Morgunblaðið - 06.01.2001, Síða 21
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 21
FISKISKIPIN eru nú að hefja veið-
ar á ný eftir jól og áramót, en flest
voru þau inni yfir hátíðirnar.
Reyndar er nú bræla víðast hvar og
mörg skipin komin í land á ný. Ekk-
ert er enn að frétta af loðnu og síld-
veiðar liggja niðri vegna veðurs.
Togararnir eru hins vegar flestir
að. Hér er verið að gera Björgu
Jónsdóttur ÞH og Geira Péturs ÞH
klár fyrir brottför á Húsavík. Björg
fer á loðnu en Geiri Péturs á rækju.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Skipin halda til veiða á ný
METVERÐ fékkst fyrir karfa á fisk-
markaðnum í Bremerhaven í Þýska-
landi fyrstu dagana eftir áramót.
Framkvæmdastjóri markaðarins
segir að hátt verð helgist meðal ann-
ars af aukinni eftirspurn eftir fiski
vegna umræðunnar um kúariðu í
Evrópu.
Meðalverð á karfa úr fyrstu fjór-
um gámunum, sem seldir voru á fisk-
markaðnum í Bremerhaven eftir
áramótin, var um 350 krónur og hef-
ur aldrei verið jafnhátt að sögn
Samúels Hreinssonar, fram-
kvæmdastjóra Íseyjar í Bremer-
haven. Gámarnir voru frá ísfisktog-
urunum Drangavík VE og Jóni
Vídalín ÁR. Verðið hefur lækkað
nokkuð síðustu daga og í gær var
karfakílóið selt á um 295 krónur.
Samúel segir mikla spurn eftir
fiski á þessum árstíma og því miði
margar útgerðir við að selja aflann
fyrstu daga ársins. Hann segir að
komið hafi 12 gámar frá Íslandi milli
jóla og nýárs og þeir seldir á mark-
aðnum eftir áramótin. Í þessari
fyrstu viku ársins voru seld samtals
um 124 tonn, þar með talið ufsi og
smákarfi, og var meðalverðið rúm
261 króna. „Verðið er vanalega mjög
hátt fyrstu viku ársins því það er rík
hefð fyrir fiskneyslu í Þýskalandi
eftir hátíðirnar. Ég á von á því að
verðið haldist áfram hátt alla næstu
viku. En verðið nú er óvenju hátt. Ég
tel að það megi rekja til kúariðuum-
ræðunnar. Undanfarið hefur svína-
kjöt einnig blandast inn í umræðuna,
þannig að kjöt á mjög undir högg að
sækja um þessar mundir. Það verður
enn frekar til þess að fólk sækir í
fisk.“
Samúel segir að ekkert íslenskt
skip hafi að þessu sinni siglt með
aflann til Bremerhaven til að selja
strax eftir áramótin enda hafi veru-
lega dregið úr siglingum undanfarin
ár. Breki VE frá Vestmannaeyjum
var við veiðar yfir áramótin og mun
sigla með og selja aflann í Bremer-
haven um miðjan þennan mánuð. Þá
mun Dala Rafn VE selja í Bremer
haven 22. janúar nk.
Metverð á fiskmarkaðnum í Bremerhaven
Karfinn á 350 krónur
AFLAVERÐMÆTI skipa Síldar-
vinnslunnar hf. á Neskaupstað nam
á síðasta ári alls um 1.260 millj-
ónum króna. Það er nærri 200 millj-
ónum króna meira verðmæti en árið
1999. Munar þar mestu um mikinn
afla nóta- og togveiðiskipsins Bark-
ar NK á síðasta ári en þá veiddi
skipið alls um 72.800 tonn sem lík-
lega er Íslandsmet. Þar af aflaði
skipið 37.375 tonnum af kolmunna,
28.500 tonnum af loðnu, 6.700 ton-
um af síld, auk þess sem skipið bar
á land um 225 tonn af loðnuhrogn-
um. Heildaraflaverðmæti skipsins
nam á síðasta ári 347 milljónum
króna. Þetta er veruleg aukning á
afla skipins frá árinu 1999 en þá
landaði skipið samtals 34.500 tonn-
um, að verðmæti 182 milljóna
króna.
