöknuðu
um þetta samstarf, í hverju það sé
fólgið og hvort ef til vill sé kominn
tími til að rjúfa endanlega tengsl
ríkis og þjóðkirkju á nýju árþúsundi.
Er t.d. víst að kirkja og ríki eigi ætíð
samleið og hvað á þjóðkirkja að gera
ef ríkið verður henni andsnúið? Nú
horfir kirkjan til framtíðar. Af því
tilefni verður þessi fyrsta guðsþjón-
usta aldarinnar helguð þemanu
„Ríki og þjóðkirkja á nýrri öld“.
Prestur er sr. Þórhallur Heimisson
en kór Hafnarfjarðarkirkju leiðir
söng undir stjórn Natalíu Chow.
Guðsþjónustan hefst kl. 11. Eftir
guðsþjónustuna gefst tækifæri til að
ræða málin áfram í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi.
Messudagur
Sigríðarsystra
í Dómkirkjunni
VIÐ messu í Dómkirkjunni á sunnu-
daginn, 7. janúar, aðstoða systur úr
Oddfellowstúkunni Sigríði við
messuþjónustuna og fjölmenna með
sínu fólki til kirkju. Þetta er að
verða árviss viðburður hjá okkur í
Dómkirkjunni og okkur til gleði að
fá gesti á bak hátíðum.
Messan er annars fyrsta safnað-
armessa aldar og árs og munu Dóm-
kórinn og Guðmundur Sigurðsson,
organisti, annast tónlistarflutning.
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson dóm-
kirkjuprestur mun prédika og þjóna
fyrir altari.
Sigríðarsystur hafa svo veitingar í
Oddfellowhúsinu til sölu eftir messu.
Á boðstólum er létt hádegishressing
sem er seld til ágóða fyrir líknarsjóð
þeirra.
Furðuleikhúsið
í Grafarvogskirkju
EINS og undanfarin ár hefst barna-
starfið í Grafarvogskirkju með sam-
eiginlegri barna- og fjölskylduguðs-
þjónustu sunnudag kl. 11.
Barnaguðsþjónustan sem fer fram í
Engjaskóla á sunnudögum verður í
þetta sinn einnig í Grafarvogskirkju.
Furðuleikhúsið sýnir leikritið Leitin
að Jesú. Leikari Ólöf Sverrisdóttir.
Leikstjóri Ása Hlín Svavarsdóttir.
Allir velkomnir.
Grafarvogskirkja.
Söngnámskeið
í Hafnarfjarðar-
kirkju
HAFNARFJARÐARKIRKJA
stendur fyrir söngnámskeiði í byrj-
un árs sem ætlað er fyrir bæði byrj-
endur og lengra komna. Námskeiðið
er í samtals sex skipti, einn og hálfur
klukkutími í senn, á laugardögum kl.
12.30–14. Kennsla hefst laugardag-
inn 12. janúar. Kennsla fer fram í
Hásölum Hafnarfjarðarkirkju.
Kennd verður öndun, raddbeiting
og tónheyrn. Áhersla er lögð á ein-
staklingsþjálfun, þó kennt sé í hóp-
tímum. Kennari er sópransöngkon-
an Natalía Chow. Námskeiðsgjald
er 5.000 kr.
Skráning og nánari upplýsingar
hjá Natalíu Chow í síma 555-1346
eða 699-4613.
Grafarvogskirkja. AA-hópur kl. 11.
KEFAS: Samkoma í dag laugardag
kl. 14. Ræðumaður Helga R. Ár-
mannsdóttir. Þriðjud.: Almenn
bænastund kl. 20.30. Miðvikud.:
Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Föstud.: Bænastund unga
fólksins kl. 19.30. Allir hjartanlega
velkomnir.
Landakirkja í Vestmannaeyjum.
Kl. 11 helgistund í Stafkirkjunni ás0
Skansinum. Ritningarlestur, altaris-
ganga og bænastund.
Kveðjuguðs-
þjónusta sr.
Guðmundar
Þorsteinssonar
Morgunblaðið/Arnaldur
Árbæjarkirkja
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
Þegar maður heyrir
um andlát góðs vinar
rifjast gjarnan upp í
huga manns minningar
frá liðnum árum. Sú
varð svo sannarlega
raunin þegar ég frétti að Dúi Björns-
son hefði kvatt þennan heim. Ég á
margar góðar minningar frá okkar
kynnum og samverustundum um æv-
ina.
