Morgunblaðið - 06.01.2001, Side 14
AKUREYRI
14 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur Skinnaiðnaðar hf. verður haldinn í kaffistofu
félagsins á Gleráreyrum, Akureyri, mánudaginn
16. janúar 2001 og hefst fundurinn kl. 16.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt gr. 4.04 í samþykktum
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum félagsins.
Tillaga til breytingar á gr. 2.01 um heimild stjórnar til að auka
hlutafé félagsins í allt að kr. 200.000.000,- með útgáfu nýrra hluta og að víkja
frá lögboðnum áskriftarrétti hluthafa.
Tillaga til breytingar á gr. 2.01 er kveður á um vernd réttinda
eiganda skuldabréfs með breytirétti í hlutafé við hækkun hlutafjár í félaginu
með útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
3. Heimild til stjórnar um kaup á eigin hlutum.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja
frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Skinnaiðnaðar hf.
Aðalfundur
SKJÁVARP, Gagnvirk miðlun og
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
hafa ákveðið að standa sameiginlega
að uppbyggingu upplýsinga- og af-
þreyingarkerfis í húsakynnum FSA
en viljayfirlýsing þess efnis var und-
irrituð af forsvarsmönnum þeirra í
gær. FSA verður fyrsta sjúkrahúsið í
landinu til að bjóða upp á þjónustu af
þessu tagi, en í henni felst staðbund-
ið upplýsingakerfi sem miðlar upp-
lýsingum til starfsmanna og við-
skiptavina sjúkrahússins og stafræn
sjónvarpsþjónusta sem veitir aðgang
að margskonar afþreyingu og þjón-
ustu í gagnvirku sjónvarpi.
Innanhússupplýsingar og
fjölbreytt afþreying
Halldór Jónsson, forstjóri FSA,
sagði að með þessu væri bryddað upp
á spennandi nýjungum í þjónustu
sjúkrahússins. Byggt verður upp
staðbundið innanhússkerfi í öllum
byggingum FSA þar sem miðlað
verður um sjónvarpsskjái margvís-
legum upplýsingum sem varða
starfsmenn og viðskiptavini, s.s. um
fundi, afgreiðslutíma, viðtalstíma
lækna, sérfræðiaðstoð og fleira sem
að gagni má koma. Einnig verður
komið á framfæri fréttum og upplýs-
ingum og eins mun SkjáVarp miðla
upplýsingum og auglýsingum um
það sem um er að vera á Akureyri.
Þá verða sett upp á sjúkrahúsinu
sjónvarpstæki þar sem viðskiptavin-
ir þess geta nálgast stafræna sjón-
varpsþjónustu Gagnvirkrar miðlun-
ar sér til afþreyingar meðan á dvöl
þeirra stendur þar. Þar má nefna að-
gang að sjónvarpsstöðvum, mynd-
efnaveitu, Netinu, tölvupósti gegn-
um sjónvarp, rafrænni banka-
þjónustu, verslun og fleira. Það gerir
fólki kleift að sinna margs konar er-
indum þótt aðgangur að tölvu sé ekki
fyrir hendi.
Upplýsinga- og afþreyingarkerfi
það sem nú verður ráðist í að byggja
upp er það fyrsta sinnar tegundar á
heilbrigðisstofnun hér á landi og með
því fer FSA inn á nýjar brautir varð-
andi þjónustu við starfsmenn og við-
skiptavini. Stefnt er að því að upplýs-
ingakerfi SkjáVarps verði tilbúið til
notkunar í næsta mánuði, febrúar, og
Gagnvirk miðlun geti boðið stafræna
sjónvarpsþjónustu um mitt árið. Af-
not af SkjáVarpi-FSA verður án end-
urgjalds en að einhverju leyti verður
aðgangur að afþreyingarkerfinu
gegn greiðslu þar sem notandinn vel-
ur sjálfur þá þjónustu sem hann ósk-
ar eftir.
Elva Ýr Gylfadóttir hjá Gagn-
virkri miðlun sagði að notendur gætu
pantað kvikmyndir eða sjónvarps-
þætti að vild, leikið tónlist eða leiki
auk þess sem þeir geta nýtt sér Netið
og tölvupóst gegnum kerfið. Hún
sagði að þegar hefðu verið gerðir-
samningar við sjónvarpsstöðvar um
notkun þátta og eins varðandi kvik-
myndir.
