Morgunblaðið - 06.01.2001, Page 25
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2001 25
sögumaður sem heldur í gömul am-
erísk gildi og varpar á þau gullnum
ljóma og að því leytinu gerir hann
þægilegar myndir. Hann vill ekki
rugga bátnum of mikið. Hann vill
hæga en örugga siglingu.
Þannig er sárafátt út á Söguna
um Bagger Vance að setja, sem
gerist á kreppuárunum í Banda-
ríkjunum og segir frá færum golf-
ara sem lagt hefur kylfuna á hill-
una eftir vonda upplifun í fyrri
heimsstyrjöldinni en ákveður að
taka þátt í stórmóti fyrir bæinn
sinn, Savannah. Myndin er vel leik-
in að mestu leyti. Myndatakan er í
þessum fortíðarhyggjustíl sem á að
fá Bandaríkjamenn til þess að
trega saklausari tíma með falleg-
um sólarlagsmyndum og smekk-
legu götulífi eins og Norman Rock-
well teiknaði það fyrir áratugum.
Leikstjórnin er eins fagmannleg og
hægt er að hafa það, býst ég við.
Það eru hvergi tæknilegir hnökrar
í frásögninni. Umbúðirnar eru
lýtalausar. Nema hvað sagan er
þegar allt kemur til alls kannski
ekki beint máttlaus heldur ein-
hvern veginn óskaplega þægileg.
Redford tekst að sigla hjá öllum
meiriháttar árekstrum þannig að
meira að segja uppgjör golfhetj-
unnar okkar við fortíðina, upplif-
unina skelfilegu í stríðinu auðvitað
sérstaklega, sem gert hefur hann
að drykkjuhrúti og aumingja í
meira en áratug, en líka ónýtt
samband við stórglæsilega eigin-
konuna (Charlize Theron), verður
hvorki að einu né neinu.
Í anda Redfords er miklu meira
gert úr því t.d. þegar hetjan hittir
holu í höggi um miðbik mótsins. Þá
setur Redford allt í einu á him-
neskan kórsöng og myndin fær
svip heilagleikans og gömlu, amer-
ísku bíóvellunnar í senn. Við erum
náttúrulega ekki að horfa á golf
heldur lífið sjálft með sigrum þess
og ósigrum. Við kynnumst heim-
speki golfsins með hliðsjón af lífs-
baráttunni í gegnum dularfullan
kylfusvein, sem Will Smith leikur
glettilega vel. Hann virðist varla
vera af þessum heimi heldur virkar
hann eins og engill sendur af himn-
um ofan til þess að gerast sálfræð-
ingur hetjunnar á golfvellinum.
Hann er gersamlega óútskýrð per-
sóna, sem er allt í lagi vegna þess
að engin persóna í allri myndinni
er útskýrð nema á snöggslegnu yf-
irborði golfvallarins.
Þrátt fyrir það leiðist manni ekki
að horfa á myndina líklega vegna
þess hve hún er þægileg. Maður
þarf ekki að taka neitt inn á sig.
Þarf ekki að taka afstöðu til eins
eða neins, bara láta hana fljóta í
gegn á fagmennskunni og sólarlag-
inu og átakaleysinu og kórsöng-
num, þess fullviss að svona hafi
tímarnir verið fullir af glæsi-
mennsku og riddaramennsku og
fallegu fólki að spila golf inn í
kvöldið áður en næsta styrjöld
braust út.
Kannski ekki merkileg kvik-
myndagerð en þægilegra gerist
það ekki.
ROBERT Redford, sem einu
sinni var skærasta kvikmynda-
stjarnan í Hollywood, gerir þægi-
legar bíómyndir. Hann var einn af
fyrstu stórleikurunum sem gerðist
leikstjóri og vakti strax mikla at-
hygli fyrir prýðilegt fjölskyldu-
drama, Venjulegt fólk. Það er góð-
látlegur, manneskjulegur húmor í
myndum hans (Stríðið um bauna-
akurinn í Milagro), frásögnin er
vönduð og mjög öguð (A River
Runs Through It) og við fáum
jafnvel eitthvað leyndardómsfullt
eða yfirnáttúrulegt í kaupbæti
(Sagan um Bagger Vance). Red-
ford er einstaklega gamaldags
Lífið er golfKVIKMYNDIRS t j ö r n u b í ó o g R e g n -
b o g i n n
„The Legend of Bagger Vance.“
Leikstjóri: Robert Redford. Aðal-
hlutverk: Matt Damon, Will Smith,
Charlize Theron. DreamWorks
2000.
SAGAN UM BAGGER
VANCE 1 ⁄2
Arnaldur Indriðason
MYNDLISTARMAÐURINN
Aernout Mik heldur fyrirlestur
í Listaháskóla Íslands á Laug-
arnesvegi 91 mánudaginn 8.
janúar kl.12.30, stofu 24.
