Morgunblaðið - 06.01.2001, Side 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
SÆNSKA lögreglan hefur nú
handtekið fimm menn sem taldir
eru tengjast ráninu á málverkum
eftir Rembrandt og Renoir úr
Sænska ríkislistasafninu sl. des-
ember.
Ránið þótti eitt það glæfraleg-
asta í sögu Svíþjóðar en það var
framið af þremur vopnuðum
mönnum sem réðust inn í safnið
22. desember og fjarlægðu mál-
verkin.
Mennirnir fimm eru allir góð-
kunningjar lögreglunnar. Einn
þeirra, sænskur ríkisborgari sem
er af rússnesku bergi brotinn, var
handtekinn seint á fimmtudags-
kvöld. Fjórir Svíar voru handtekn-
ir aðfaranótt fimmtudags eftir að
lögreglan hafði leitað ítarlega í
Stokkhólmi.
Aftonbladet greinir frá því í gær
að fjórir af þessum fimm mönnum
hafi setið saman inni í Asptuna
fangelsinu í nágrenni Stokkhólms
og þeir höfðu reyndar ekki lokið
fangelsisvist sinni þegar ránið átti
sér stað. Tveir þeirra voru í leyfi
en tveir höfðu ekki skilað sér úr
slíku leyfi og hafði lögreglan leitað
annars þeirra síðan í ágúst.
Ekki hefur verið greint frá nafni
mannanna en vitað er að Rússinn
er 42 ára gamall en hinir eru á þrí-
tugsaldri. Þeim er haldið í gæslu-
varðhaldi en enn hefur ekki verið
lögð fram formleg kæra á hendur
þeim.
Málverkin þrjú, sem metin eru á
um 30 milljónir dollara, eða rúm-
lega tvo og hálfan milljarð ísl.
króna, eru enn ófundin.
Fjarri því að vera upplýst
Sænska dagblaðið Expressen
hélt því fram í gær að Rússinn
væri sá sem hefði skipulagt ránið.
Það greindi frá því að hann stund-
aði inn- og útflutning og hefði sam-
bönd við glæpasamtök annars
staðar í Evrópu. Sænska lögreglan
sagði í samtali við Aftonbladet að
ekki væru öll kurl komin til grafar
í málinu og að öruggt væri að fleiri
yrðu handteknir í tengslum við
það.
Sl. mánudag reyndu þjófarnir
að krefjast nokkurra milljóna
sænskra króna fyrir verkin í
lausnargjald. Lögreglan, sem fékk
afhentar myndir af verkunum til
að færa sönnur á að um rétt verk
væri að ræða, neitaði að greiða
gjaldið. Lögreglan sagði að hún
vissi ekki hvort málverkin væru
enn í Svíþjóð eða hvort þau hefðu
verið flutt úr landi eins og óttast
er. Málverkin eru ekki tryggð.
Fimm menn handteknir fyrir
listaverkaþjófnað í Stokkhólmi
Málverkin
enn ófundin
Stokkhólmi. AFP.
LÆKNAR og sálfræðingar í Bret-
landi hafa fordæmt þær fyrirætl-
anir foreldra 15 ára stúlku að gefa
henni brjóstastækkun í 16 ára af-
mælisgjöf, sem kostar ríflega 3.200
pund, eða sem svarar rúmlega 400
þúsund krónum.
Foreldrarnir, Kay og Martin
Franklin, reka eigin ráðgjaf-
armiðstöð vegna fegrunaraðgerða
og fullyrða þau að stækkunar-
aðgerðin, sem á að fara fram í ágúst
nk., muni auka sjálfstraust dótt-
urinnar, Jennu, gera henni lífið
betra. En læknar segja aftur á móti
að aðgerðin sé „óráðleg“ og hætt sé
við að hún muni valda stúlkunni lík-
amlegum og andlegum skaða.
Kay Franklin hefur gengist undir
brjóstastækkun tvisvar, auk ann-
arra fegrunaraðgerða á nefi, tönn-
um og mjöðmum. „Ég vil að Jenna
sé sjálfsörugg vegna útlits síns og ef
það þýðir að brjóstastækkana er
þörf eða laga þarf tennurnar í henni
eða eitthvað annað, þá styð ég það,“
sagði hún.
„Skortir sjálfsöryggi“
„Jenna hefur talað um það í mörg
ár að fá brjóstafyllingar. Ef hún get-
ur fengið þær núna þegar hún er 15
og þroski hennar er eðlilegur þá
myndi ég leyfa henni það. Ég væri
glöð fyrir hennar hönd. Hún lítur
vel út en hana skortir sjálfsöryggi.
Hún hefur sama vaxtarlag og lík-
amsbyggingu og ég hafði og ég veit
nákvæmlega hvernig henni líður.
Hún er hávaxin með lítinn brjóst-
kassa og henni finnst hlutföllin í sér
röng.“
Jenna segir sjálf að hún hafi
hugsað um það þegar hún var 12
ára að láta stækka á sér brjóstin en
þegar hún hafi verið komin langt á
15. árið hafi hún tekið eftir því hve
margir hafi verið að fara í svona að-
gerð „og þá vildi ég líka að mín yrðu
stærri. Næstum því allir sem maður
sér í sjónvarpinu eru með fyllingar.
Ef ég ætla mér að ná árangri verð
ég líka að fá þær,“ segir Jenna.
Hún segir foreldra sína ekki vera
óábyrga. „Það getur enginn gagn-
rýnt ákvörðun sem ég er búin að
taka. Ég vil bara vera ánægð með
líkama minn og ég held að með því
að láta stækka brjóstin á mér muni
ég fá meira sjálfstraust.“ Hún segist
ætla sér að verða lýtalæknir og
halda áfram rekstri fjölskyldufyr-
irtækisins.