Afli nóta- og togveiðiskipsins
Beitis NK jókst einnig frá fyrra ári,
var í fyrra um 47.100 tonn, en var
39.400 tonn árið 1999.
Togarar Síldarvinnslunnar, Barði
NK og Bjartur NK, veiddu samtals
um 5.863 tonn af bolfiski í fyrra og
nam verðmæti aflans um 677 millj-
ónum króna. Þar af veiddi frystitog-
arinn Barði NK um 3.478 tonn fyrir
um 476 milljónir sem er töluverð
aukning frá árinu 1999, bæði í afla
og verðmæti. Afli og verðmæti ís-
fisktogarans Bjarts NK minnkaði
aftur á móti frá fyrra ári.
Aflamet hjá Berki
NK í fyrra
!
NÝTT sjávarútvegsfyrirtæki er í
burðarliðnum á Seyðisfirði og hefur
það hlotið nafnið Strandberg. Fyrir-
tækið mun í fyrstu vinna uppsjávar-
fisk á Seyðisfirði.
Fimm aðilar koma að stofnun hins
nýja fyrirtækis; Seyðisfjarðarkaup-
staður, Gullberg, Skagstrendingur,
SR-Mjöl og Byggðastofnun. Hver að-
ili verður með 20% eignarhlut. Fyr-
irtækið hefur ekki verið stofnað en
stjórn Byggðastofnunar á eftir að
fjalla um málið. Gert er ráð fyrir að
stofnhlutafé verði um 50 milljónir
króna. Strandberg mun kaupa eignir
Strandasíldar sf. sem Byggðastofnun
eignaðist á uppboði sl. haust.
Strandasíld sf. fékk úthlutað 57 tonn-
um af byggðakvóta frá Byggðastofn-
un á síðasta ári og er gert ráð fyrir að
hið nýja fyrirtæki nýti kvótann.
Að sögn Adolfs Guðmundssonar,
framkvæmdastjóra útgerðarfélagsins
Gullbergs, verður fyrst um sinn stefnt
að vinnslu á uppsjávarfiski, einkum
síld og loðnu. „Markmiðið er að
styrkja vinnslu á uppsjávarfiski
heima fyrir. Við stefnum á að vera til-
búnir að hefja frystingu á loðnu um
leið og hún berst en einnig höfum við
möguleika á að salta síld. Við munum í
fyrstu kaupa hráefni af þeim skipum
sem það bjóða,“ segir Adolf.
Nýtt fyr-
irtæki á
Seyðisfirði
VEGNA fullyrðinga forvígismanna
sjókvíaeldis á laxi af norskum upp-
runa við Íslandsstrendur um að svo
gott sem enginn lax sleppi lengur
úr sjókvíum hjá nágrannaþjóðum
okkar vill Landssamband stanga-
veiðifélaga koma eftirfarandi á
framfæri: Greint er frá því á frétta-
vef InterSeafood.com að á jóladag
hafi um 20.000 laxar, eða um 40
tonn, sloppið úr sjókvíaeldi hjá
Nord-Senja-fiskeldisfyrirtækinu í
Noregi. Fram kemur að óveður og
mikil ölduhæð hafi valdið því að lax-
inn slapp úr kvíunum.
Landssamband stangaveiðifélaga
er alfarið á móti sjókvíaeldi á
norskum eldislaxi hér við land og
varar við hættum sem því fylgja.
Slíkt eldi er mikill mengunarvaldur,
samþjöppun fisks á litlu svæði
skapar sjúkdómahættu og stroku-
fiskur getur valdið mjög óæskilegri
erfðablöndun við villta íslenska
laxastofna, auk þess að keppa við
þá um fæði og búsvæði.
Nærri lætur að þeir laxar sem
sluppu frá Nord-Senja á jóladag
séu jafnmargir og þeir sem veidd-
ust alls á stöng á Íslandi sumarið
2000. Þá veiddust um 23.000 fiskar
að frátöldum þeim fiskum sem
Rangárnar gáfu.
Eldislax sleppur úr kvíum í Noregi