Ekki viðkvæmar
heilsufarsupplýsingar
Fram kom í máli Ingimars Einars-
sonar, skrifstofustjóra heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins, að
verkefnið snerist um uppbyggingu
innra upplýsingakerfis sjúkrahúss-
ins, en ekki væri um að ræða meðferð
á viðkvæmum heilsufarsupplýsing-
um. Ingimar bar þau skilaboð frá
ráðherra, Ingibjörgu Pálmadóttur,
að mikilvægt væri að vinna nákvæm-
ar verk- og kostnaðaráætlanir áður
en hafist yrði handa. Reynslan hefði
því miður sýnt að verkefni á sviði
upplýsingamála færu oft úr böndun-
um í tímalengd og kostnaði. Daði
Friðriksson, framkvæmdastjóri
SkjáVarps, sagði að fyrirtækin þrjú
bæru saman kostnað við uppbygg-
ingu kerfisins, en ekki væri um veru-
legar upphæðir að ræða.
SkjáVarp, Gagnvirk miðlun og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
Upplýsinga- og afþreyingar-
kerfi byggt upp innanhúss
Morgunblaðið/Kristján
Halldór Jónsson forstjóri FSA kynnir viljayfirlýsingu um samstarf um
uppbyggingu upplýsinga- og afþreyingarkerfis í húsakynnum spítalans.
Ingimar Einarsson frá heilbrigðsráðuneytinu, Daði Friðriksson fram-
kvæmdastjóri Skjávarps, Halldór og Elva Ýr Gylfadóttir frá Gagnvirkri
miðlun.
NÝR sýslumaður tekur til starfa í
Ólafsfirði í byrjun apríl en frá því
haustið 1999 hefur sýslumaðurinn á
Akureyri gegnt embættinu.
Ástæða þess að embætti sýslu-
manns í Ólafsfirði verður mannað að
nýju er fyrst og fremst til komin
vegna óska heimamanna um að
leggja ekki niður embættið á staðn-
um að sögn Björns Friðfinnssonar
ráðuneytisstjóra í dómsmálaráðu-
neytinu.
Fram kom í samtali við Björn í
blaðinu á fimmtudag að ekki hafi ver-
ið stefnan að leggja embættið niður
en sú tímabundna tilraun sem gerð
var með þjónustu frá Akureyri hafi
gengið vel.
„Ólafsfirðingar voru óánægðir
með að missa sýslumanninn,“ sagði
Björn.
Tveir starfsmenn hafa verið að
störfum á sýslumannsskrifstofunni í
Ólafsfirði og fulltrúar sýslumanns á
Akureyri hafa komið þar einu sinni í
viku.
Hvað varðar kostnað sagði Björn
að með því fyrirkomulagi sem verið
hefur frá því haustið 1999 næmi
sparnaðurinn launum sýslumanns en
á móti kæmi einhver kostnaður við
ferðir fulltrúanna milli staða.
Ólafsfirðingar
ánægðir
„Við fögnum þessari ákvörðun
mjög,“ sagði Ásgeir Logi Ásgeirsson,
bæjarstjóri í Ólafsfirði, en hann sagði
mikilvægt fyrir bæjarfélag eins og
Ólafsfjörð að missa ekki frá sér op-
inber störf. Hann sagði Ólafsfirðinga
ekki hafa verið óánægða með þá
þjónustu sem veitt var frá Akureyri
en vissulega væru annmarkar á mið-
að við að hafa sýslumann á staðnum.
Þá nefndi hann að sýslumaður væri
formaður Almannavarna á hverjum
stað en því hefði ekki verið til að
dreifa í Ólafsfirði um hríð.
„Það skiptir miklu máli að missa
ekki frá okkur opinber störf. Í bæj-
arfélagi eins og okkar skiptir líka
máli fyrir mannlífið á staðnum að þar
búi menntað fólk,“ sagði Ásgeir Logi
en hann kvað Ólafsfirðinga þokka-
lega bjartsýna á framtíðina nú í upp-
hafi árs.
Embætti sýslumanns í Ólafsfirði mannað á ný í apríl
Heimamenn óskuðu eftir að
embættið yrði áfram í bænum
HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands
eystra hefur dæmt tæplega tvítugan
karlmann í 30 daga fangelsi, en það
er skilorðsbundið til þriggja ára.
Maðurinn var ákærður fyrir umferð-
arlagabrot, en hann ók bifreið með
þokuljós tendruð, án ökuskírteinis
og án þess að sinna stöðvunarmerkj-
um lögreglu og þá var hann einnig
ákærður fyrir brot gegn valdstjórn-
inni, með því að hafa veist að lög-
reglumanni er akstur hans var
stöðvaður, m.a. kýlt hann hnefa-
höggi og skallað hann í andlitið
þannig að af hlutust mar og bólgur.
Atburðurinn átti sér stað í desember
árið 1999.
Lögreglumenn á vakt stöðvuðu
akstur mannsins er þeir veittu því
athygli að hann hafði þokuljós tendr-
uð. Kom þá í ljós að hann var ekki í
bílbelti og framvísaði ekki ökuskír-
teini. Var hann áminntur um notkun
þokuljósanna og gerð grein fyrir að
hann yrði kærður fyrir hin atriðin.