Aernout Mik er kunnur hol-
lenskur myndlistarmaður sem
notar myndbönd sem sitt aðal-
tjáningarform. Hann er búsett-
ur í Amsterdam og kennir við
Ríkisakademíuna þar í borg.
Aernout Mik var fulltrúi Hol-
lendinga á Tvíæringnum í Fen-
eyjum árið 1997.
Hann er um þessar mundir
gestakennari við Listaháskóla
Íslands og í fyrirlestrinum seg-
ir hann frá eigin verkum og
sýnir myndbönd.
Bæklingur um námskeið á
vegum Opna listaháskólans á
vorönn 2001 er kominn út og
liggur frammi á skrifstofu LHÍ
og hjá Opna listaháskólanum.
Hann er einnig að finna á
heimasíðu skólans, slóð
www.lhi.is.
Fyrirlestur í
Listaháskóla
RÚSSNESKA kvikmyndin
Þrettándakvöld verður sýnd í
Bíósal MÍR, Vatnsstíg 10,
sunnudaginn 7. janúar kl. 15.
Myndin er frá árinu 1955,
byggð á samnefndu leikriti W.
Shakespeares. Leikstjóri er
Júrí Fried. Kvikmyndin er með
enskum texta og er aðgangur
ókeypis.
Þrettánda-
kvöld í bíósal
MÍR
Kaffileikhúsið
Síðasta sýning á einleiknum Missa
Solemnis verður á í dag, laugardag,
kl. 17.30.
Í Missa Solemnis (árleg dýrðar-
messa) segir frá vitringunum þrem-
ur sem við þekkjum úr guðspjöllun-
um sem fylgdu stjörnu Jesúbarnsins
og færðu því gjafir; gull, reykelsi og
myrru. En þar segir líka frá fjórða
vitringnum, sem lagði af stað í sömu
erindagjörðum en náði ekki að hitta
barn ljóssins heldur lenti í saltnám-
unum við Sódómu.
Leikari er Jórunn Sigurðardóttir.
Síðasta sýning
FÁTT er amerískra en klappstýr-
ur; þessar hjarðir íturvaxins kvenna-
blóma sem sýna snilli sína í dans-
mennt og söng ásamt hvatning-
arhrópum til liðsins síns á ýmsum
kappleikum í Vesturálfu. Gjarnan
með dúska í höndum, léttklæddar
mjög í litum heimaliðsins. Um slíkar
ofurgellur fjallar Bring It On, og viti
menn, gerir það merkilega skamm-
lítið.
Klappstýran Torrance (Kirsten
Dunst) vinnur kosningu sem yfir-
klappstýra í menntaskóla í San Diego
í upphafi skólaársins. Aðrar sitja súr-
ar eftir. Starfið reynist stórpólitískt,
ótal ljón á veginum; öfundsjúkar
klappstýrur í hennar eigin liði og öðr-
um, ekki síst þeldökkar rappklöppur í
fátækum nágrannabæ, byggðum lit-
uðum. Þær gera stallsystrum sínum í
San Diego ýmsar skráveifur, ræna
þær m.a. danssporunum. Torrance
ræður þá dansahöfund, sem reynist
ekki allur þar sem hann er séður.
Markmið allra klappstýra í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku er að kom-
ast í alríkiskeppnina, sem fram fer í
Flórída ár hvert. Þangað stormar allt
liðið í fyllingu tímans og skekur sig
hver sem betur getur.
Dunst, og enn frekar Eliza Dushka,
sem leikur nýliða í San Diego-liðinu,
eru báðar svo góðar leikkonur og
glæsilegar stúlkur að maður lítur
tæpast á úrið, myndina á enda. Slíkt
er kærkomið kraftaverk, miðað við
efni og aðstæður. Vitaskuld er mynd-
in þunn í roðinu, fyrirsjáanleg og
aulaleg á köflum, en tekst að halda
haus. Það má mikið vera ef Dushka á
ekki eftir að verða þekkt nafn í kvik-
myndaheiminum, það er unun að sjá
hvað hún getur gert úr moðinu og
heldur myndinni uppi oft og tíðum.
Dunst getur einnig borið uppi atriði
og Gabrielle Union leikur leiðtoga
blökkustúlknanna af ámóta reisn og
krafti.
Annar góður kostur við Bring It On
eru fjöldamörg snjöll og vel útfærð
dansatriði, einkum hópsýningar sem
sumar hverjar minna á meistara
Busby Berkeley. Valdabarátta sem er
spegilmynd af átökum hinna full-
orðnu úti í þjóðfélaginu, þótt hún
komust svona rétt með tærnar þar
sem hin firnagóða Election hafði hæl-
ana á síðasta ári. Eins er boðið uppá
ógnarleiðinleg og tregafull ástamál
Torrance og tveggja dísætra sveina,
sem rugla klappstýruna í ríminu um
sinn.
