Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 12

Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ NÁMSMENN við Háskóla Ís- lands standa mjög misjafnlega að vígi gagnvart kostnaði fyrir daggæslu fyrir börn sín yngri en tveggja ára eftir því hvar á höfuðborgarsvæðinu þeir eru búsettir. Getur munað tæpum 20 þúsund krónum á mánuði á leikskólagjaldi sem greitt er vegna barna á leikskólanum Sólgarði, allt eftir því í hvaða sveitarfélagi barnið er skráð til heimilis. Félagsstofnun stúdenta rekur leikskólann Sólgarð fyr- ir börn námsmanna HÍ á aldr- inum 2–6 ára. Þar eru 30 börn, 26 búsett í Reykjavík, tvö í Kópavogi, eitt í Garðabæ og eitt er með lögheimili á Hvammstanga. Séu foreldrar barns á leik- skólanum í sambúð, annað þeirra í námi en hitt í vinnu og fjölskyldan búi í Reykjavík, eru greiddar rúmlega 32 þús- und krónur á mánuði fyrir heilsdagspláss á Sólgarði. Gjaldið hækkar um 20 þús. við flutning Ef fjölskyldan flytur sig til Kópavogs hækka gjöldin á Sólgarði í um 34 þúsund krón- ur á mánuði en ef flust er til Garðabæjar eða Hafnarfjarð- ar þarf hins vegar að greiða rúmlega 52 þúsund krónur á mánuði fyrir að hafa barnið á leikskólanum Sólgarði. Ástæðan er sú, að sögn Sól- veigar Gunnarsdóttur leik- skólastjóra, að síðastnefndu sveitarfélögin tvö taka engan þátt í kostnaði við daggæslu barna undir tveggja ára aldri. Morgunblaðið ræddi við föður telpu á öðru ári, en fjöl- skyldan fluttist nýlega úr Reykjavík í Garðabæ. Móðirin er í námi en faðirinn í starfi. Fyrir flutninginn greiddi fjöl- skyldan um 32 þúsund krónur fyrir vistina á Sólgarði en eftir flutninginn var tilkynnt að nið- urgreiðslum yrði hætt og gjaldið hækkað í um 52 þús- und krónur. Faðirinn sagði að Garðabær ræki enga leikskóla fyrir börn undir tveggja ára aldri og tæki engan þátt í kostnaði við dag- vist barna á þeim aldri. Börnin á Sólgarði fá hins vegar úthlutað plássi að því skilyrði einu uppfylltu að for- eldrar þeirra séu námsmenn í Háskóla Íslands, án tillits til hvar þeir eru búsettir. Faðirinn sagðist hafa rætt málið við Ásdísi Höllu Braga- dóttur, bæjarstjóra í Garða- bæ. „Hún hafði mikinn skiln- ing á þessu máli og Garðabær er búinn að taka ákvörðun um að greiða fyrir yngri börn en það verður ekki gert fyrr en eftir eitt ár.“ „Mér finnst þetta ansi súrt,“ sagði faðirinn. „Ég er nýflutt- ur í Garðabæ og bjóst ekki við að það hefði veruleg áhrif á fjölskylduna að flytja í ná- grannasveitarfélag Reykja- víkur. Ég hélt í fáfræði minni að þjónustan væri sambærileg og menn gerðu jafn vel við námsmenn og barnafólk hvort sem það er búsett í Reykjavík, Garðabæ eða hvar sem er. Garðabær virðist ekki hugsa eins vel um þennan hóp í dag og Reykjavíkurborg gerir en ætlar sér hins vegar að gera það í framtíðinni. Það er aftur á móti nokkuð sem mér og öðrum í minni stöðu í dag gagnast lítið,“ sagði faðirinn. Leit á höfuðborgarsvæðið sem eitt svæði „Þegar ég leitaði að hús- næði hugsaði ég ekki út í hvort það ætti að vera í Kópavogi, Reykjavík eða Garðabæ; það skipti ekki máli. Ég bjóst við að þjónustan væri svipuð. Þess vegna er ég fyrst og fremst svekktur út í sjálfan mig fyrir að hafa ekki skoðað þessa hluti og ég er líka svekktur út í sveitarfélagið að vera ekki fyr- ir löngu farið að taka á þessum málum. Ef það vill halda í ungt fólk meðan það er í námi og halda því innan sveitarfélags- ins hefði maður haldið að það vildi gera jafn vel og ná- grannasveitarfélögin. Ég hef litið á höfuðborgarsvæðið sem eitt svæði og þótt ég hafi gert mér grein fyrir því að reglurn- ar gætu verið eitthvað ólíkar datt mér aldrei í hug að það gæti munað 20 þúsund krón- um á mánuði.