Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 06.01.2001, Blaðsíða 58
DAGBÓK 58 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Skipin Reykjavíkurhöfn: Leonid Utesov kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Ýmir, Rán og Hamra- svanur fóru í gær. Ocean Tiger kom í gær. Fréttir Stuðningsfundir fyrr- verandi reykingafólks. Fólk sem sótt hefur námskeið gegn reyk- ingum í Heilsustofnun NLFÍ Hveragerði, fundur í Gerðubergi á þriðjud. kl. 17.30. Frímerki. Kristniboðs- sambandið þiggur með þökkum alls konar not- uð frímerki, innlend og útlend, ný og gömul, klippt af með spássíu í kring eða umslagið í heilu lagi. Útlend smá- mynt kemur einnig að notum. Móttaka í húsi KFUM og K, Holtavegi 28, 104 Reykjavík, og hjá Jóni Oddgeiri Guð- mundssyni, Glerárgötu 1, Akureyri. Mannamót Árskógar 4. Dans- kennsla hefst þriðju- daginn 9. Janúar kl. 9.30, TAI CHI-leikfimin byrjar eftir jólafrí föstu- daginn 12 janúar kl. 11. Félagsstarf aldraðra í Garðabæ. Spilaði í Kirkjulundi 9. janúar kl. 13.30. Spilað á Álftanesi 11 janúar kl. 19.30. Rútuferðir samkvæmt venju. Innritun á nám- skeið og í vinnuhópa í Kirkjulundi 12. janúar kl. 13, leirlist, glerlist, málun, keramik, tré- skurður, bútasaumur, spænska, tölvu- námskeið og leikfimi. Félag eldri borgara í Hafnarfirði, Hraunseli, Reykjavíkurvegi 50. Á mánudag verður félags- vist kl. 13:30. Púttæfing í Bæjarútgerðinni mánudag kl. 10–12, tréútskurður í Flens- borg kl. 13. Á þriðjudag verður bridge og saum- ar. Á miðvikudag og föstudag verður mynd- mennt. Getum bætt við örfáum í myndmennt á miðvikudögum. Félag eldri borgara í Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan er opin virka daga frá kl. 10–13. Matur í hádeg- inu. Mánudagur: Brids kl. 13 allir eldri borg- arar velkomnir. Þriðju- dagur: Skák kl. 13.30. Göngu-Hrólfar fara í létta göngu frá Ásgarði Glæsibæ kl. 10 á mið- vikudag. Baldvin Tryggvason verður til viðtals um fjármál og leiðbeiningar um þau mál á skrifstofu FEB fimmtudaginn 11. janú- ar kl. 11–12. Panta þarf tíma. Námskeið í fram- sögn hefst mánudaginn 29. janúar leiðbeinandi Bjarni Ingvarsson skráning hafin á skrif- stofu FEB. Silfurlínan opin á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 10–12. Ath. Opnunar- tíma skrifstofu FEB er frá kl. 10–16. Upplýs- ingar í síma 588-2111. Gerðuberg, félagsstarf. Á mánudag 8. janúar kl. 916.30 vinnustofur opn- ar, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 14 kóræfing, kl. 15.30 danskennsla hjá Sigvalda, veitingar í kaffihúsi Gerðubergs. Þriðjudaginn 9. janúar, kl. 9–16.30 vinnustofur opnar m.a perlusuamur, kl. 13. boccia. Allar upp- lýsinar um starfsemina á staðnum og í síma 575- 7720. Gigtarfélagið. Hóp- þjálfun Gigtarfélagsins fer af stað aftur eftir jólafrí mánudaginn 8. janúar. Hádegisleikfimi, létt leikfimi, bakleikfimi karla, vefjagigtarhópar, jóga, vatnsþjálfun. Leikfimi fyrir gigtar- fólk og aðra fullorðna sem vilja góða, styrkj- andi og liðkandi leikfimi í rólegu umhverfi. Einn ókeypis prufutími fyrir þá sem vilja. Nánari upplýsingar á skrifstofu GÍ, s. 530-3600. Kvenfélag Bústaða- sóknar fellir niður fund- inn sem átti að vera mánudaginn 8. janúar af óviðráðan- legum ástæðum. Lífeyrisdeild Landsam- bands lögreglumanna. Sunnudagsfundur deild- arinnar verður á morg- un sunnudaginn 7. janú- ar kl. 10, í Félagsheimili LR að Brautarholti 30. Félagar fjölmennið. Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúkl- inga fást á eftirtöldum stöðum á Norðurlandi: Á Blönduósi: blómabúð- in Bæjarblómið, Húna- braut 4, s. 452-4643. Á Sauðárkróki: í Blóma- og gjafabúðinni, Hóla- vegi 22, s. 453-5253. Á Hofsósi: Íslandspóstur hf., s. 453-7300, Strax, matvöruverslun, Suð- urgötu 2–4, s. 467-1201. Á Ólafsfirði: í Blóma- skúrnum, Kirkjuvegi 14b, s. 466-2700 og hjá Hafdísi Kristjáns- dóttur, Ólafsvegi 30, s. 466-2260. Á Dalvík: í Blómabúðinni Ilex, Hafnarbraut 7, s. 466- 1212 og hjá Valgerði Guðmundsdóttur, Hjarðarslóð 4e, s. 466- 1490. Á Akureyri: í Bókabúð Jónasar, Hafnarstræti 108, s. 462-2685, í bókabúðinni Möppudýrinu, Sunnu- hlíð 12c, s. 462-6368, Pennanum Bókvali, Hafnarstræti 91–93, s. 461-5050 og í blómabúð- inni Akri, Kaupvangi, Mýrarvegi, s. 462-4800. Á Húsavík: í Blómabúð- inni Tamara, Garð- arsbraut 62, s. 464-1565, í Bókaverslun Þórarins Stefánssonar, s. 464- 1234 og hjá Skúla Jóns- syni, Reykjaheiðarvegi 2, s. 464-1178. Á Laug- um í Reykjadal: í Bóka- verslun Rannveigar H. Ólafsd., s. 464-3191. Styrktarfélag krabba- meinssjúkra barna. Minningarkort eru af- greidd í síma 588-7555 og 588-7559 á skrif- stofutíma. Gíró- og kreditkortaþjónusta. Samtök lungnasjúk- linga. Minningarkort eru afgreidd á skrif- stofu félagsins í Suð- urgötu 10 (bakhúsi) 2. hæð, s. 552-2154. Skrif- stofan er opin miðvikud. og föstud. kl. 16–18 en utan skrifstofutíma er símsvari. Einnig er hægt að hringja í síma 861-6880 og 586-1088. Gíró- og kredit- kortaþjónusta. MS-félag Íslands. Minn- ingarkort MS-félagsins eru afgreidd á Sléttu- vegi 5, Rvk, og í síma 568-8620 og myndrita s. 568-8688. FAAS, Félag aðstand- enda alzheimer- sjúklinga. Minning- arkort eru afgreidd alla daga í s. 533-1088 eða í bréfs. 533-1086. Heilavernd. Minning- arkort fást á eft- irtöldum stöðum: í síma 588- 9220 (gíró) Holt- sapóteki, Vesturbæj- arapóteki, Hafnarfjarð- arapóteki, Keflavíkurapóteki og hjá Gunnhildi Elíasdótt- ur, Ísafirði. Parkinsonsamtökin. Minningarkort Park- insonsamtakanna á Ís- landi eru afgreidd í síma 552-4440 og hjá Áslaugu í síma 552-7417 og hjá Nínu í síma 564-5304. Minningarkort Sam- taka sykursjúkra fást á skrifstofu samtakanna Tryggvagötu 26, Reykjavík. Opið virka daga frá kl. 9–13, s. 562- 5605, bréfsími 562-5715. Krabbameinsfélagið. Minningarkort félags- ins eru afgreidd í síma 540 1990 og á skrifstof- unni í Skógarhlíð 8. Hægt er að senda upp- lýsingar í tölvupósti (minning@krabb.is). Minningarkort Sjálfs- bjargar, félags fatlaðra á höfuðborgarsvæðinu, eru afgreidd í síma 551- 7868 á skrifstofutíma og í öllum helstu apótek- um. Gíró-og kred- itkortagreiðslur. Minningarkort For- eldra- og vinafélags Kópavogshælis fást á skrifstofu end- urhæfingadeildar Land- spítalans Kópavogi (fyrrverandi Kópavogs- hæli), síma 560-2700 og skrifstofu Styrkt- arfélags vangefinna, s. 551-5941 gegn heims- endingu gíróseðils. Félag MND-sjúklinga selur minningarkort á skrifstofu félagsins á Norðurbraut 41, Hafn- arfirði. Hægt er að hringja í síma 565-5727. Allur ágóði rennur til starfsemi félagsins. Landssamtökin Þroskahjálp. Minningarsjóður Jó- hanns Guðmundssonar læknis. Tekið á móti minningargjöfum í síma 588-9390. Í dag er laugadagur 6. janúar, 6. dagur ársins 2001. Þrettándinn. Orð dagsins: Ég hefi elskað yður, eins og faðirinn hefur elskað mig. Verið stöðugir í elsku minni. (Jóh. 15, 9.) MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið. Víkverji skrifar... ÞESSA dagana eru útsölur aðhefjast og í vikunni auglýsti ein verslun í borginni allt að 80% afslátt. Góður vinur Víkjverja var ákveðinn í að eyða ekki í vitleysu og óþarfa á út- sölunum í ár. En hann stóðst ekki 80% afsláttinn enda sárvantaði hann vörur sem hann vissi að fengjust í þessari búð. Þegar hann mætti á staðinn kann- aðist enginn í versluninni við að vörur væru á meiri afslætti en 40% og afgreiðslumaðurinn sagði meira að