Nokkru síðar tóku lögreglumennirn-
ir eftir því að maðurinn ók enn um
með þokuljósin kveikt og veittu hon-
um þá eftirför, hann stöðvaði bílinn
en hélt svo áfram án þess að sinna
stöðvunarmerki lögreglu. Þegar loks
tókst að stöðva för mannsins með því
að aka í veg fyrir bifreið hans neitaði
hann að koma út úr bílnum. Það
gerði hann þó eftir nokkurt þref, en
þegar einn lögreglumannanna tók í
öxl hans réðst hann að honum. Mað-
urinn skýrði háttsemi sína á þann
veg að hann hefði reiðst ofsalega.
Viðurkenndi hann að það hefði verið
rangt að ráðast að lögreglumannin-
um en hann hefði þó verið búinn að
vara hann við að slíkum viðbrögðum
legði hann á sig hendur.
Maðurinn hefur tvívegis áður sætt
refsingu, en með hliðsjón af ungum
aldri hans þótti fært að fresta fulln-
ustu refsingar hans nú til þriggja
ára.
Dæmdur
fyrir að
skalla
lögreglu
♦ ♦ ♦
HJÁLPRÆÐISHERINN: Almenn
samkoma kl. 20 annað kvöld, sunnu-
dagskvöld. Miriam Óskarsdóttir tal-
ar og syngur.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag, kl. 18 og á morgun,
sunnudag, kl. 11 í Péturskirkju,
Hrafnagilsstræti 2 á Akureyri.
SJÓNARHÆÐ: Sunnudagaskóli í
Lundarskóla á morgun, sunnudag kl.
13.30. Almenn samkoma á Sjónar-
hæð, Hafnarstræti 63, kl. 17 sama
dag. Fundur fyrir 6 til12 ára krakka
á Sjónarhæð kl. 17.30 á mánudag.
Kirkjustarf
HIN árlega þrettándagleði Íþrótta-
félagsins Þórs verður haldin í dag,
laugardag, á félagssvæðinu við Ham-
ar við Skarðshlíð kl. 17.00. Þetta er
58. árið sem þrettándagleðin er haldin
og er þetta uppákoma sem jafnan nýt-
ur mikilla vinsælda ár hvert.
Dagskráin að þessu sinni er með
hefðbundnu sniði. Álfakóngur og áfla-
drottning mæta á svæðið og púkar,
tröll og ljósálfar verða í fylgdarliði
þeirra. Jólasveinarnir halda senn til
síns heima en þeir koma við og kveðja
viðstadda með söng og gleði.
Kirkjukór Glerárkirkju syngur
nokkur jólalög og hinn ungi Hafþór
Magni tekur lagið. Glanni glæpur
kemur frá Latabæ og skemmtir börn-
unum og í lokin verður boðið upp á
flugeldasýningu. Sem fyrr segir hefst
dagskráin kl. 17 að þessu sinni, en þá
verður m.a. kveikt í myndarlegum
bálkesti á félagssvæðinu.
Árleg
þrettánda-
gleði Þórs
JÚLÍUS Jónsson
hefur verið kjör-
inn fyrsti for-
maður Skíða-
félags Akur-
eyrar, en það er
arftaki Skíða-
ráðs Akureyrar.
Móðurfélög þess
voru Knatt-
spyrnufélag Ak-
ureyrar og
Íþróttafélagið Þór.
Full sátt er um þessa breytingu
hjá móðurfélögum, sem og Íþrótta-
bandalagi Akureyrar, enda var
hugmyndin að stofnun Skíðafélags
Akureyrar að hluta til komin frá
fulltrúum þeirra. Einnig hefur fullt
samráð verið haft við formann
Íþrótta- og tómstundaráðs Ak-
ureyrar og íþrótta- og tómstunda-
fulltrúa.
Ákvörðun um nafn félagsins var
tekin á framhaldsstofnfundi, en
efnt var til samkeppni um það á
meðal félagsmanna. Nafn félagsins
verður skammstafað SKA.
Félagið var kynnt forsvars-
mönnum Akureyrarbæjar í íþrótta-
málum sem og öðrum sem við það
eiga samstarf. Framkvæmdastjóri
KA færði hinu nýstofnaða íþrótta-
félagi sögu félagsins og fána að gjöf
og tilkynnti einnig að skíðaminjar
KA yrðu afhentar Skíðafélagi Ak-
ureyrar til varðveislu.
Júlíus Jóns-
son formaður
Skíðafélags
Akureyrar
Morgunblaðið/Kristján
Eiríkur Bj. Björgvinsson íþrótta- og tómstundafulltrúi, Gísli Kristinn
Lórenzson og Óðinn Árnason sem um árabil hafa starfað fyrir Skíðaráð
Akureyrar og Þórarinn B. Jónsson ræðast við á fundinum.
Júlíus
Jónsson