“ Sólveig Gunnarsdóttir, leik- skólastjóri á Sólgarði, sagði að Reykjavík tæki meiri þátt en önnur sveitarfélög í leikskóla- kostnaði barna undir tveggja ára aldri. Kópavogur greiddi niður litlu minna en Reykjavík en Garðabær og Hafnarfjörð- ur tækju engan þátt í kostn- aðinum. Hún sagðist nýlega hafa lent í því að námsmenn úr Hafnarfirði áttu rétt á leik- skólaplássi fyrir barn sitt á Sólgarði en þegar þeim var bent á að þá fengist engin nið- urgreiðsla hefðu þau hætt við að nýta plássið. Engin börn úr Mosfellsbæ, Bessastaðahreppi og Seltjarnarnesi eru hins vegar á leikskólanum og hafði Sólveig því ekki á takteinum upplýsingar um hvernig staðið væri að málum á þeim bæjum. Hins vegar sagði hún að á Sólgarði væri eitt barn með lögheimili á Hvammstanga. Þar væru engar reglur í gildi um greiðslu dagvistarkostnað- ar barna undir tveggja ára aldri en sveitarstjórnin hefði tekið mál þess barns til skoð- unar og ákveðið að taka þátt í leikskólagjaldinu með sama hætti og gert yrði ef barnið byggi í Reykjavík. Í því hefði þó ekki falist ný regla heldur yrði hvert mál skoðað fyrir sig. Kemur í ljós þegar sótt er um endurgreiðslu Sólgarður er, eins og fyrr sagði, rekinn af Félagsstofnun stúdenta við Háskóla Íslands. Guðrún Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Félagsstofnun- ar, sagði í samtali við Morg- unblaðið, að afstaða þeirra sveitarfélaga, sem engan þátt taka í greiðslu kostnaðar vegna yngstu barnanna, væri mjög bagaleg. Hún sagði að sama staða hefði einu sinni áður komið upp vegna barns úr Garðabæ. „Fólk áttar sig ekki á þessum reglum fyrr en það sækir um endurgreiðsluna. Þá kemur þetta í ljós,“ sagði Guðrún. Mismunandi leikskólakostnaður námsmanna eftir búsetu á höfuðborgarsvæðinu Munar allt að 20 þús. kr. milli sveitarfélaga Höfuðborgarsvæðið ORKUVEITA Reykjavík- ur hyggst ekki fara út í sértækar aðgerðir fyrir Elliðaárnar, en í gær kom fram hjá Bjarna Ómari Ragnarssyni, formanni Stangaveiðifélags Reykja- víkur, í Morgunblaðinu að hann teldi að í tillögur starfshóps um lax- og sil- ungsár í Reykjavík vant- aði sértækar aðgerðir fyr- ir Elliðaárnar, í samræmi við niðurstöður rannsókna sem kynntar voru í fyrra. Árnar ættu í vanda, sem taka yrði á ef ekki ætti illa að fara. Að sögn Guðjóns Magn- ússonar, á skrifstofu for- stjóra Orkuveitu Reykja- víkur, hefur Orkuveitan haft Veiðimálastofnun sem ráðgjafa í þessum málum í nokkuð langan tíma og því farið eftir þeim ráðleggingum sem menn þar á bæ hafa gefið. Nú sé verið að ljúka ákveðnu rannsóknarferli, og ekki sé búið að taka ákvörðun um framhaldið. „Við teljum að stöðin hafi ekki átt neinn þátt í því hruni sem varð síðast- liðin 2–3 ár, heldur séu það aðstæður í ánni, í fiskinum og í hafinu,“ sagði Guðjón. „Það hefur verið mjög erfitt fyrir Orkuveituna að taka á málum varðandi affall í árnar, vegna þess að það er í höndum borg- arverkfræðings. En ég veit, að menn þar á bæ hafa verið að vinna að skoðun þeirra mála. Eins höfum við bent á nauðsyn ýtarlegri rann- sókna í hafinu.