Hafa alist upp með
lýtalækningum
Hvorugt foreldra hennar er lýta-
læknir en vísa sjúklingum til lækna
til aðgerða. Martin Franklin segir:
„Við Kay höfum verið í þessu starfi í
nokkur ár og öll börnin okkar hafa
alist upp með lýtalækningum.“ Auk
Jennu eiga Kay og Martin tvo syni.
Eileen Bradbury, sálfræðingur er
veitir konum ráðgjöf varðandi áhrif
þess að gangast undir fegrunar-
aðgerðir, segir að tilfelli Jennu
Franklin valdi sér „miklum áhyggj-
um“. Hefur hún sérstaklega áhyggj-
ur af því að stúlkan skuli vilja gang-
ast undir aðgerðina til þess að geta
„náð árangri“.
Segir hún aðfinnsluvert að 15 ára
stúlka skuli trúa þessu og þetta sé
þar að auki rangt. „Ég hef áhyggjur
af því að móðir hennar, sem greini-
lega hvetur hana, hefur gengist
undir svo margar fegrunaraðgerðir
sjálf. Það hringja háværar aðvör-
unarbjöllur hér.“
Lýtalæknirinn Christopher Khoo
segist eiga erfitt með að skilja hvers
vegna 15 ára stúlkur gætu þurft á
aðgerð að halda. „Ef þær eru óá-
nægðar með sjálfsmynd sína, eins
og margir unglingar eru, þá er
skyndilausn ekki besta svarið.“
Linda Blair, sálfræðingur við
Bath-háskóla, tók undir þessar
áhyggjur: „Skurðaðgerð gæti miklu
fremur aukið sálarflækjur hennar
en leyst þær. Brjóstastækkun veitir
ekki sjálfstraust. Slíkt fær maður
einungis innan frá.“
Brjóstin ekki nægilega þroskuð
Fjölskylda Jennu hefur farið fram
á það við Anthony Erian að hann
framkvæmi aðgerðina en hann hef-
ur einnig látið í ljósi efasemdir. „Við
16 ára aldur hafa brjóstin ekki náð
nægum þroska og auk þess vaknar
fjöldi spurninga um sálrænu hliðina.
Við ættum að bíða og sjá hvað Guð
gefur okkur. Ef engin breyting er
orðin við 18 eða 19 ára aldur getum
við farið að athuga þetta,“ sagði
Erian í viðtali við BBC.
Móðir Jennu sagði eftir að lækn-
irinn hafði látið þessi orð falla að „ef
Erian telur að 16 ára sé Jenna of
ung til að gangast undir aðgerðina
þá munum við samþykkja það og
hún verður að bíða þar til hún er
orðin 18. Hún verður kannski ekki
ánægð með það en við viljum ein-
ungis gera það sem er henni fyrir
bestu.“
16 ára stúlka fær brjósta-
fyllingar í afmælisgjöf
The Daily Telegraph.
AP
Jenna Franklin á heimili sínu í
Mansfield á Englandi.
TAÍLENDINGAR
ganga að kjörborði í
dag og nýlegar skoð-
anakannanir benda til
þess að flokkur vinsæls
auðkýfings, Thaksins
Shinawatra, beri sigur
úr býtum og verði
stærsti flokkurinn á
þinginu. Flokknum er
spáð rúmlega 190-205
þingsætum af 500 í
neðri deildinni og
Demókrataflokknum,
undir forystu Chuans
Leepais forsætisráð-
herra, 118-137 sætum.
Verði Thaksin forsætisráðherra
eftir kosningarnar er ekki víst að
hann haldi embættinu lengi. Nefnd
sem skipuð var til að berjast gegn
spillingu í stjórnkerfinu hefur úr-
skurðað að auðkýfingurinn hafi
leynt hluta auðæfa sinna þegar
hann var aðstoðarforsætisráðherra í
fyrri ríkisstjórn. Staðfesti stjórn-
lagadómstóll landsins þennan úr-
skurð er líklegt að Thaksin verði
bannað að gegna opinberu embætti
í fimm ár. Verði hann næsti for-
sætisráðherra landsins kann hann
því að verða sviptur embættinu og
það gæti leitt til stjórnlagakreppu í
landinu.
Margir búast við viðamiklum
kosningasvikum og heimildarmaður
í yfirkjörstjórn landsins sagði að svo
gæti farið að kjósa þyrfti að nýju í
allt að fjórðungi kjördæmanna af
þeim sökum.
Thaksin er 51 árs og stofnaði
stærsta fjarskiptafyrirtæki Taí-
lands. Vinsældir hans eru meðal
annars raktar til óánægju með hæg-
an bata efnahagslífsins eftir efna-
hagshrunið í Asíu fyrir rúmum
þremur árum.
Chuan varð forsætisráðherra í
nóvember 1997 þegar kreppan var í
hámarki og honum tókst að koma á
stöðugleika í gengismálum og auka
útflutninginn. Hátt olíuverð hefur
hins vegar dregið úr hagvexti að
undanförnu og Chuan hefur verið
sakaður um að hafa vanrækt að
bæta hag fátækra landsmanna.
Thaksin hefur m.a. lofað að veita
öllum sveitarfélögum landsins fjár-
hagsaðstoð og heitið skuldugum
bændum því að þeir þurfi ekki að
greiða vexti af lánum sínum í þrjú
ár. Óljóst er hins vegar hvernig
hann hyggst fjármagna þessi áform.
Taílensk kona á báti nálægt mynd af þing-
mannsefni í síki í einu úthverfa Bangkok.
Þingkosningar í Taílandi
Vinsælum auð-
kýfingi spáð sigri
Bangkok. AP.
AP