segja við vininn að honum hefði auðsjáanlega bara misheyrst. Vinurinn sem hafði hlustað á aug- lýsinguna í útvarpi var ekki það öruggur með heyrnina að hann kynni við að andmæla afgreiðslumanninum og fór að skoða sig um í búðinni. Honum varð hins vegar skemmt þegar önnur kona kom inn í versl- unina og spurði um það sama, vör- urnar sem væru seldar með 80% af- slætti. Þegar afgreiðslumaðurinn sagði henni að þetta væri misskiln- ingur hjá henni lét hún ekki bjóða sér þá skýringu og sagðist skýrt og greinilega hafa heyrt í útvarpinu að verslunin byði vörur á allt að 80% af- slætti. Það borgar sig ekki að lokka við- skiptavininn inn á fölskum forsend- um sagði þessi vinur Víkverja og klykkti út með að segja að héðan í frá færi hann aldrei aftur í þessa búð. x x x ANNAR vinur Víkverja, sem býr íLondon en kom til Íslands í jólafrí, skrapp í kvikmyndahús um jólin. Þegar myndin var hálfnuð voru ljósin kveikt og gert hlé á sýningu myndarinnar. Hann sagði þetta fyr- irkomulag algjörlega skemma fyrir uppbyggingu myndarinnar og að ein- mitt þegar hámarki spennu væri náð í myndinni væru ljósin kveikt og þar- með væri stemmningin eyðilögð. Vinurinn sagðist hafa farið í kvik- myndahús víða um heim en aldrei lent í því að þurfa að standa upp frá miðri mynd til að kaupa sér nokkrar karamellur og kókglas. Hann sagðist vera efins um að leikstjórar kvik- mynda yrðu ánægðir með þá vitn- eskju að myndir þeirra væru brotnar upp með þessum hætti. x x x VÍKVERJI lét sóla fyrir sig skóum daginn sem hann hafði keypt fyrir nokkrum árum. Skórnir voru vandaðir, yfirleðrið heilt og eng- inn saumur farinn að gefa sig. Sóln- ingin kostaði 2.900 krónur. Víkverji keypti skóna á útsölu á sínum tíma og borgaði fyrir þá svipaða upphæð eða um 3.000 krónur. Nýir kosta sam- bærilegir skór um tíu þúsund krónur. Hann velti fyrir sér hvort það borg- aði sig að fá nýja sóla. Það sem gerði útslagið er að annað forláta skópar sem hann eignaðist nýlega er með þeim annmörkum að hann fær hæl- særi af þeim. Gömlu skórnir eru hins vegar tilgengnir og hafa lagað sig að fótum kunningjans og ef hann fær þriggja ára endingu úr sólunum þyk- ist hann hafa gert nokkuð góð kaup. Í kringum jólin skapast jafnan umræða (nöldur) um það að við ættum að íhuga hinn sanna boðskap jólanna og því fylgir jafnframt ein- hver saga um Jesú og hvernig hann fæddist í fjár- húsi og svo framvegis. Á jólunum höldum við upp á afmæli Jesú, ekki satt? Fyrir utan það að við höf- um enga hugmynd um hve- nær Jesú fæddist (vitum varla hvort hann fæddist). Hvers vegna er þá jólunum plantað í lok desember? Af því að út um nær allan heim (þá er ég að tala um norður- hlutann) hefur þessi tími ársins verið fagnaðarefni. Við erum að fagna því að daginn er farið að lengja. Jól eru eins og allir vita upphaflega nafn á heiðinni hátíð, blóti, heppin erum við að þetta heitir ekki Kristmessa eða eitthvað álíka. Ekki láta prestana koma inn í ykkur einhverju jes- úsamviskubiti á jólunum, enda kom þessi hátíð löngu á undan Jesú og kirkjunnar menn eru bara að reyna að eigna sér þessa hátíð. Til- gangur jólanna er að skemmta sér, fagna rísandi sól og láta sér líða vel. Endilega verið góð við náungann líka en ekki fá samviskubit þótt Jesú gleymist, hann kemur mál- inu nefnilega ekkert við. Hugsandi maður. Framlínusveit Morgunblaðsins Í dag, 3. janúar 2001, má sjá á forsíðu Morgunblaðs- ins fyrirsögnina: Enn eitt karlavígið fellur. Í grein sem eftir fylgir er sagt frá því að framlínusveitir þýska hersins hafi verið opnaðar konum. Á öðrum stað í blaðinu er greint frá nýju skipulagi ritstjórnar Morgunblaðsins. Athygli vekur að aðeins ein kona fær að vera