Dúi var mér alla tíð góður, traustur
og einlægur vinur frá því ég man eftir
honum fyrst, þegar ég var ungur
drengur. Hann var þá starfsmaður
Rafveitu Akureyrar, vinur föður
míns og fjölskyldunnar. Mér fannst
hann strax skemmtilegur, með
áhugaverðan persónuleika og síðar
varð ég betur var við hve traustur og
tryggur vinur hann var í raun. Þetta
kom allt enn betur í ljós þegar ég var
farinn að vinna sem sumarstrákur
hjá Rafveitunni og ekki síður þegar
ég fór að starfa innan skátahreyfing-
arinnar, en Dúi var í mínum huga
ímynd hins sanna skáta og sýndi
fram á það í verki að fullyrðingin „eitt
sinn skáti, ávallt skáti“ á við rök að
styðjast.
Dúi leiðbeindi mér þegar ég gerð-
ist línumaður eitt sumar hjá Rafveit-
unni og fór upp í fyrsta staurinn í há-
spennulínunni frá Laxárvirkjun,
hann var á gljúfurbarminum við
virkjunina. Ég kunni vel við mig uppi
í staurunum eftir að ég lærði réttu
tökin hjá Dúa, og félagsskapurinn
var skemmtilegur í línumannahópn-
um. Dúi kom mér einnig á sporið í
skátahreyfingunni og oft var gaman
að vera með þeim saman, Dúa og
Tryggva Þorsteinssyni. Þar var ekki
síður skemmtilegur og uppbyggjandi
félagsskapur.
Ég vil þakka Dúa vini mínum fyrir
hinar fjölmörgu ánægjulegu stundir
sem við höfum átt saman í starfi hjá
Rafveitu Akureyrar, í skátastarfi, á
ferðalögum, í útilegum og í einkalífi
okkar. Ég sendi eiginkonu hans og
börnum samúðarkveðjur og óska
þeim öllum velfarnaðar.
Svanbjörn Sigurðsson.
Kveðja frá
St. Georgsgildinu Kvisti
Við skátar á Akureyri sem fæddir
erum í kringum miðja síðustu öld
minnumst Dúa Björnssonar sem
glæsilegs skátaforingja. Við minnumst
Dúa frá fjölmörgum skátamótum þar
sem hann mætti í fullum skrúða, léttur
og hress, með alla fjölskylduna. Við
minnumst Dúa sem samnefnara fyrir
skátastarf á Akureyri.
Þegar stjórna þurfti skrúðgöngu á
sumardaginn fyrsta eða 17. júní, þá
gerði Dúi það. Ósjaldan þurfti að laga
útileguskála eða byggja nýjan, þá
mætti hann fyrstur manna með tæki
sín og tól og lét ekki deigan síga fyrr
en lokið var. Öll störf sín í þágu skáta
vann hann með sínu létta skopskyni,
sem ógleymanlegt er öllum sem
kynntust,og hreif með sér unga jafnt
sem aldna. Víst er að öll verk ganga
betur ef lundin er létt.
Margar eru þær skátasveitir og
þeir skátaflokkar stórir og smáir sem
Dúi reisti úr kaldakoli og blés í lífs-
anda svo dugði.
Meðan Hjálparsveit skáta hér í bæ
sleit barnsskónum var Dúi þeim ungu
mönnum sem þar störfuðu innan
handar, þvældist með þeim á æfing-
um og í leitum og var þeim andlegur
leiðtogi. Hann gerði sér fulla grein
fyrir því að ef virkja á þann ógnar-
kraft sem í ungu fólki býr til góðra
verka þarf fulltingi þeirra fullorðnu.
Jafnframt var hann ólatur að halda
til haga skátaminjum sem til féllu og
vann að því að koma þeim á viðeig-
andi söfn, enda varð hann svo gamall
í starfi að hann gerði sér fulla grein
fyrir gildi sögunnar fyrir þróttmikið
DÚI BJÖRNSSON
✝ Jóhann Dúi AxelBjörnsson fædd-
ist á Akureyri 6.
janúar 1923. Hann
lést á Sjúkrahúsinu á
Akureyri 23. des-
ember síðastliðinn
og fór útför hans
fram frá Akureyrar-
kirkju 5. janúar.