“ „Annars hefur Orku- veitan nú gert töluvert fyrir Elliðaárnar, ef grannt er skoðað,“ bætti Guðjón við. Vantar erfðarannsóknir „Það er búið að minnka álagið í þeim, bæði stytta veiðitímabilið og fækka stöngum, og við höfum síðastliðin tvö ár aukið vatnið í ánum og skert með því orkuframleiðsl- una, sem er ákveðinn fórnarkostnaður. Þá höfum við tekið upp vöktun á vatnsinnihaldinu og það er búið að gera botndýrarannsóknir. Það eina sem við í raun eigum eftir, er að gera erfðafræðilegar rannsókn- ir; laxastofninn hefur úr- kynjast svo mikið af haf- beitinni að við þurfum að skoða það hvort einhverj- ar erfðafræðilegar skýr- ingar séu á þessu slæma ástandi hans. En við erum ekki búnir að taka ákvörðun um þær rann- sóknir. Samt sem áður erum við ánægðir með síðast- liðið ár; veiðin jókst um 14% á náttúrulega laxin- um, meðan hún gekk nið- ur annars staðar, í land- inu öllu 15–20%. Það er nú sólargeislinn í myrkr- inu. En við bíðum eftir því að það verði tekin ákvörð- un um hreinsun Elliða- vogsins, sem er mengað- ur, og lítum svo á að þar þurfi að gera áætlun og hún tengist holræsamál- um borgarinnar.“ Sértækar að- gerðir vegna Elliðaáa ekki á döfinni Elliðaár ÍSKLIFRARAR þurfa ekki lengur að keyra óraveg til að stunda það áhugamál sitt, því nú er búið að koma upp æfingaaðstöðu í 13 metra háum súrheysturni við gamla Gufunesbæinn í Gufu- nesi. Bærinn hefur fengið nýtt hlutverk og þar er nú til húsa Frístundamiðstöðin Gufunesbær, en hún er rekin af Íþrótta- og tómstundaráði. Morgunblaðið hafði samb- and við Atla Stein Árnason, sem er forstöðumaður Frí- stundamiðstöðvarinnar, og spurði hann út í hina nýju æf- ingaaðstöðu, sem er gerð eft- ir erlendri fyrirmynd. „Við byrjuðum með þetta fyrir um mánuði, í samstarfi við Íslenska alpaklúbbinn,“ sagði Atli. „Þetta er nýtt hjá okkur, í fyrsta skipti sem er búinn til ísfoss innan borg- armarkanna til að stunda ís- klifur. Það virðist vera mjög mikill áhugi fyrir þessu, en tilgangurinn er sá, að allir þeir sem stunda þessa íþrótt geti skroppið hingað eftir vinnu og tekið klifur í þess að vera að fara miklar vega- lengdir upp um fjöll og firn- indi til þess, eins og menn hafa þurft að gera hingað til, með ærnum tilkostnaði. Þetta er því í raun gert fyrir alpaklúbbinn, en við hyggj- umst einnig notfæra okkur þetta í starfi okkar með ung- lingum og eldri. Þó eru sér- stakar aldurstakmarkanir á þessu, enginn yngri en 18 ára fær að klifra, nema með sérstöku leyfi frá okkur og reyndum aðila. Það er al- gjört skilyrði. Og enginn fer heldur í þetta, nema hann sé vanur ísklifri, eða þá hafi einhvern reyndan aðila með sér.“ Ótrúlega líkar aðstæður og úti í náttúrunni Hallgrímur Magnússon, sem er virkur félagi í alpa- klúbbnum og mikill ísklifr- ari, var spurður um það hvernig þessi tilbúna aðstaða væri í samanburði við það sem gerðist í klettaveggjum. „Þetta er náttúrulega manngerður veggur, ef svo má segja, en ís er alltaf ís, þannig að þarna fær maður ótrúlega líkar aðstæður og úti í ekrunni,“ sagði Hall- grímur. „Það er sjaldan í náttúrulegu klifri sem menn fá jafn langan lóðréttan kafla og fæst þarna. Og þótt erfiðleikarnir verði aldrei þeir sömu og úti í nátt- úrunni, þar sem menn geta fengið yfirhangandi klett, sem verður að þræða fyrir, o.s.frv., þá er þetta sem slíkt mjög góð æfingaaðstaða. Ég vona að við getum komið á ísklifurkeppni þarna áður en vetrinum lýkur.“ Ljósmynd/Atli Steinn Árnason Það er sjaldan sem menn fá jafn langan lóðréttan kafla í náttúrulegu klifri og fæst þarna. Ljósmynd/Atli Steinn Árnason Ísklifrarar búa sig undir að leggja til uppgöngu á 13 metra háan súrheysturninn. Gamall súrheysturn verður æfingastaður ísklifrara Grafarvogur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.