með í þeirri „framlínusveit“ og auðvitað ekki mjög framarlega (eða ofarlega). Morgunblaðið, góðan daginn! Eruð þið nokkuð aldavilltir eða eru bara svona fáar hæfar kon- ur sem starfa hjá ykkur? Eygló Ingadóttir. Tapað/fundið Myndavél tapaðist SILFURLITUÐ Olympus myndavél tapaðist í vest- urbæ Reykjavíkur um kvöldmatarleytið miðviku- daginn 28. desember síð- astliðinn. Líklega hefur myndavélin dottið úr bíl á bílastæði annaðhvort við Kaplaskjólsveginn eða Ánanaust. Í vélinni var næstum því fullátekin filma, sem saknað er. Skil- vís finnandi vinsamlegast hafi samband við Svein- björn í síma 898-0318 eða 562-0730. Fundarlaunum heitið. Broshúfa tapaðist LAUGARDAGINN 29. nóvember sl. fór ég með þriggja ára tvíbura dóttur minnar í strætisvagn, leið 4, og fór með honum niður á torg. Þar fórum við úr vagninum. Þau voru með broshúfur og tók drengur- inn af sér húfuna í vagnin- um því honum var svo heitt. Húfuna hefur hann misst í vagninum og tók ég ekki eftir því fyrr en um seinan. Þessi húfa er svolítið öðru- vísi en aðrar broshúfur. Hún er heimaprjónuð, kassalöguð með blágræn- um rúllukanti og stórum eyrnaskjólum og gler blómarósum, ekki perlum, eins og aðrar broshúfur. Nú er vetur framundan og húfunnar sárt saknað. Það eru tilmæli mín að sá eða sú, sem fann húfuna, skili henni í miðasölu SVR á Hlemmi eða hringi í síma 895-6396 eða 568-9628. Svört leðurkápa tekin í misgripum Svört leðurkápa var tekin í misgripum á veitingahús- inu Rex, föstudaginn 29. desember sl. Kápunnar er sárt saknað í kuldanum! Sá sem hefur óvart gripið hana með sér er vinsamleg- ast beðinn um að hafa samband við eigandann í síma 895 6575. Dýrahald Snúður er týndur KISI, sem er týnd og heitir Snúður, er 4 ára gamalt fress. Hann fór frá Seilu- granda 4 á jóladag og hefur ekki sést síðan. Hann þekk- ir sig ekki í vesturbænum þar sem að hann býr í Graf- arvogi. Snúður sem er mjög blíður en samt dálítið var um sig. Hann er að mestu svartur en hvítur frá enni, í nokkurs konar þríhyrning niður með augum, kinnar eru svartar en bringan og maginn hvít. Hann er með hvíta sokka á loppunum og hvíta hlykkjótta rönd á framlöppum. Hárin á hægra fæti eru nýrri þar sem að hann var saumaður þar fyrir stuttu og er því langt ör undir hárunum. Það er aðeins klippt inn í toppinn á hægra eyranu á honum. Hann hefur númer í eyra R7290 og skráður hjá Dýraspítalanum í Víðidal og í Garðabæ. Þegar hann týndist var hann með lillaða hálsól og merktur móður minni, Guðlaugu, Seilu- granda 4, sími 561-1272 eða vs. 551-3397. Sambó er týndur SAMBÓ er 13 ára fress, svartur og ómerktur. Hann hvarf frá Selbrekku 17 í Kópavogi 27. desember sl. Ef einhver hefur orðið hans var eða veit um ferðir hans vinsamlega hafið samband í síma 564-1936. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 frá mánudegi til föstudags Um hinn sanna tilgang jólanna 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 LÁRÉTT: 1 kvöldmessu, 8 landræk, 9 nothæfan, 10 elska, 11 eldstæði, 13 hagnaður, 15 dýr, 18 nægtir, 21 leðja, 22 borguðu, 23 klampinn, 24 eftirtekja. LÓÐRÉTT: 2 hérað, 3 smáaldan, 4 hugsa um, 5 veiðarfærið, 6 kubba sundur, 7 snjór, 12 tangi, 14 leturtákn, 15 tónverk, 16 skjall, 17 kurf, 18 korgur, 19 stirðu, 20 þyngdareining. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 grett, 4 fálát, 7 rífur, 8 risum, 9 næm, 11 aurs, 13 eðla, 14 ósinn, 15 hjal, 17 næpa, 20 ugg, 22 pólar, 23 ritin, 24 romsa, 25 tánum. Lóðrétt: 1 gorta, 2 erfir, 3 turn, 4 form, 5 lasið, 6 tomma, 10 æsing, 12 sól, 13 enn, 15 hopar, 16 aulum, 18 æstan, 19 afnem, 20 urta, 21 grút. K r o s s g á t a
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.