æskulýðsstarf.
Dúi Björnsson var
ekki „toppfígúra“ í
skátastarfi heldur hlúði
hann að grasrótinni og
gætti þess að þau störf
sem vinna þurfti til við-
gangs hreyfingunni
væru unnin.
Við vottum eigin-
konu, börnum og
barnabörnum samúð
okkar og kveðjum okk-
ar góða vin með skáta-
kveðju.
Elsku afi. Nú færðu
loksins að hvíla í friði. Ég er svo
þakklát að við sættumst áður en þú
fórst. Mér finnst bara sorglegt að þú
færð ekki að fylgjast með Beccu vaxa
úr grasi. Þið voruð svo góðir vinir og
hún talar svo oft um afa Dúa með
stafinn. Ég vona að þú vitir hvar sem
þú ert að mér hefur alltaf þótt ofsa-
lega vænt um þig þrátt fyrir öll okkar
stríð. Við Becca komum til með að
sakna þín alltaf. Manstu eftir skáta-
laginu sem þú kenndir mér að spila
þegar ég var lítil?
Þýtur í laufi, bálið brennur,
blærinn hvíslar sofðu rótt.
Hljóður í hafið röðull rennur,
roðnar og bíður góða nótt.
Vaka þá ennþá vinir saman,
varðeldi hjá í fögrum dal.
Lífið er söngur, glaumur, gaman,
gleðin hún býr í fjallasal.
(T.Þ.)
Ég sakna þín, afi.
Eva Jóhanna og fjölskylda.
Dúi Björnsson, fv. kirkju- og kirkju-
garðsvörður, er látinn. Hann hafði um
nokkurn tíma verið haldinn þeim sjúk-
dómi sem að lokum hafði yfirhöndina,
slökkti lífsljós hans. Við félagar Dúa,
sem höfum flestir spilað svokallaðan
skallbolta í hartnær 35 ár, viljum með
nokkrum orðum minnast hans og
þakka jafnframt góða samfylgd. Flest-
ir kynntumst við Dúa í skátahreyfing-
unni og störfuðum þar meira og minna
með honum til fjölda ára.
Skallbolti er skemmtileg íþrótt
sem á uppruna sinn á Akureyri og var
Dúi einn af frumkvöðlum þeirrar
íþróttar. Langt er nú liðið síðan síð-
asta Akureyrarmót fór fram en á því
móti sigraði lið Dúa og taldi hann sig
gjarnan vera Akureyrarmeistara eft-
ir það. Dúi var skemmtilegur og já-
kvæður félagi sem gladdi geð okkar
með glettni og jákvæðni. Helst mun-
um við minnast hans fyrir spaugsem-
ina sem oft létti okkur skap í amstri
dagsins. Dúi var vel kappsamur en
hafði jafnframt þann góða eiginleika
að vera ekki tapsár. Dúi var mikil
félagsvera og starfaði kröftuglega að
félagsmálum þeim sem hann kom að.
Í hópnum hafði hann allra bestu
mætinguna allt fram að þeim tíma að
hann varð sjúkur maður en mætti þó
alltaf þegar hann hafði heilsu til, þó
ekki væri til annars en að fylgjast
með hvort við héldum okkur ekki í
formi eins og hann orðaði það.
Í haust kom hann síðan til að til-
kynna okkur að nú væri hann hættur
og með smá athöfn í hans anda tók
hann síðasta skallann.
Við munum sakna Dúa og minnast
hans sem góðs félaga og vinar. Við
sendum eftirlifandi eiginkonu hans,
börnum og barnabörnum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning hans.
Skallboltafélagar.
!! ""!
# $% &&"& ''
(&&"& '')
!
" $%&'& ( &)
! " $ %! &&$%'! $% % ' ('
& $ &)*' ! &&$
$ ' +* &)*' ('
$%,' & %'! ! &&$
' & (' '-$ ! % ' ! &&$
)'
. ' ! &&$
' ' ('
' ' ('
( ' )/.'
!
"
"
#
! "# $%& "&'"
$ & ! "#'" ! ! "##
() ! "#'" * + , , #
$) & ! "## !%" -& '"
.& ! "## &# /"'"
0& "&0 " ' 0& "&0& "&0 "