Rocky á minipilsi? Tæpast. Hundr-
uð álfakroppa og suðræn sól er hins-
vegar sannkallað sálarvítamín í frost-
beljanda og skammdegisgráma
norðurhjarans.
Kátína og raun-
ir klappstýra
KVIKMYNDIR
B í ó h ö l l i n , K r i n g l u -
b í ó , H á s k ó l a b í ó , N ý j a
b í ó , A k u r e y r i , N ý j a
b í ó , K e f l a v í k .
Leikstjóri Peyton Reeds. Handrits-
höfundur Jessica Bendinger. Tón-
skáld Christopher Beck. Kvik-
myndatökustjóri Shawn Maurer.
Aðalleikendur Kirsten Dunst, Eliza
Dushku, Gabrielle Union, Jesse
Bradford, Natina Reed. Sýning-
artími 95 mín. Bandarísk. Univer-
sal t. Árgerð 2000.
„BRING IT ON“ Sæbjörn Valdimarsson
K
O
R
T
E
R
AMERIGO prins og Charlotte
eru elskendur, en í peningavand-
ræðum sínum giftist hann bestu vin-
konu hennar, Maggie dóttur fyrsta
bandaríska milljónamæringsins,
Adams Ververs. Til að vera nálægt
ástinni sinni giftist Charlotte Adam
og nú er um að gera að ekki komist
upp um leynilega sambandið.
Hvar eru ástríðurnar? Það er
ekkert gaman að þessu svona flötu.
Maður finnur engan veginn fyrir ást
fólksins hvers á öðru, eða hvernig
þær tilfinningar breytast eða
þróast. Heldur verður maður að
giska á þær út frá upplýsingum sem
hrynja úr munni persónanna. Og
þegar maður á að lifa sig inn í til-
finningar og hjartakvalir þeirra sem
í raun unnast siðlausum ástum er
lágmark að snertur sé viðkvæmur
strengur í hjarta manns. Charlotte
virkar spillt heimtufrekja á allt og
alla, allir eru sífellt að velta sér upp
úr tilgerðarlegum vandræðum, og
maður skilur ekki af hverju. Hópur
af ríku liði í leik sem ég nenni ekki
að vera með í.
Þetta er synd.
Leikararnir hefðu geta gert miklu
betur, þótt flestir standi þeir sig
ágætlega miðað við aðstæður.
Myndin virkar ósköp innantóm og
enn tómari í svo fínni og íburðar-
mikilli sviðsmynd og tilkomumiklum
búningum sem fylgja svo fjársterk-
um framleiðslum á períódumynd.
Þetta er í þriðja sinni sem félagar
Merchant og Ivory gera mynd eftir
skáldsögu Henrys James, og enn og
aftur er hinn viðurkenndi handrits-
höfundur Ruth Prawer Jhabvala
með þeim í för. Hér bregst henni
hins vegar bogalistin því þótt ég
hafi ekki lesið umrædda skáldsögu
er handritið alls ekki nógu gott.
Sum atriði eru bæði langdregin og
óáhugaverð, þróun sögunnar fer
fyrir ofan garð og neðan og ein-
hvern veginn missir notkunin á
gullnu skálinni, sem myndin heitir
eftir og á að vera voða táknræn,
marks.
Fyrir marga er samvinna þessa
fólks trygging fyrir góðri kvikmynd,
en mér finnst þau mjög brokkgeng;
frá því að nálgast algjöra meðal-
mennsku upp í hreina snilld.
Við skulum bara vona að þeim
takist betur upp með næstu mynd
og það er spennandi að vita hvað rit-
verk þau taka fyrir þá.
Ástarflækjur í
fjölskyldunni
KVIKMYNDIR
H á s k ó l a b í ó
Leikstjóri: James Ivory. Handrit:
Ruth Prawer Jhabvala eftir skáld-
sögu Henry James. Aðalhlutverk:
Uma Thurman, Jeremy Northam,
Nick Nolte, Kate Beckinsale,
Angelica Huston. Merchant-Ivory
Productions 2000.
THE GOLDEN BOWL Hildur Loftsdótt ir
JAPANSKI kabuki-leikarinn Kankuro Nakamura sést hér í miðið dansa
ljónadansinn, eða „Renjishi“, ásamt sonum sínum, Shichinosuke og Kant-
aro, til að fagna 21. öldinni. Þúsundir Japana söfnuðust saman á nýársdag í
Naruto, austur af Tókýó, til að fylgjast með dansinum og fyrstu sólarupp-
rás 21. aldarinnar.
AP
Ljónadansinn
www.mbl.is